Morgunblaðið - 09.06.1974, Side 3
MORCUNBLAÐIÐ, SUNNUDAOUK 9. .JUNI 1974
Tíðarfarið
Sjóveður voru alveg sæmileg
síðustu viku, sunnan og vestlæg
átt, en stundum of hvasst fyrir
handfærabáta.
Aflabrögð
Alveg hefur verið sæmileg veiði
í trollið og ágætt hjá báti og
báti. Þannig kom Álsey einn
daginn inn til Eyja með 62 lestir
eftir viku útivist. Arnarborg I
Sandgerði fékk 25 lestir og svo
voru margir bátar með um 20
lestir til að mynda í Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjum.
Tveir bátar róa enn með þorska-
net frá Keflavfk og hafa verið að
fá 7 lestir, 2ja nátta. Eins hafa
bátar róið með net frá Sandgerði,
siglt með aflann og selt hann fyrir
gott verð, um 55 krónur kg.
Humar er að byrja að veiðast,
en ekki mikið komið til ennþá,
einna beztur hefur aflinn verið í
Þorlákshöfn, 1!4—3 lestir í róðri,
og um 600 kg í Eyjum, allt slitinn
humar.
Einn daginn komu 5 trillur til
Reykjavikur af handfæraveióum
með 12 lestir og einn bátur til
Sandgerðis með 6t4 lest eftir 2
daga, 3 menn á.
Rækjan er að byrja að veiðast,
en hún er treg ennþá, hefur
komizt upp í l'A lest yfir daginn.
Togararnir
Togararnir hafa verið að flökta
um allan sjö, því að fiskur er nú
mjög tekinn að tregast við
Austur-Grænland. Tvö skip
lönduðu í Reykjavík í vikunni:
Hjörleifur 2411estirog
Bjarni Benediktsson um
310 lestir
3000
Gjaldeyrisvarasjóður þjóðar-
innar er nú ekki langt frá því að
vera 3000 milljónir króna og hef-
ur þá minnkað um rúmlega helm-
ing frá því, sem hann var mestur.
Mikið álag hefur verið á
sjóðnum upp á síðkaStið, er talið
til að mynda, að hann hafi rýrnað
um fast að 1000 milljónir í síðasta
mánuði einum. Þvilikri gjald-
eyrisþörf er honum ætlað að
standa undir. Kannski er ekki úr
vegi að staldra við og athuga þetta
nánar.
Því hefur verið haldið fram
hvað eftir annað og ekki mót-
mælt, að skuldir og skuldbind-
ingar rikisins séu 20.000 milljónir
króna — 100.000 krónur á hvert
mannsbarn í landinu. — En þar
fyrir utan eru miklar skuldir og
skuldbindingar, sem gjaldeyris-
varasjóðurinn þarf að annast. Má
þar nefna erlendar skuldir vegna
skipakaupa, sem vart eru minni
en 2000 milljónir króna, yfir-
dráttarskuldir banka áætlaðar
1000 milljónir króna, vörukaupa-
skuldir einnig tæplega minni en
1000 milljónir króna. Enn má
nefna olfuskuld við Rússa
1500—2000 milljónir króna. Allt
eru þetta víst frekar of lágar tölur
en hitt, en þær eru engu að síður
lagleg fúlga, þegar þær eru
komnar í eitt, sem gjaldeyris-
sjóðurinn þarf að standa straum
af.
Og hvernig er þá útlitið með, að
sjóðnum takist að inna af hendi
þetta erfiða hlutverk. Allir hafa
atvinnu, ekki er að kvarta undan
því, en langt er frá, að sú vinna
snúist um gjaldeyrisöflun. Það
opinbera er með geysimiklar
framkvæmdir, meðal annars stór-
felldar virkjanir. Við Sigöldu-
virkjun eru nú til að mynda 200
manns, en stefnt er að þvi, að þar
verði 500 manns f sumar. — 100
skipshafnir á togbáta. — Þetta er
bara eitt dæmi af framkvæmdum
þess opinbera, að visu eitt það
stærsta. Einstaklingar keppast
við hvers konar framkvæmdir til
að bjarga því, sem bjargað
verður, eins og þeir segja, sem
peninga eiga.
