Morgunblaðið - 09.06.1974, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚNI 1974
Nýtt töskuúrval í björtum sumarlitum
HANZKABÚÐIN
Otrúlegt litaúrval
Nýjar innkaupatöskur
í mörgum litum
Ótrúlegt ferðatösku-
úrval á mjög góðu
verði
Sendum í póstkröfu
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 7 — SÍMI 15814 — REYKJAVÍK
VIÐ ÆTLUM SAMAN
I sumarleyfið. Við ætlum hringveginn um-
talaða og notum SPRITE-hjólhúsið okkar
Þannig erum við óháð og frjáls, og
getum dvalið þar sem okkur lystir. Fyrsti
áningarstaðurinn verður nálægt Skógafossi,
næsti hjá Kirkjubæjarklaustri og svo 2—3
daga í Skaftafelli. Lengra nær áætlunin
ekki. Húsið okkar er með ofni, tvöföldum
rúðum og vel einangrað. Svefnplássi fyrir 4
og salerni. Við erum þannig vel undirbúin
undir misjafna veðráttu.
Hefur þú íhugað möguleikana fyrir þig og
þína fjölskyldu I sumar. Þú getur byrjað
með að fá allar upplýsingar um verð og
gæði hjá Gunnari Ásgeirssyni h.f.
/
'unnai <S$ógettóóon k.f.
Suðurlandsbraut 16 - Sími 35200 - Glerárgata 20 Akureyri - Sími 22232
Verksmiðjuútsala
Vegna flutnings á prjónastofunni verða allar
vörur seldar á ótrúlega lágu verði. Opið frá kl.
9 — 6.
Prjónastofa Kristínar,
Nýlen'fugötu 10.
Tilkynning
um ferðastyrki til Bandarikjanna
Menntastofnun Bandarikjanna á fslandi (Fulbrightstofnunin) tilkynnir
að hún muni veita ferðastyrki íslendingum er fengið hafa inngöngu i
háskóla eða aðrar æðri menntastofnanir i Bandarikjunum til framhalds-
náms á námsárinu 1974—75. Styrkir þessir munu nægja fyrir
ferðakostnaði frá Reykjavik til þeirrar borgar, sem næst er viðkomandi
háskóla og heim aftur.
Umsækjendur um styrki þessa verða að vera íslenzkir rikisborgarar og
hafa lokið háskólaprófi, annað hvort hér á landi eða annars staðar utan
Bandarikjanna. Með umsóknum skulu fylgja afrit af skilrikjum fyrir því,
að umsækjanda hafi verið veitt innganga i háskóla eða æðri
menntastofnun i Bandaríkjunum. Einnig þarf umsækjandi að geta sýnt,
að hann geti staðið straum af kostnaði við nám sitt og dvöl ytra, og
sýna heilbrigðisvottorð.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu Menntastofnunarinnar Nes-
vegi 16, 1. hæú, sem er opin frá 1—6 e.h. alla virka daga nema
laugardaga. Umsóknirnar skulu sendar I pósthólf stofnunarinnar nr.
71 33, Reykjavík, fyrir 1 5. júni 1 974.
Námsstyrkur við
Kielarháskóla
Borgarstjórnin í Kiel mun veita íslenzkum
stúdent styrk til námsdvalar við háskólann þar í
borg næsta vetur, að upphæð DM 650.— á
mánuði í 10 mánuði, frá 1. okt. 1974 til 31.
júlí 1 975, auk þess sem kennslugjöld eru gefin
eftir. Um styrk þennan geta sótt stúdentar, sem
hafa stundað háskólanám í a.m.k. þrjú misseri.
Umsækjendur verða að hafa nægilega kunn-
áttu í þýzku. Umsóknir skal senda skrifstofu
Háskóla Islands eigi síðar en 30. júní n.k.
Umsóknum skulu fylgja vottorð a.m.k. tveggja
manna um námsástundun og námsárangur og
a.m.k. eins manns, sem er persónulega
kunnugur umsækjanda. Umsóknir og vottorð
skulu vera á þýzku.
SKYNDISALA — Stórlækkað verð á:
rýamottum 100% ull — margar gerðir og á nokkrum
tegundum af ullarteppum 80% ull og 20% nylon
Verð aðeins kr. 2.200,oo pr. fm.
Aöeins á mánudag og þriðjudag kl. 9-6
FRIÐRIK BERTELSEN,
Lágmúla 7, sími 86266