Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Side 15
1
I
14 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 75
Pétur Kristiáns er faUinn frá, langt um aldur fram. Pétur
var goðsögn i lifanda lffl, holdgervingur hms íslenska
stórhljðmsveitarrokks,hl3ómsveitostjóriogson^sem
kunni alla taktana. Og þvilikir taktar. Petur w tyrft og
fremst litríkur karakter sem setti svip smn a íslenskt
samfélag - og skemmtilegur svo af bar.
Pétur W. Kristjáns-
son, einn ástsælasti poppari lands-
ins, lést á sjúkrahúsi í Reykjavík í
gær. Pétur fékk hjartaáfail og
kransæðastíflu fyrir rétt rúmri viku
og vaknaði aldrei til lífsins eftir
það.
Pétur Wigelund íCristjánsson
var 52 ára þegar hann lést. Hann
átti að baki frækinn feril með reyk-
vískum popphljómsveitum þar
sem hann stóð jafnan fremstur
meðal jaötingja. Hin síðari ár sneri
Pétur sér í auknum mæli að hljóm-
plötuútgáfu og sölu á hljómdiskum
og skapaði sér þar sérstöðu líkt og
annars staðar þar sem hann fór.
Pétur var kvæntur Önnu Lind
Skúladóttur og áttu þau tvö börn,
írisi Wigelund og Kristján Karl,
sem bæði eru liðlega tvítug. Þá er
kjörsonur Péturs og Önnu Gunnar
Eggert Gunnarsson sem er 15 ára.
Foreldrar Péturs eru tónlistar-
maðurinn Kristján Kristjánsson,
sem gerði garðinn frægan með KK-
sextettinum, og Erla Wigelund, en
saman reka þau hjónin Verðlistann
við Laugalæk. Pétur Kristjánsson
átti tvær systur, Þorbjörgu og Sig-
rúnu Júlíu.
Stórbrotin persóna
„Pétur W. Kristjánsson er að
öðrum ólöstuðum tákn íslenska
rokksins á 8. áratugnum. Hann
byrjaði í bítlasveitinni Pops
skömmu eftir fermingu 1966 og Pé-
unum á ferli hans átti eftir að fjölga.
Eftir Pops réðst hann í Náttúru, en
þaðan fór hann og stofnaði hljóm-
sveit í byrjun árs 1972. Sú var skírð í
höfuðið á bardömu í Glaumbæ:
Svanfríður. Hljómsveitin Ævintýri
hafði skömmu áður sprungið
vegna tónlistarlegs ágreinings;
Björgvin og Arnar höfðu laðast að
rólegri tónlist, en Birgir og Sigurður
voru enn í rokkskapi og komu því í
Svanfríði til Péturs. Bassaleikarinn
Gunnar Hermannsson úr Tilveru
var svo punkturinn yfir i-ið í þessari
hráustu rokkhljómsveit klakans í
þá tíð.“ Þessi orð má lesa í bók Dr.
Gunna „Eru ekki ailir í stuði“ en
Pétri er vitaskuld helgaður stór kafli
í þeirri sögu. Ekki er þetta orðum
aukið því Pétur átti svið hinnar ís-
lensku rokk- og poppmenningar
árum saman. Það er ekki síður að
þakka stórbrotinni persónu en tón-
listargáfunni þó að hún hafi vissu-
lega verið til staðar.
Farinn til Breiðfirðingabúð-
ar á stóru æfinguna
Magnús Kjartansson kynntist
Pétri strax þegar þeir voru
strákfingar að hasla sér völl á sviði
rokktónfistarinnar. „Já, vorum að
byrja að spila í Breiðfirðingabúð.
Við átum þá ófáa hammarana á
Hressó og Sælkeranum," segir
Magnús sem starfaði með Pétri allt
þar til reiðarslagið dundi yfir.
„Sannarlega litskrúðugur samferð-
armaður sem óneitanlega setti svip
sinn á lífið í landinu. Allar þessar
grúppur sem hann var í forsvari
fyrir voru mjög áberandi enda Pét-
ur mjög atkvæðamikill og fram-
takssamur. Hann hélt þessu gang-
andi meðan hann gat - þangað til
allt splundraðist og menn héldu í
sitt hvora áttina. Pétur gerði sem
mest hann mátti svo árangur næð-
ist. Það lýsir honum vel að ef hann
taldi það til tekna fyrir samstarfs-
menn sfna þá var hann vel opinn
fyrir því að fá annan söngvara með
í bandið. Sumir söngvarar hefðu
ekki tekið jafn vel í þá hugmynd.
