Morgunblaðið - 09.03.2007, Side 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 FÖSTUDAGUR 9. MARS 68. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 200 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
NA 10–15 m/s og
snjókoma á Vest-
fjörðum, annars S
og SV 8–15, skúrir eða él, og
stormél á SA-landi. Þurrt að
mestu NA-lands. » 8
Heitast Kaldast
6°C -1°C
SVIFRYK á Akureyri reyndist mun meira
fyrstu tvo mánuði ársins en reiknað var
með. Þrif gatna í bænum hafa verið stór-
aukin frá áramótum en engu að síður hef-
ur svifryk þegar farið yfir heilsuvernd-
armörk 13 daga – 57% þess dagafjölda
sem leyfilegur er á árinu.
„Þetta eru sláandi tölur og málið mjög
alvarlegt,“ sagði Jón Birgir Gunn-
laugsson, verkefnisstjóri umhverfismála
hjá Akureyrarbæ, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Markvisst er stefnt að því
að draga úr svifryki hvarvetna og færri
dagar eru leyfilegir yfir heilsuvernd-
armörkum í ár en í fyrra skv. reglugerð.
„Leyfilegir dagar“ yfir mörkum eru ein-
ungis 23 á þessu ári. Svifryk er mælt í
míkrógrömmum á rúmmetra á sólar-
hring. Fyrstu tvo mánuðina mældist það
hæst 281 og fór þrisvar yfir 200. Mælt er á
horni Glerárgötu og Tryggvabrautar.
Til samanburðar má nefna að allt árið
2006 og það sem af er þessu fór ekkert
sólahringsgildi yfir 200 í Reykjavík.
Líklegt er að framkvæmdadeild Ak-
ureyrarbæjar leggi það til við bæjaryf-
irvöld að reynt verði að rykbinda götur
með magnesíumklóríðblöndu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Svifryk Glerárgatan er Íslandsmethafi.
Enn eykst
svifrykið
„Sláandi tölur“ fyrstu
mánuðina á Akureyri
EIGI Straumur-Burðarás að ná markmiðum
stjórnar um að verða alþjóðlegur banki verður
hann að hafa frelsi til að ákvarða sjálfur um sín
mál, ekki síst í hvaða gjaldmiðlum hann telur
hagstæðast að stunda viðskipti. Kom þetta fram
í máli stjórnarformanns bankans, Björgólfs
Thors Björgólfssonar, á aðalfundi bankans í
gær. „Víða þætti slíkt frelsi sjálfsagður hlutur.
Engu að síður hefur á Íslandi borið á gagnrýni á
ákvarðanir Straums-Burðaráss. Heyrst hafa
raddir um að takmarka þurfi frelsi fjármálafyr-
irtækja og í framhaldinu hafa stjórnvöld með
undarlegum hætti brugðið af leið aukinnar al-
þjóðavæðingar og viðskiptafrelsis,“ sagði
Björgólfur og vísaði þar til nýlegrar reglugerð-
ar fjármálaráðuneytisins þar sem settar voru
reglur um uppgjör fjármálafyrirtækja og skil-
yrði fyrir því að þau fái að gera upp í erlendri
mynt.
Bretland kemur til greina
Sagði Björgólfur að hingað til hefðu stjórn-
völd viljað auka samkeppnishæfni íslenskra
fjármálafyrirtækja og að mikill og góður árang-
ur hefði náðst á undanförnum árum og sagðist
ekki skilja þau höft sem ríkisstjórnin hefði
ákveðið að skella á íslensk fjármálafyrirtæki.
„Slíkar fyrirvaralausar breytingar knýja fyrir-
tæki á borð við Straum-Burðarás til að kanna
möguleika á að færa félagið til annars lands. Til
greina koma bæði Bretland og Írland þar sem í
boði er 12,5% tekjuskattur til 10 ára að lág-
marki.“
Í samtali við Morgunblaðið sagði Björgólfur
ólíklegt að bankinn flytti starfsemi sína úr landi.
„Það er mín einlæg von að við þurfum ekki að
gera það en það er mér skylt að segja hluthöfum
frá því að það sé verið að skoða þetta sem eitt af
þeim úrræðum sem við höfum ef það tekur að
þrengja að starfsumhverfi okkar hér,“ sagði
hann.
Gagnrýnir stefnu stjórn-
valda á fjármálamarkaði
Stjórn bankans kannar möguleika á að flytja Straum-Burðarás úr landi
Í HNOTSKURN
» Straumur-Burðarás varð fyrst ís-lenskra fjármálafyrirtækja til að gera
upp reikninga sína í evrum.
