Morgunblaðið - 09.06.1974, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JUNÍ 1974
31
Ester Sigurbjörns-
dóttir — Minning
ESTER Sigurbjörnsdóttir á Borg
lézt 31. maí sl. Það er oft erfitt að
sætta sig við orðinn hlut og þá
ekki sízt þegar staðið er frammi
fyrir óvæntum umskiptum lífs og
dauða.
Ester var fædd á Geitagili í
Örlygshöfn við Patreksfjörð 14.
febrúar 1923. Foreldrar hennar
voru Ólafía Magnúsdóttir frá
Hnjóti og Sigurbjörn Guðjónsson
bóndi á Geitagili og sfðar í Hænu-
vík. Var hún ein af 12 börnum
þeirra hjóna. Eru nú aðeins fimm
þeirra lifandi.
A unglingsárum sinum var Est-
er fremur heilsuveil og var því
send hingað suður 16 ára gömul.
Hún var þá m.a. á Vifilstaðahæli
um nokkurt skeið. Um tvítugsald-
ur hafði hún fengið þann bata
sem dugði henni æfilangt og
a.m.k. seinni helft æfinnar var
ekki hægt að merkja annað en að
hún gengi alheii til allra starfa.
Hún var prýðilega verki farin,
kappsöm, vandvirk og listfeng,
eins og heimili hennar bar
gleggstan vott um.
Um áramótin 1948—9 giftist
hún Gunnlaugi Þorsteinssyni bif-
vélavirkja, ágætum manni af
Laxamýrarætt. Næstu 10 árin
bjuggu þau í Reykjavfk eða þar til
þau fluttust að Ormsstöðum í
Grímsnesi vorið 1958 og hófu þar
búskap, en til þess hafði hugur
beggja jafnan stefnt. Við sveitar-
búskapinn voru þau vel samhent
eins og í öðru og fengu þar meiri
lifsfyllingu en þeim hafði áður
hlotnast. Eftir fjögurra ára bú-
skap á Ormsstöðum fluttust þau
að Minni-Borg og bjuggu þar
næstu árin. Vorið 1966 tóku þau
við rekstri félagsheimilisins Borg
í Grímsnesi, og hafa háft veg og
vanda af rekstri þess síðan við
almennar vinsældir og vaxandi
álit. Lagði Ester allan metnað
sinn i velfarnað þessa félagsheim-
ilis og að vegur þess yrði sem
mestur.
Að eðlisfari var Ester félags-
lynd og naut góðra samskipta við
vini sína og samvistarmenn. Hún
var söngelsk og lét sig miklu
skipta kirkjusöng sveitar sinnar. I
kvenfélaginu var hún virkur þátt-
takandi og lét sig velgengni þess
miklu varða. Einhver afskipti
mun hún hafa haft af fleiri félags-
málum þótt mig bresti kunnug-
leika til að geta þess sérstaklega.
En það veit ég að þar hefir hún
alltaf verið liðtæk í bezta lagi.
Ester var fríð sínum, fíngerð og
fjaðurmögnuð í öllum hreyfing-
um; og þaðsemöðru framar mark-
aði svipmót hennar vár léttleiki
geðsins og sú lífsorka scm virtist
geisla út frá henni. I návist henn-
ar var jafnan andblær hreinleika
og hispursleysis.
Þau hjónin voru mjög sam-
rýmd, áttu mörg sameiginleg
áhugamál og voru samtaka um
flest sem til velfarnaðar mátti
verða. Nú er sú ein bót í böli og þó
sérstaklega manni hennar og dótt-
ur þeirra, að endurminningarnar
um hana eru allar á einn veg,
ljúfar og kærar.
Guðm. Þorláksson.
Hún var fædd 14. febrúar 1923,
en lé7,t 31. maí sl. og var því
rúmlega 51 árs að aldri.
Arið 1948 giftist hún eftirlif-
andi manni sínuin, Gunnlaugi
Þorsteinssyni. Þau bjuggu fyrst
nokkur ár í Reykjavík, en fluttust
síðan í Grimsnesið og bjuggu
fyrst á Ormsstöðum í félagi við
bróður Gunnlaugs, Garðar Þor-
steinsson, i 4 ár. Síðan fluttust
þau að Minniborg og voru þar í 4
ár. Þeim búnaðist vel og voru
samhent i öllum verkum. enda
maðurinn mjög útséður og vinnu-
gefinn.
Arið 1966 bauðst þeim húsvarð-
arstaða við félagsheimilið Borg í
Grímsnesi, sem þau tóku að sér.