Eða eyðslan á öllum sviðum. Þó
að margar flugvélar fari með
skemmtiferðafólk daglega, er allt
upppantað langt fram á haust og
færri komast að en vilja, langir
biðlistar eru í ferðaskrifstof-
unum, sem engin von er til, að
hægt verði að tæma. Jafnmargir
bílar eru keyptir á fyrsta fjórð-
ungi ársins og allt árið i fyrra, og
voru þó bílakaup þá ekki skorin
við nögl. Og allar fjárfestingar-
vörur eru keyptar i búðunum,
hverju nafni sem nefnast.
Fjárfestingarkapphlaupið er
gegndarlaust, enda talið, að
krónan rýrni um 3—5% á mánuð:
á þessu ári.
En hvernig er svo ástandið hjá
þeim atvinnuvegum þjóðarinnar,
sem eiga að afla gjaldeyris i
sjóðinn? Með einni undantekn-
ingu eru allar greinar sjávarút-
vegsins reknar með tapi, en það
er saltfiskverkunin. En hvað var-
ir lengi tími náðarinnar? í siðustu
kreppu, fyrir tæpum 10 árum, tók
það eitt ár, að verðiö félli á salt-
fiskinum eins og öðrum sjávaraf-
urðum.
Aðeins eru tveir mánuðir síðan
gerð var úttekt á þjóðarbúinu af
hagrannsóknastjóra. Niðurstaðan
var ljót og ennþá verri spáin.
Síðan hefur enn sigið á ógæfuhlið
fyrir flestum greinum sjávarút-
vegsins. Einn báturinn er
bundinn af öðrum vegna afla-
tregðu, erfiðleika við að fá mann-
skap og rekstrarfjárskorti, og nú
hefur það verið kórónað, sem auð-
vitað var vitað að koma myndi, að
reikningum hefur verið hreinlega
lokað I bönkunum, sem ekki ætla
að fjármagna skuldasafnanir í
taprekstri. Þetta þýðir auðvitað
enn meiri stöðvun og samdrátt.
Togaranna bíður það sama, en
þar er málið enn stórkostlegra.
Það er sannleikur, að tapið er þar
1—2 milljónir króna á mánuði á
skip.
Loðnumjölið hefur enn fallið og
er nánast óseljanlegt í dag. 'A af
framleiðslunni er óseldur i
landinu, og verksmiðjurnar, sem
ekki höfðu selt fyrirfram, geta
ekki gert upp loðnuna frá i vetur,
sem orsakar aftur, að útgerðar-
menn geta ekki gert upp við
skipshafnir sínar. Hér í þessum
pistlum hefur verið sýnt fram á,
að allt útlit er fyrir, að ekki verði
hægt að greióa nema kr. 1,45 fyrir
kg af loðnu næstu vertið miðað
við $5,25 verð fyrir eggjahvítuein-
ingu, eða eins og verðið var í
fyrra. Nú er ekki hægt að selja
| fyrir $6,00 og hvað er langt þar
til verðið er $5,25? 1 vetur var
verðið fyrir loðnuna kr. 3,75 kg til
að byrja með. Menn taka ekki
svona skrif alvarlega og hugsa
sem svo: Þetta getur ekki verið.
En getur það komið mönnum
niður á jörðina, þegar þeim er
bent á, að nú er verð á spærlingi
kr. 2,00 kg, en var kr. 4,90 kg í
fyrrasumar? Og bátarnir liggja,
ekki kemur mikill gjaldeyrir fyrir
spærlinginn með því móti. Og
verður sama upp á teningnum
með loðnuna? Þetta verð væri
ekki nema fyrir hlut skipshafnar-
innar og olíunni.
