Morgunblaðið - 09.06.1974, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JUNÍ 1974
Sjö sögur af Villa Rudolf O. Wiemer
„Þannig er málið nefnilega vaxið, að hefði ég ekki
átt einn eyri í upphafi, hefði ég aldrei orðið ríkur
maður.“ Kristófer fleygir frá sér krítinni og stikar
fram og aftur um gólfið. Rósótti sloppurinn sveiflast
um mjóa fætur hans. Vesalings Kristófer ríki er
alveg í öngum sínum.
Kókospálminn er mikil nytjajurt þegar allt kemur
til alls. Það er eiginlega bæði hægt að éta pálmann og
drekka, a.m.k. er hann ætur og drekkandi í augum
innfæddra, sem borða kókoshneturnar og drekka
mjólkina úr þeim. En kókospálminn gefur líka svo-
nefnda pálmaolíu, sem notuð er til sápugerðar, sem
ljósmeti og til smjörlíkisframleiðslu svo nokkuð sé
nefnt.
Villi þreifar ofan í vasa sína. Fyrst í ytri vasann
hægra megin. Síðan í innri vasann vinstra megin.
Hann fer úr hempunni sinni og hristir hana.
Þá dettur peningur á steingólfið svo klingir í. Villi
beygir sig. Hann gengur til Kristófers og segir:
„Svona, hættið nú þessum hlaupum. Það er hreint
óþolandi að horfa á þetta. Hérna er þessi eyrir sem
vantar.“
„Þér eruð göfugmenni,“ segir Kristófer.
„Nei, ég er ræningi.“
„Það skiptir engu,“ segir Kristófer. „Ekki sést það,
á peningunum hvaðan þeir koma. Lofið mér að
faðma yður.“
„Mig langar bara aö biðja yður um smávegis
fyrst,“ segir Villi.
„Velkomið. . . það má bara ekki kosta neitt.“
„Ég ætla að biðja yður að reka ekki geithafurinn
úr vistinni heldur lofa honum að vera og gefa honum
ögn meira að éta.“
Kristófer stynur við. „Jæja, jæja. Ég vildi samt
óska, að hann gæti gefið af sér mjólk.“
„Það er til of mikils mælzt. Þér hljótið að skilja
það.“
„Ég vil helzt skilja sem minnst. Samt ætla ég að
launa yður greiðann.“
Villi hugsar: Jæja, þarna kemur það. Nú gefur
hann mér það, sem ég vil fá, svo ég þarf engu að
stela.
„Þér megið fylla báða lófana af gullpeningum,"
segir Kristófer „og láta...“.
„Og hvað?“
„Og láta þá svo falla niður í pokann aftur.“
„Til hvers?“
„Svo þér fáið að finna, hvernig það er að hafa
fullar hendur fjár. Væri það ekki gaman?“
Villi starir steini lostinn á nirfilinn. Hárin rísa
undir hattinum hans. „Nei,“ öskrar hann. Hann er
skyndilega orðinn hræddur við þennan Kristófer.
Hann hopar burt, stingur byssunni sinni í beltið og
hleypur eins og fætur toga út úr kjallaranum.
„Hvernig fór?“ spyr geithafurinn. „Tókst þér að
hræða hann?“
„Nei, ég varð hræddur við hann.“
„Já, en þér væri fyrir beztu að koma þér burt.“
£JVonni ogcTVfanni Jón Sveinsson
Freysteinn
Gunnarsson
þýddi
heim4", sagði Manni. „Ættum við ekki að fara að
leggja af stað?“
Eg var líka farinn að ókyrrast.
„Jú, Manni“, svaraði ég. „Það er bezt að halda af
stað lieim undir eins. Það er bráðum komin nótt. Við
verður að ríða liart“.
Við stukkum báðir á fætur. Ég leysti hestinn, og
nú reis liann undir eins á fætur, þegar ég klappaði
honum og talaði vinalega við liann.
Síðan klifruðum við báðir á bak og hleyptum á.
sprett heimleiðis.
Trvggur hljóp geltandi á undan.
Og Manni liélt sér yfir um mig með báðum höndum.
Þegar við komum í námunda við gljúfrið, þar sem
mig hafði sundlað mest áður, fór Tryggur allt í einu
að urra. Hesturinn ókyrrðist, reisti eyrun og nam svo
staðar.
„Nonni“, kallaði Manni, „nú mætum við tuddanum
aftur.
Snúðu við fljótt“.
Litlu síðar lieyrðum við drynjandi öskur, og nú
sáum við óhræsið koma upp úr dálítilli laut skammt
fyrir framan okkur.
Hesturinn varð dauðhræddur, sneri við í snarkasti
og tók sprettinn upp brekkuna aftur.
Nautið dróst fljótt aftur úr. Það var engin hætta
á, að það næði í okkur aftur.
En hvað áttum við nú að taka til bragðs? Þetta
villidýr varði okkur veginn heim.
„Hvenær getum við komizt heim?“ spurði Manni
kvíðafullur.
„Eg veit ekki“, svaraði ég. „Ég er hræddur um,
að við komumst ekki heim í dag“.
Manni þagnaði við, og ég hafði heldur ekkert að
segja.
Við héldum áfram reiðinni yfir liolt og hæðir, laut-
ir og lægðir og framhjá gjótum og sprungum. Ýmist
lá leiðin yfir sandöldur eða grjóturð, mosaflesjur og
..............*.............-
mcÓtnorgunkoffinu
U' 1-1-Í+.
— Kg ætladi bara a<) fá niinni-
háttar lán —... og hérna er
áhvrgrtarmarturinn. .. .
Kg tek þennan....
GU5T0MS
ZOLL
DOUANE
l35fa
WENír