Morgunblaðið - 07.10.1986, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1986
49
Stiömu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag ætla ég að fjalla um
samband Vogar (23. sept. —
20. okt.) og Bogmanns (22.
nóv. — 21. des.). Einungis
er flallað um hið dæmigerða
fyrir sólarmerkið og eru les-
endur minntir á að hver
maður á sér nokkur stjömu-
merki. Því hafa aðrir þættir
einnig áhrif hjá hveijum og
einum.
Samúö
Á milli þessara merkja ríkir
ákveðin samúð og er grund-
völlur fyrir samstarf og
uppbyggilega samvinnu góð-
ur. Bæði merkin eru opin,
jákvæð og félagslynd og lítið
fyrir að velta sér upp úr nei-
kvæðari hliðum tilverunnar.
Þar sem visst eirðarleysi er
einkennandi fyrir bæði, og
þá sérstaklega Bogmanninn,
þarf samband þeirra ekki að
vera langlíft. Töluverðar
líkur eru á að þau eigi góðan
tíma saman, en skilji síðan
ef daglegur veruleiki verður
of þrúgandi.
Fjölbreytileiki
Þegar við tölum um að merki
séu eirðarlaus verðum við að
hafa í huga að aðstæður við-
komandi skipta máli. Ef t.d.
Bogmaður er í starfí sem er
fjölbreytilegt og veitir honum
útrás fyrir hreyfíngarþörf og
forvitni, minnkar eirðarleysið
og hann getur hæglega verið
stöðugur í ást. Ef daglegt líf
er hins vegar í föstum skorð-
um aukast líkumar á því að
hann leyti útrásar fyrir
spennuþörfína á öðrum svið-
um og þá m.a. í ástamálum.
FerÖalög
Mikilvæg forsenda fyrir að
samband Vogar og Bog-
manns geti gengið vel og
varað er að aðstæður gefi
þeim kost á að ferðast og
stunda Iifandi félagslíf. Því
er æskilegt að þau stundi
fjölbreytileg störf og hafí
góða afkomu.
Frelsi og
samvinna
Það sem helst skilur á milli
er að Vogin er fædd sam-
vinnumanneskja en Bog-
manninum er frelsi í blóð
borið. Um einhveija árekstra
getur því verið að ræða varð-
andi það hvar mörkin iiggja
milli frelsis og samvinnu.
Heimspeki og
listir
Ef báðir aðilar hafa náð að
þroska það besta f eðli sínu
má segja að þetta sé sam-
band listunnandans eða
listamannsins og heimspek-
ingsins. Vogin er fagurkeri
og Bogmaðurinn er oft vfför-
ull og vfðlesinn og hefur góða
yfirsýn yfír hin fjölbreytileg-
ustu mál.
Menningar-
heimili
Þegar um er að ræða að þessi
merki stofna til heimilis, má
búast við að það sé gest-
kvæmt, menningarlegt og
lifandi.
Lífogjjör
Hjá yngra fólki í þessum
merkjum einkennist sam-
bandið líkast til af ferðalög-
um, mörgum vinum,
samkvæmum og umræðum
um margvísleg málefni.
Lifandi merki
Eins og við sjáum á framan-
töldu eru þessi merki hress
og lifandi. Hressleiki Vogar-
innar birtist á rólegan og
tillitssaman hátt. Bogmaður-
inn er aftur á móti ærslafeng-
inn og ákaflega hreinn og
beinn.
X-9
SjVff f JtouKÆrr*/
s1Sr7-Srs£-/<'/& &£&&/
[ ©KFS/Distr. BULLS
GRETTIR
/|?£TTA ero
/V1ATARALKSLÝ&- <
IKiGAI?
TOMMI OG JENNI
r-
i-JL V e 1 ^ ** Atl
UÓSKA
i . Iir rr.v... r—JT — fl
FERDINAND
LZ 1 " Ifcr-s^ .1 Tr r
SMÁFÓLK
I have TO U)RITE a
REPORT FOR SCHOOL ON
THE SECRET OF LIFE...
