Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Page 73
Vatnsvirki
(i siuttu ágripi).
Eftir
Loft Rögnvaldsson.
Frá alda öðli hefir vatnið verið nauðsynlegasta iífsskil-
yrðið í náttúrunni, fyrir menn og málleysingja. Þessi nauð-
syn vekur þó litla athygli í daglegri þörf okkar mannanna,
en aftur á móti hefir grasið okkar oft brostið nægilegt
og gott vatn, þrátt fyrir úrkomur og hráslagalegt loftslag.
Vatnið hefir vætlað yfir landið, vatnið hefir streymt yfir
landið og gert ásjáleg kraftaverk á kjarngróðrinum.
Ár og lækir streyma frá jöklum og vötnum á fjöllum
uppi. í vorleysingunum brunar vatnið óbeislað áfram,
beljar yfir bakka, fen og flóa og flytur jarðveginum áburð
og grasinu næringu.
Áhrif vatnsins sjáum við Ijósast meðfram öllum stærri
vatnsföllum hjer á landi.
Hvergi á Norðurlöndum finnast frjósamari hjeruð en
bestu sveitir, hingað og þangað um land alt, þar sem ár
og vötn fara yfir í flóðum.
En þótt við höfum hlotið meira af þessari drottins gjöf
en flestir aðrir, höfum við fært okkur hana skammarlega
lítið í nyt og látið vatnsföllin bera ógrynni af ábtirði beint
í sjóinn, án þess að handsama nema örlítinn hluta hans,
til ræktunar landsins.