Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Page 60
66
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands.
því í mun að bæta sem allra fyrst það böl og græða
þau sár, sem veturinn hafði eftir skilið. Sólin skein dag
eftir dag á trjákrónurnar, en trjen voru sein á sjer að
laufgast, því frost var mikið í jörðu og margur sprotinn
mun þá hafa visnað, vegna þess að trjeð náði ekki
nægilegu vatni úr frosinni jörðinni.
Pó vorið kæmi snemma og lofaði góðu, þá varð
reyndin sú, að sumarið var óvenju kalt. Ársvöxtur
trjánna var því lítili sem sjá má af meðfylgjandi töflu.
Lengd árssprotanna Mest j| Meðaltal
Oreni 26 cm. 15 cm.
Siberiskt greni 21 - 14 -
Fjallafura 25 - 12 -
Skógfura 23 - 13 -
Sembrafura 7 - 5 —
Reynir 23 - 10 -
Silfur-reynir 18 - 7 -
Heggur 52 - 42 -
Þyrnir 62 - 38 -
Birki 22 - 6 -
Gullregn 75 — 36 -
Hlynur 55 - 30 -
Lerki 14 - 9 -
Rauðblaðarós 105 — 50 -
Trjáfræi var sáð snemma í júní af birki, reyni, greni
og furu. Lerkafræ var ekki hægt að útvega í ár. Birki-
fræ spíraði mánuði eftir að því var sáð, greni og fura 6
vikum. Sáðbeðin voru vökvuð einu sinni í viku með á-
burðarvatni og tvisvar í viku með hreinu vatni, ef þurk-
ar gengu.