Afar gefandi og vann alltaf fyrir
heildina," segir Magnús sem nú
saknar sárt kærs vinar. En það var
kannski gleðin sem einkenndi Pét-
ur umfram allt.
„Ef eitthvað er þá var Pétur of
skemmtilegur því að þær stundir
sem við höfum átt saman síðustu
misseri voru þannig að það var
varla hægt að vinna fyrir hlátri og
sögum sem þurfti að segja, upprifj-
unum og vingjamlegum, smelln-
um athugasemdum um menn og
málefni. Hann kunni að hlæja að
„Efeitthvað er þá var Pétur of skemmti-
legur því að þær stundir sem við höfum
áttsaman síðustu misseri voru þannig
að það var varla hægt að vinna fyrir
hlátri og sögum sem þurfti að segja."
sjálfum sér, ekki síst. Oftar
en ekki var hann aðalpersóna í
grínsögunum sem voru ófáar. Það
var endalaust."
Magnús bendir á eitt sem alls
ekki má gleyma þegar Pétur er
annars vegar en það eru öll orða-
tiltækin, stytting-
arnar og taktarnir
sem komu frá
honum. „Pétur
hefur búið til fyrir
heila kynslóð, al-
veg safn af þessu,
sem vert væri að
setja í bók. Eitthvað
af þessu kom fram í
laginu ‘Krókurinn’
með Sálinni en þar
voru bara fleyttar
kerlingar. Hann
hafði einhvern veg-
inn lag á því að setja
fram ákveðna takta
og ósjálfrátt fóru
menn að tileinka sér
þá. Maður var farinn
að tala öðruvísi bara
eftir nokkrar mínútur
væri hann nálægt.
Óhemjuskemmtilegt.
Nú er hann farinn til
Breiðfirðingabúðar á
stóru æfinguna. 68
kynslóðin verður
aldrei söm.“
Alvörurödd
Enn er vitnað f bók Dr. Gunna.
„Við stofnun Pelican um sumarið
1973 urðu skil í íslenska rokkinu.
Síðasta hippasveitin, Náttúra,
hafði verið lögð niður og þaðan
kom Björgvin Gíslason, sem ásamt
Gunnari Þórðarsyni var talinn fær-
asti gítaristi landsins, en spilaði
jöfnum höndum á hljómborð í
Pelican. Úr hinni skammlífu Ástar-
kveðju komu Ásgeir trommari Ósk-
arsson og gítarleikarinn Ómar Ósk-
arsson. Fljótíega urðu bassaleik-
araskipti þegar Jón Ólafsson tók
við af Gunnari."
Upp úr 1973 og þann áratug
hlýtur Pétur að heita konungur
rokksins á íslandi eða allt þar til
hin dauða hönd diskósins kom og
lamaði tónlistarlíf landsmanna.
Hver stórhljómsveitin sem hann
leiddi leit dagsins ljós. Bubbi
Morthens fylgdist með Pétri og
þessum súpergrúppum sem svo
Pétur er þessi lífsgleði
og röddin. Þessi djúpa
rödd sem einhvern
veginn náði manni.
Einhver tónn sem var
alvörudjúpur.
Alvörurödd."
voru nefndar. „Hann
var að mínu mati fyrstí popparinn
sem hafði þessa bresku hefð - að
vera svona glamúrtýpa. Síðan
kynnist ég Pétri og þá kemur í ljós
að þetta var einn fi'fsglaðastí,
skemmtilegasti popparinn í brans-
anum. Gífurlegur húmoristi. Ekki
besti söngvarinn en hafði eitthvað
sem enginn annar hafði. Einhver
óútskýranlegur sjarmi. Við áttum
alltaf mjög góðar stundir saman
þegar ég var að túra útí á landi, á
hljómleikaferðalagi, og hann var
að ferðast með plötulagerinn sinn.
