Morgunblaðið - 09.06.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JUNl 1974
25
Úrslit
sveitarstjórnakosninganna
Ellert B. Schram
Undanfarna daga hafa stjórn-
málaforingjar keppzt við að gefa
sér mismunandi skýringar á úrslit
um sveitarstjórnakosninganna og
sigri Sjálfstæðisflokksins, allt eftir
því hvað bezt hentar viðkomandi
flokki, Þó geta hvorki þeir né aðrir
sagt með vissu. hvað réð atkvæði
hvers og eins kjósanda. og um það
má endalaust deila, hvað vó
þyngst — málefnastaða borgar-
stjórnarmeirihlutans eða
glundroðakenningin, afstaðan til
varnarmálanna eða óánægju út !
vinstri stjórnina.
En hverja svo sem menn velja
sér sem meginskýringu þá hefur
hvert þessara atriða og þau öll
samanlagt stuðlað að hinum mikla
kosningasigri Sjálfstæðisflokks-
ins.
Ef litið er á árangur Sjálfstæðis
flokksins annars staðar en !
Reykjavik þá er Ijóst, að glund-
roðakenningin ein sér eða mál-
efnastaða meirihlutans hafa ekki
ráðið úrslitum um almenna fylgis-
aukningu Sjálfstæðisflokksins. Af-
staðan til varnarmálanna er held-
ur ekki einhlít skýring. þegar
kosningar eru svo staðbundnar
eins og raun ber vitni um i sveitar-
stjórnakosningum.
Það verður að ieita enn annarra
skýringa. I þv! sambandi er vert að
minna á, að fyrir kjördag lögðu
stjórnarflokkarnir sérstaka
áherzlu á, að kosningarnar snerust
um meir en einstaka menn og
málefni sveitarstjórna. f Þjóð-
viljanum 15. ma! sl. sagði !
leiðara:
„Það þarf að hrikta ! þessu
musteri einkagróðaflokksins !
borgarstjórnarkosningum ! vor,
sigra þetta vigi Sjálfstæðisflokks-
ins og ryðja þannig braut fyrir
róttæka félagshyggjustefnu i
borgarmálefnum. Ef róttæk vinstri
stefna veltir ihaldinu úr borgar-
stjórn þann 26. ma! væri jafn-
framt rudd braut fyrir stórfellda
sigursókn Alþýðubandalagsins !
alþ.kosn. þann 30. jún!, þegar
fólkið hefur valdið til að velja
vinstri stefnu."
Þetta var tónninn ! málflutningi
stjórnarsinna fyrir kosningar.
En strax að loknum kosningum
kvað við annan tón. I sjónvarps-
viðtali 27. mai töldu þeir Ragnar
Arnalds og Ólafur Jóhannesson
það fjarstæðu að túlka úrslitin
sem vantraust á vinstri stjórnina.
Sé það rétt hjá þessum forystu-
mönnum stjórnarflokkanna, að
það sé fjarstæða að túlka fylgis-
aukningu Sjálfstæðisflokksins
sem vantraust á ríkisstjórnina —
þá er ekki nema ein skýring eftir
— hún er sú, að kjósendur séu að
flykkjast til Sjálfstæðisflokksins,
ef ekki vegna andúðar á vinstri
stjórninni, þá vegna ágætis Sjálf-
stæðisflokksins sjálf.
Sjálfstæðismenn geta ! sjálfu
sér vel unað við þá niðurstöðu.
Hitt er auðvitað hverju manns-
barni Ijóst, einnig stjórnarsinnum,
að hér hefur hvort tveggja haft
Eftir
áhrif, vanþóknunin á vinstri
stjórninni og tiltrúin á Sjálfstæðis-
flokknum. Það er enginn tilviljun,
að þegar vinstri stjórn situr að
völdum í landinu, skuli Sjálf-
stæðisflokkurinn vinna sina
stærstu sigra. Þær staðreyndir
tala sínu máli.
Þjóðviljinn kallar þetta sveiflu
til hægri án þess að skýra það
með öðru en upphrópunum um
ihald og einkagróðaflokk. Ólafur
Jóhannesson tekur undir með
Þjóðviljanum og talar um Sjálf-
stæðisflokkinn sem öfgaafl til
hægri til samanburðar við Alþýðu
bandalagið sem öfgaafl til vinstri.
Það má vera, að hér sé um að
ræða sveiflu til hægri, ef úrslitin
eru skoðuð út frá sjónarhóli
þeirra, sem yzt standa til vinstri.
En það er auðvitað fráleitt að
stimpla Sjálfstæðisflokkinn sem
öfgaflokk. Slíkt fjöldafylgi fær
enginn jaðarflokkur, hvort heldur
hann er til hægri eða vinstri. Sjálf-
stæðisflokkurinn nýtur fylgis sem
frjálslyndur miðflokkur og er í takt
við öfgalaus og eðlileg stjórnmála-
viðhorf venjulegs fólks.