Það sýndi sig fljótt, að þarna var
frúin á réttum stað, það var alveg
sama hvar á var litið. bæði í íbúö-
inni og samkomuhúsinu, allt bar
vott um sérstaka snyrtimennsku
þeirra hjóna og var til fyrirmynd-
ar. Vár þó oft ekki álitlegt að
þrífa húsið eftir böll og ýmsar
samkomur.
Nú virtist allt leika i lyndi hjá
þessum hjónum, maðurinn hafði
skapað sér nokkuð góða atvinnu
auk húsvarðarstarfsins og efni og
afkoma mjög góð; gátu þau þvi
brugðið sér ef svo bar undir og
stóð nú til að fara í ferðalag til
Noregs með bændaför þangað, 12.
júní næstkomandi.
Hinn 14. f.mánaðar fóru hjónin
til Reykjavikur og bjuggust við að
koma um kvöldið, en þá veiktist
frúin og var flutt á sjúkrahús og
þó að þar væri allt gert henni til
bjargar dró að því, sem verða
vildi, hún lézt þar 31. f.m.
Þó að þetta sé sú ferð, sem við
eigum öll eftir að fara, datt mér
sízt i hug, að þetta væri í síðasta
sinn sem ég sæi hana i þessu lifi,
þar sem hún veif'aði mér úr bíln-
um. Það er stundum gott að vita
ekki lengra fram í tímann.
Nú við leiðarlok hennar vil ég,
sem þessar línur skrifa, ekki láta
hjá líða að þakka fyrir þau kynni
og samverustundir, sem ég hef átt
með þessari konu og manni henn-
ar þau ár, sem við höfum búið í
nágrennini. Þar var oft skipzt á
græskulausu gamni, sem einbúa
kom sér stundum vel að vera að-
njótandi.
Með þessum fátæklegu linum
vil ég aðeins kveðja þessa góðu
konu og óska henni allra heilla
við vistaskiptin, sem mér finnst
að hefðu mátt dragast um nokkur
ár í viðbót.
Eg vil og með þessuin línum
óska öllúm skyldmennum hinnar
látnu alls hins bezta með kærri
þökk til þeirra, sem ég hef
kynnzt, og veit, að þau eiga bjarta
minningu um hana.
Að síðustu vil ég flytja eigin-
manni og dóttur mína dýpstu sam-
úð við fráfall góðrar konu og móð-
ur. Eg stóð í sömu sporum fyrir 10
árum og fer því nærri um það
ásand, setn ríkir nú i hugum ykk-
ar, en verið viss um það, að sá,
sem öllu ræður, græðir sárin og
þið munuð finnast siðar, þar sem
engar þrautir eða þjáningar ríkja.
A. Einarsson.
Hún Esther hans Gulla er dáin.
Eg staldra við þessi orð og reyni
að átta mig á þeim rökum til-
verunnar, sem gera þau að veru-
leika. Sorg er safn tilfinninga,
saknaðar, tómleika og máttvana
reiði, vegna þess að vinir eru
hrifnir burt frá okkur án þess að
við fáum við ráðið. Við skiljum
ekki af hverju kona á bezta aldri
þarf að kveója lífið, meðan hún á
svo mörgu ólokið að okkar dómi.
Eg byrjaði þessi kveðjuorð með
því að segja-,,Hún Esther hans
Gulla", en þannig var Esther
gjarna auðkennd af okkur, frænd-
fólki Gunnlaugs eiginmanns
hennar. Að nokkru leyti var
ástæðan ef til vill sú, að fleiri
einstaklingar í fjölskyldunni báru
nafnið Esther, en ég held einnig,
að það hafi verið hið innilega og
nána samband, sem var milli
þeirra hjóna, sem olli því, að nöfn
þeirra voru svo oft nefnd saman
til auðkennis.
Ég kynntist Esther fyrst sem
stráklingur, er hún sumarið 1947
Framhald á bls. 41
LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800
VIÐ HÖFUM TEKIÐ UPP:
FÖT MEÐ VESTI, RÖNDÓTT, EINLIT, LJÓST DUNIGAL TWEED,
FALLEGIR LITIR ÞAR Á MEÐAL LJÓSIR SUMARLITIR □ MJÖG
FALLEGA STAKA SPORTJAKKA □ BOLI QSTUTTERMA JERSEY
SKYRTUR í FALLEGUM LJÓSUM LITUM □ TERELENE & ULLARBUX-
UR MJÖG FALLEGIR LITIR □ MJÖG GOTT ÚRVAL AF LÉTTUM
SKYRTUM MYNSTRUÐUM OG EINLITUM.
LÆKJARGÖTU 2 SÍMI 21800