Enn hefur sigið á ógæfuhlið hjá
þeim, sem frysta fisk, því að
blokkarverðið hefur enn fallið og
útlitið er ekki gott. Það var talið
saman fyrir nokkru i þessum
pistlum, að sjávarútveginn
vantaði 4.100 milljónir króna
miðað við það, sem honum var
ætlað um síðustu áramót.
Enginn vafi er á því að stokka
verður upp efnahagsmál þjóðar-
innar, en það verður ekki gert
þessar fáu vikur, sem eru til kosn-
inga, hvað svo sem að höndum
ber. Hvað þá tekur við, veit nú
enginn. En benda má á, að stór-
þjöðir eins og Ítalía og Frakkland
ramba nú allt að þvi á barmi
gjaldþrots, ef þeim tekst ekki á fá
lánsfé, en lánstraustið er nú mjög
þorrið. Hvað á það langt i land, að
ísland glati sinu lánstrausti, ef
lengi stefnir sem horfir? Það eru
nú mörg sömu einkenni heims-
kreppu og 1929 og 1930.
„Kanmur“ af
500 faðma dýpi
'Brezkur fiskkaupmaður keypti
nýlega i Grimsby fyrsta „kíttið"
af ,,kanínum“, sem bera visinda-
heitið „Chimaera monstrosa", en
það er fisktegund, sem veiðist á
500 faðma dýpi — íslénzku tog-
ararnir toga venjulegá á 200
faðma dýpi — og heldur sig í
Norður-Atlantshafinu, meðal
annars hjá Shetlandseyjum.
Kaupmaðurinn för úr hvíta
sloppnum sinum, sem allir fisk-
kaupmenn ganga í á markaðnum,
og skundaði upp á skrifstofunar
sínar og sagði: „Ég vil láta flaka
fiskinn og reyna með nokkrum
sýnishornum, hvort ekki er hægt
að koma flökunum út í búðunum í
London og Manchester". Hann fór
einnig með flak heim til konu
sinnar. Sagði hann að fiskurinn
væri þéttur í sér, en bragðlítill og
þyrfti mikið af sósu!
Mikil barátta er nú hafin i Bret-
landi við það opinbera og neyt-
endurna fyrir notkun ýmissa
djúpvatnsfiska, sem svara ekki í
útliti til hinna hefðbundnu fiska
okkar og þykja ljótir. Það þótti nú
líka skötuselurinn fyrst, en nú er
hann herramannsmatur, seldur
allra fiska dýrastur til Frakk-
lands og annarra landa og engan
veginn hægt að fullnægja eftir-
spurninni. Eins var með grá-
lúðuna og raunar karfann.
Það skyldi þó aldrei vera, að
ýmsar djúpsjávarfisktegundir svo
sem langhali ættu eftir að bjarga
minnkandi fiskgengd og efnahag
Islendinga og eggjahvituskorti
annarra þjóða?
Hert á reglunum
Kanada hefur hert á reglunum
um lestir í fiskiskipum, þar má nú
ekkert vera úr tré nema í opnum
skipum.
Þá á að halda fundi við og við
með sjómönnum og skipstjórum,
þar sem rædd er betri meðferð á
fiskinum.
Stór fiskmarkaður
Fiskmarkaðurinn i Tokio,
höfuðborg Japans, var upphaf-
lega byggður fyrir 5 milljónir
íbúa. Nú búa þar í borg 12 millj.
manna, og er markaðurinn orðinn
alltof litill. 15.000 vörubilar koma
þangað daglega til að sækja fisk
og þar vinna 75.000 manns, eins
og allt vinnandi fölk á íslandi.
Þarna er eitthvað af islenzku
loðnunni selt, en til Japans fóru í
ár tæpar 20.000 lestir — 100
togarafarmar —. Þangað þyrftu
að fara næsta ár 50.000 lestir. Það
krefst fyrst og fremst skipulags.