Það er I Ijósi þessara einföldu
staðreynda, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn eykur fylgi sitt undir
vinstri stjórn. Fólk er að hafna
öfgum og óróleika á vinstri væng
stjórnmálanna. Það er að mót-
mæla þeim uppáþrengjandi vits-
munaverum, sem allt þykjast bezt
vita í sínum sósíaliska réttrúnaði.
Fólk er að svara fyrir sig.
Undanfarin þrjú ár hafa duglegir
athafnamenn setið undir stöðugu
aðkasti. Talað hefur verið um
,,borgarastétt" i lítilsvirðandi og
niðrandi merkingu. Hávaðasamir
minnihlutahópar hafa gerzt sjálf-
skipaðir talsmenn íslenzkrar
æsku. Vestrænt samstarf er haft
að háði og spotti.
Allt hefur þetta misboðið póli-
tískum viðhorfum og almennri
skynsemi alls þorra íslendinga,
hvar í flokki sem þeir standa að
öðru leyti. Það ætti enginn að
vanmeta venjulega skynsemi, sem
vill vera langlífur í valdastóli.
Kosningarnar 26. maí sl. veltu
ekki vinstri stjórninni. En vilji
kjósenda er Ijós. Ef sönn viðhorf
ráða ferðinni i alþingiskosningun-
um, þá þarf ekki að spyrja að
leikslokum.
isamt bæjarstjóranum og bæjarverkfræðingi.
Sjálfstæðisflokkinn, og meira að
segja miklu fleira en það, sem
kaus hann í sveitarstjórnakosn-
ingunum, jafnvel þótt hann fengi
rúman meirihluta atkvæðanna.
Þorri islendinga er sjálfstæðis-
fólk, og þess vegna gæti Sjálf-
stæðisflokkurinn vissulega farið
með meirihlutavald á Alþingi,
þótt litlar líkur séu raunar til þess
að svo fari á næstunni.
Meginmál
þingkosninganna
Meginmálið, sem barizt verður
um í þingkosningunum, verður að
sjálfsögðu það, hvort hér eigi
áfram að vera vinstri stjórn eða
ekki. Þegar menn taka afstöðu til
þeirra spurningar, hlýtur fyrst að
vakna í hugum hvers og eins,
hvort hann óski eftir því, að við
Íslendingar verðum áfram þátt-
takendur í varnarsamstarfi vestr-
ænna þjóða og skipum okkur á
bekk með lýðræðisþjóðunum eða
hvort landið verði gert varnar-
laust og við færumst með þeim
hætti inn á áhrifasvæði Ráð-
stjórnarríkjanna.
Enginn efi er á því, að ný
vinstri stjórn mundi láta varnar-
liðið hverfa af landi brott. For-
ustumönnum kommúnista yrði
ekki stætt á því í mörg ár til
viðbótar að sitja í vinstri stjórn,
án þess að varnarliðið yrði rekið á
brott.'Þetta veit Ölafur Jóhannes-
son, forsætisráðherra, fuilvel og
yfirlýsingar hans um áframhald-
andi vinstri stjórn grundvallast
þess vegna á þeirri afstöðu hans
að fylgja fram kröfunni um brott-
rekstur varnarliðsins. Auðvitað
ætlar Ölafur Jöhannesson sér
ekki að færa Island inn á áhrifa-
svæði Ráðsstjórnarrikjanna,
fremur en leiðtogar sambærilegra
flokka í núverandi leppríkjum
ætluðu sér að ofurselja lönd sín
heimskommúnismanum, þegar
þeir hófu samstarf við kommún-
ista og hröktust skref fyrir skref
undan þrýstingi þeirra.
Þeir, sem nú ráða ferðinni i
Framsóknarflokknum og hafa
hrakið frá framboðum þá menn,
sem vilja standa gegn því, að
landið verði gert varnarlaust, lifa
í þeirri barnslegu trú, að Rússar
séu orðnir svo góðhjartaðir, að
ekki hvarfli að þeim að leita eftir
ítökum hérlendis, þótt íslend-
ingar hætti þátttöku í varnarsam-
starfi lýðræðisþjóðanna. Þess
vegna sé óhætt að halda áfram á
þeirri braut, sem vinstri stjórnin
markaði sér með málefnasamn-
ingnum margrædda.
En þótt þessir forustumenn i
íslenzkum stjórnmálum séu svona
barnalegir, er ljóst, að mikill
meirihluti íslenzku þjóðarinnar
gerir sér grein fyrir raunveru-
leikanum í þessu efni. Það sanna
undirskriftir „Varins lands".
Auðvitað er ekki ástæða til að
ætla, að Rússar muni rjúka til á
fyrsta degi og senda hingað
herlið. Þeir vita vel, að það þurfa
þeir ekki að gera og þess vegna
ástæðulaust fyrir þá að skapa sér
óvild með slíkum aðgerðum. Þeir
hafa byggt upp hið gffurlega
flotaveldi sitt á Norðurhöfum í
þeim tilgangi að færa áhrifasvæði
sitt út á Atlantshaf. Þeir hafa
aukið þrýsting á Finnland og
Noreg. Finnar þurfa þegar að
bera undir ráðamenn í Kreml
mikilvægustu ákvarðanir sínar,
og þeir eru ekki einu sinni frjáls-
ir að því að stunda bókaútgáfu og
aðra menningarstarfsemi á frjáls-
ræðisgrundvelli, heldur banna
þeir þau listaverk, sem kynnu að
vera þyrnir í augum Rússa.