» Á aðalfundi í gær var samþykktheimild til stjórnar að breyta hlutafé
bankans í evrur.
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hefur nú
til skoðunar meinta ölvun lögreglumanns
á Akureyri sem ásamt starfsbræðrum sín-
um var kallaður út til að sinna vettvangi
banaslyssins í Hörgárdal aðfaranótt
sunnudags þegar ítalskur karlmaður bú-
settur hér á landi lést í bílveltu.
Tildrög málsins munu hafa verið þau að
lögreglumaðurinn kom á vettvang og hitti
þar fyrir starfsbræður sína. Þótti hann
lykta af áfengi er hann mætti á staðinn og
var því talin ástæða til að taka af honum
öndunarsýni og senda hann í blóðprufu.
Samkvæmt upplýsingum frá ríkislög-
reglustjóra verður málið skoðað nánar en
það hefur verið sent ríkissaksóknara þar
sem ákveðið verður hvort ákæra verði
gefin út fyrir brot í starfi.
Þegar mál af þessum toga eru skoðuð
eru höfð til hliðsjónar ákvæði lög-
reglulaga og starfsmannalaga auk al-
mennra hegningarlaga.
Lögreglumaður
grunaður um
ölvun á vettvangi
♦♦♦
NEMENDUM Hagaskóla, Árbæjarskóla og
Rimaskóla í Reykjavík verður boðið í haust að
fara hraðar í gegnum 8., 9., og 10. bekk og ljúka
náminu á tveimur árum í stað þriggja. Júlíus
Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, sagði
að með þessu vildu menntaráð og skólayfirvöld
nýta augljósa kosti þess að hafa sveigjanleg skil
milli grunn- og framhaldsskóla. Einnig væri
komið til móts við þarfir afburðanemenda og
þeim gert kleift að sníða námið að eigin getu.
Líklegt væri að fleiri grunnskólar mundu að ári
liðnu bjóða dugmiklum nemendum að taka 8.–
10. bekk á tveimur árum, að mati Júlíusar Vífils.
Skólarnir sem bjóða upp á
þessa hraðferð í haust eru
allir fremur fjölmennir. Júl-
íus Vífill sagði það hafa átt
stóran þátt í að þeir urðu fyr-
ir valinu. „Það getur verið
erfitt fyrir nemendur að fara
á skemmri tíma í gegnum
grunnskólann ef ekki er
sæmilegur hópur á sömu
leið. Við bindum vonir við að
þátttaka verði nægileg til að
það myndist hópur í hverjum skóla.“
Júlíus Vífill sagði að foreldrar í Hagaskóla
hefðu óskað eftir fundi með honum og Einari
Magnússyni skólastjóra fyrr í vetur. „Þar ósk-
uðu þeir eftir að leið eins og þessi til styttingar
grunnskólanámsins yrði boðin nemendum í
Hagaskóla. Það ánægjulega var að við í mennta-
ráði vorum að undirbúa nákvæmlega það sem
foreldrarnir voru að óska eftir. Ég naut þeirrar
ánægju að sýna þeim drög að skýrslu, sem kom
út þann sama dag, og innihéldu þessi áform.“
Skýrsla þessi var unnin af starfshópi á vegum
menntaráðs sem var falið að leita leiða til að
auka sveigjanleika milli skólastiga.
Verða tvö ár í 8.–10. bekk
Árbæjarskóli, Hagaskóli og Rimaskóli bjóða styttingu námstíma í haust
Júlíus Vífill
Ingvarsson
LÖGREGLAN á höfuðborgar-
svæðinu ásamt umferðareftirliti
Vegagerðarinnar hafði afskipti af
um 20 flutningabílum á Suður-
landsvegi í gær vegna frágangs á
farmi og fleiri atriða. Um helm-
ingur ökumannanna var kærður
fyrir brot á reglugerð um frágang
farms og ganga þurfti enn lengra
með fjóra úr hópnum með því að
kyrrsetja þá. Þótti frágangur
farms á bílum þeirra svo slælegur
að ekki var talið forsvaranlegt að
leyfa þeim að halda áfram.
Á 30 mínútum voru þrír bílar
kyrrsettir þar sem farmur skag-
aði of hátt upp fyrir hliðarvarnir
bílanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Vörubílstjór-
ar kyrrsettir
Vöruflutningabílar með ótryggan
farm kyrrsettir
VEFVARP
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
6
1
4
2
Hefur þú smakkað
nýju súkkulaðiostakökuna?
Nýjung í næstu verslun.