Oft hefur verið sett nefnd í minna
mál. Stjórnarherrar vasast allt of
mikið í öllu sjalfir i stað þess að
nota reynslu og sérþekkingu
þeirra manna, sem lifa og hrærast
í framleiðsluútgerð.
Aukin matarþörf
íbúafjöldinn i heiminum var
1970 3.700 milljónir manns. Til
þess að geta gert sér einhverja
hugmynd um stærð þessarar tölu
má geta þess að íbúatala Banda-
ríkjanna er 200 milljónir, 5% af
ibúum jarðarinnar.
Gert er ráð fyrir, að mann-
fjöldinn i heiminum verði orðinn
4.600 milljónir árið 1980.
Auðvitað fer matarþörfin vaxandi
í hlutfalli við fólksfjölgunina, og
er talið, að 1980 verði eggjahvítu-
þörf heimsins komin upp i 244
millj. lesta. Fiskur eða sjávaraf-
urðir einar sem eggjahvíta mann-
kynsins gætu orðið 1980 82 millj-
ónir lesta. Ársafli íslendinga nær
ekki enn nema tæpri 1 milljón
lesta.
Markaðsverðið
upp og niður
1968 var verð á þorskblokkum
20 cent. — Blokkin komst svo
hæst upp i 82 cent lb. — nú er
hún 70 cent. Sama ár, 1968, komst
eggjahvítueiningin i loðnumjöli
niður i 2 dollara. í byrjun árs í
byrjun árs i fyrra var hún rúmir 5
dollarar. Fyrir ári komst verðið
hæst, sem það hefur komizt, upp i
12 dollara. Nú er ekki hægt að
selja loðnumjöl fyrir helminginn
af því verði.
Veiðileyfi
Nokkur veiðileyfi til sölu í Brúará og Ölfusá
dagana 10. —19. ágúst. Upplýsingar í síma
99-1 268 virka daga kl. 7 — 8 eftir hádegi.
Veiðifélag Árnesinga.
Mesta ferðaúrvalið
og ferðirnar seljast uppl
Maí 12. 22. Costa del Sol Ítalía — Gullna ströndin uppselt uppselt
31. Italía — Gullna ströndin uppselt
Júní 1. Costa del Sol uppselt
1 5. ítalía — Gullna ströndin 6 sæti
19. Costa del Sol uppselt
29. Costa Brava 4 sæti
Júlí 2. Italía — Gullna ströndin laus sæti
3. Costa del Sol 10 sæti
15. Costa del Sol laus sæti
16. Italía —- Gullna ströndin laus sæti
1 7. Costa del Sol 1 4 sæti
24. Costa del Sol laus sæti
29. Costa del Sol laus sæti
31. Costa del Sol uppselt
Mt
m
■
-
UTSÝNARFERÐ
ER SPARNAÐUR!
Hvað kostar góð sumarleyfisferð til
Dæmi: Ferð á eigirt vegum SÓIarlanda?
Almennt flugfargjald til Malaga —
Costa del Sol « kr. 47.440.
1. fl. gisting í nýrri ibúð
með baði og ölium búnaði
samkv. verðskrá í 14 daga kr. 9.860.
Samtals kr. 57.300.
4- Samskonar Útsýnarferð kr. 27.300.
Sparnaður farþegans kr. 30.000.
ÚTSÝNARFERÐIN ER FARIN MEÐ SÖML
FLUGVÉLAGERÐ — BOEING 727 — 1
FLOKKS VEITINGUM Á LEIÐINNI, SÖML
GISTINGU OG AÐ OFAN GETUR, OG
ALLRI ÞJÓNUSTU FARARSTJÓRA OG
STARFSFÓLKS ÚTSÝNAR.
MISMUNURINN KR. 30.000,- ER HAGN
AÐUR FARÞEGANS.
SAMBÆRILEGUR SPARNAÐUR í ÍTALÍU-
FERÐUM!
HVAR GETIÐ ÞÉR GERT BETRI FERÐA-
KAUP?