Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Page 101
Samtíningur.
1. Framsýni.
Hjá nágrannaþjóðum okkar finnast þess dæmi að góð-
ir bændur hafa samið áætiun um jarðabætur og látið
gera teikningu af þeim mannvirkjum, sem þeir álitu heppi-
legast að láta gera á ábýlisjörð sinni. Þessi gögn fylgja
síðan jörðunni.
þar sem jörðin er óðalseign og ættmenni búa á henni
eitt eftir annað, verður þetta til þess að fast samræmi
kemst í verkin, sem unnin eru, og einn þarf síður að
rífa það upp sem annar byggir.
Menn bera alment virðingu fyrir ákvörðunum og vilja
þeirra sem látnir eru, og það þess meir sem störf þeirra
hafa betur hepnast.
Nokkrir leggja fje í sjóð, sem verja skal til ákveðins
fyrirtækis, jörðinni til bóta, þá hann er orðinn svo stór,
að það sje hægt.
Þannig leggur einn eftir annan fje á vöxtu, ef um stór
fyrirtæki er að ræða.
Á þennan hátt komast í framkvæmd hinar varanleg-
ustu og dýrustu jarðabætur og húsabyggingar.
Væri þetta gert hjer heima, mundi margt kotið þok-
ast um set og færast upp í röð höfuðbólanna.