Norðmenn aftur á móti hafa
öflugar hervarnir og eru einn
virkasti aðilinn í Atlantshafs-
bandalaginu, sem er þeirra eina
vörn gegn ofureflinu. Og ísiand
er nú varið, að visu af fámennu
varnarliði, en með bakhjarl í öllu
herliði Bandaríkjanna og Atlants-
hafsrfkjanna allra, því að árás á
Bandaríkjaher á íslandi þýðir
árás á Bandaríkin sjálf.
ísiand er þess vegna sá
þröskuldur, sem Rússar komast
ekki yfir, er þeir Ieitast við að
færa áhrifasvæði sitt vestureftir
Atlantshafinu. ísland er óum-
deilanlega á áhrifasvæði vestur-
veldanna, meðan héreru hervarn-
Kosið
um varnarmál
Ef Ísland verður gert varnar-
iaust, gera Rússar sér auðvitað
lítið fyrir og flytja flotaveldi sitt
vestur fyrir landið, og allt um-
hverfis okkur gæfi þá að lita
bryndreka þessa herveldis, en
neðansjávar mörruðu kafbátarnir
og í háloftunum þeyttust þot-
urnar fram og til baka. Þetta veit
og skilur hvert mannsbarn, sem á
annað borð opnar einhvern tima
augu sín. Og um það verður kosið
á þjóðhátíðarári, hvort islend-
ingar sjálfir vilja leiða yfir sig
þessar aðstæður eða ekki.
Kommúnistar halda þvf stund-
um fram, að í síðustu þingkosn-
ingum hafi verið kosið um varnar-
málin og meirihluti islenzku
þjóðarinnar hafi þá lýst því yfir,
að hann væri fylgjandi því. að
Ísland yrði gert varnarlaust.
Þetta eru hrein ósannindi.
Varnarmálin bar naumast á góma
í sfðustu þingkosningum, enda
lýstu núverandi stjórnarflokkar
þvi yfir að kosningunum afstöðn-
um, að landhelgismálið hefði fært
þeim sigurinn. I komandi kosn-
ingum, hinn 30. júni, verður hins
vegar svo sannarlega kosið um
varnarmál. Þeir, sem vilja
tryggja, að hér verði áfram varn-
ir, hljóta að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn, þvi að hann er eini
flokkurinn, sem hefur ekki
hvikað í því efni og mun ekki gera
landið varnarlaust á meðarí hætta
er á þvi, að það hverfi þá á bak við
járntjald.
Efnahags-
öngþveitið
En þótt varnarinálin. sjálf sjálf-
stæðismálin, verði auðvitað efst i
huga manna á kjördegi er fleira,
sem um verður barizt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
einn flokka lýst þvi yfir, að hann
vilji þegar i stað færa landhelgina
út i 200 mílur, og mun láta
ákvörðun í því efni verða sitt
fyrsta verk, ef hann hefur forustu
um stjórnarmyndun, og ekki Ijá
máls á að mynda stjórn með nein-
um þeim, sem ekki vill taka af
skarið í þessu efni.
Þriðja aðalmál kosninganna
verður svo að sjálfsögðu efna-
hagsmálin. Stjórnarherrarnir
hafa nú sjálfir lýst ástandinu í
efnahagsmálum með þeim hætti,
að hér sé yfirvofandi 50% gengis-
lækkun, að atvinnuvegirnír séu
að stöðvast og viðtækt atvinnu-
leysi sé á næsta leiti. nema mjög
róttækar ráðstafanir vei'ði gerðar
i efnahagsmálum. Þeir segja, að
þær ráðstafanir, sem þegar hafa
verið framkvæmdar eða boðaðar
voru með frumvarpi þvi, sem
ríkisstjórnin lagði fram um svo-
nefnt viðnám gegn verðbólgu.
hafi aðeins verið bráðabirgðaráð-
stafanir, svo að svigrúm skapaðist
til víðtækari aðgerða.
Þessi vinstri stjórn hefur þvi
með nákvæmlega sama hætti og
vinstri stjórnin. sem hrökklaðist
frá 1958. lýst því yfir, að efna-
hagslífið sé komið i algjört öng-
þveiti. Hermann Jónasson baðst
að vísu lausnar eins og vera bar.
þegar svo var komið, en Ölafur
Jóhannesson berst um á hæl og
hnakka, þótt viðskilnaður hans sé
að sjálfsögðu. ehnþá verri heldur
en viðskilnaður fyrri vinstri
stjórnar.
En þrotabú stjórnar Ölafs
Jóhannssonar mun fólkið gera
upp hinn 30. júni.