CAN VOU 6IVE ME
SOME 5U66E5TION5 ? ®
'JL^7 ^
TURN OFF APPLlANCES
UJHEN NOT IN U5E, FORM
CAR POOL5 ANP PEFR05T
FOOPS BEFORE C00KIN6
Ég á að skrifa skólastíl Geturðu gefið mér ein-
um leyndardóma hveijar hugmyndir?
lífsins ...
Slökkvið á rafmagns- Ég verð að spyrja ein-
tækjum þegar þau eru hvern nnnnn
ekki i notkun, sláið sam-
an um að nota einn bil í
vinnuna og þiðið matvæli
fyrir suðu.
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Gamla svissneska kempan,
Jean Besse, sveið góðvini sína
frá Bandaríkjunum, Edgar Kapl-
an, ritsfjóra The Bridge World,
og Norman Kay, í keppninni um
Rosenblum-bikarinn f sfðasta
mánuði. Besse hélt á spilum
suðurs og var sagnhafí í 4 spöð-
um:
Vestur gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ Á4
VD652
♦ KG542
♦ Á5
Norður
♦ 865
♦ ÁKG73
♦ 87
♦ K84 *
Austur
♦ DG3
♦ 104
♦ 1093
♦ G10763
Suður
♦ K10972
♦ 98
♦ ÁD6
♦ D92
Félagi Besse er samlandi
hans, Catzefílis.
Vestur Norður Austur SuAur
Kay Catz. Kaplan Bessc
1 tígull 1 hjarta Pass 1 spaði
Pass 2 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Kay leist ekki á að spila út
frá háspilum sfnum í hliðarlitun-
um, og byijaði á því að taka
spaðaás og spila meiri spaða.
Sem er ágæt byijun fyrir vöm-
ina.
Besse drap gosa Kaplan með
kóng og svfnaði strax hjarta-
gosa. Tók svo hjartaás og spilaði
litlu hjarta, vildi ekki treysta á
að liturinn brotnaði 3—3.
Kaplan henti laufí og Besse
trompaði. Spilaði svo laufi á
kóng blinds. Kay dúkkaði. Síðan
kom hjartakóngur. Kaplan
trompaði og Besse henti tígli.'
Kaplan spilaði auðvitað tfgli, en
Besse fór upp með ásinn, læddi
sér inn á blindan á spaðaáttuna
og henti tfguldrottningunni nið-
ur í fríhjartað. Allt hafði gengið
fram að áætlun til þessa, en
bjöminn var ekki unninn enn.
Kay varð að eiga Iaufásinn
blankan eftir. Bessi spilaði litlu
laufi frá báðum höndum, og
þegar ásinn kom í gat hann lagt
upp.
Þetta kallar maður að láta
tilfinninguna ráða ferðinni. Eða
hversu margir hefðu ekki frekar
spilað upp á hjartað 3—3?
Umsjón Margeir
Pétursson
Á unglingamóti í Sovétríkjun-
um í vor kom þessi staða upp 1
skák E. Ragozin, sem hafði
hvítt og átti leik, og Kuporosov.
Svartur hótar máti á g2 og
virðist hafa töglin og hagldira-
ar, en hvítur fann leið til að tefla
vöm og sókn í senn: 44. Re4! —
fxe4, 45. d7 — Bxf4+ (Eina
leiðin til að hindra hvftan S að
vekja upp) 46. Bxf4 — Hdl, 47.
Dd8+ - Kg7, 48. Df6+ _
Kg8, 49. Bh6 og svartur gafst
upp. Ragozin þessi sigraði á
mótinu, ekki veit ég hvort hann
er skyldur stórmeistaranum
Ragozin, sem var aðstoðarmað-
ur hjá Botvinnik á sjötta ára-
tugnum og blés m.a. vindlareyk
framan f heimsmeistarann til að
æfa hann fyrir að tefla í þungu
lofti.