Mjög minnisstæð er yndisleg stund
sem við áttum saman á Djúpavogi
í fyrra. Hann var svo á tónleikun-
um hjá mér um kvöldið. Það sem
stendur upp úr í minningunni um
ur rokksins
Bubbi segir engan vafa á því
leika að Pétur hafi fyrir löngu skip-
að sér á stall sem goðsögn í íslensk-
um tónfistarheimi. „Sérstaklega
fyrir það að á sínum yngri árum
lifði hann út í ystu æsar ímynd
rokkstjörnunnar. Mínus - notaði
aldrei fíkniefni. Hann var þekktur
fyrir það. Það eru til sögur um Pét-
ur sem einhvern tíma kannski
verða sagðar en ekki á þessari
stundu. Blessuð sé minning hans.“
Pelican var hljómsveitin og
Pétur holdgervingur rokksins.
Hljómsveitin sendi frá sér plötuna
Uppteknir. Hún seldist í 11 þús-
undum eintaka sem var íslands-
met og í vinsældarkosningum Vik-
unnar fyrir árið 1974 unnu Pelican
ustu fulltrúum hins
óslökkvandi rokk-
þorsta og hefur lýst
því yfir að „ Wild
thing" verði leikið í
jarðarförinni sinni"
og meðlimir hennar svo yfirburða-
sigur í nánast öllum flokkum. Þjóð-
in fylgdist svo agndofa með þegar
Pétur var óvænt rekinn úr hljóm-
sveitinni, um það leyti sem platan
Lítil fluga leit dagsins ljós. En sá
hlær best... Pétur stofnaði hljóm-
sveitína Paradís sem var stór-
hljómsveit að hætti Péturs. Pelican
leið undir lok meðan Paradfs varð
stórveldi. Hins vegar hrönnuðust
skýjabakkar upp við sjóndeildar-
hringinn og Pétur var ómyrkur í
máli þegar hann tjáði sig um
ástandið á markaðnum í Vikuvið-
tali árið 1977 en þá var Paradís
hætt og við tekin hljómsveitín
Póker.
„Ríkið hirðir tæp fimmtíu pró-
sent af brúttóverði hvers aðgöngu-
sveitaball. Þá eigum við eftir að
greiða fyrir leigu á samkomuhús-
inu, dyravörslu, auglýsingar, ferðir
og aðstoðarmenn," sagði Pétur
þungur á brún - ætíð að berjast
fyrir rokkið. Frá þessu greinir í bók-
inni „Eru ekki alfir í Stuði?" Þar er
einnig vitnað í viðtal sem Helgar-
pósturinn áttí við Pétur en þá var
verið að ræða það að slá í gegn í út-
löndum, nokkuð sem Pétur horfði
eðlilega til og sagði hljómsveitina
Póker gagngert stofiiaða með það
fyrir augum. En það gekk ekki eftír
og Pétur segir 1981: „Það að meika
það erlendis er ekki farið að skipta
neinu máli eftir að maður er orð-
inn íjölskyldumaður."
Stórt skarð höggvið
Og diskótekin höfðu tekið öll
völd á skólaböllunum sem var mik-
ilvægur póstur í innkomu hljóm-
sveita. í áðurnefndu viðtali segir
Pétur sjálfur: „Mér hefur stundum
dottið í hug að hætta þessu helvítí,
og þá aðallega þegar einhverjar
breytíngar hafa orðið á hljómsveit-
unum. Ef ekkert stórt gerist á
næstu mánuðum, þá er ég ákveð-
inn í að hætta. Ég er löngu búinn
að prófa allt sem íslenskt tónlistar-
fi'f hefur upp á að bjóða, og enginn
nennir að halda þessum
eilífðarrúnti hér áfram, sem þar að
auki fer versnandi með hverju ár-
inu sem líður."
En Pétur átti ekki eftir að leggja
árar í bát enn um sinn. Raunar
aldrei því hljómsveitin Pops hefur
nú um langt skeið komið saman
árlega til að leika á dansleik 68 kyn-
slóðarinnar um hver áramót.
Hjörtur Howser hljómborðsleikari
var einn helsti aðdáandi Péturs og
varð fyrir gríðarlegum áhrifum frá
honum strax í barnaskóla. Hjörtur
minnist Péturs:
„Ég spilaði með Pétri í Dúndr-
inu,“ segir Hjörtur en það er ein
margra hljómsveita sem Pétur kom
við í eftir að gullárum stórsveit-
anna lauk. „Pétur var þannig mað-
ur að það var alltaf orðið gaman í
herberginu tveimur til þremur
mínútum eftir að hann var kominn
inn. Hann bar alltaf með sér gleði,
var alltaf í stuði og gerði alla menn
að vinum sínum. Enda elskaður,
dáður og virtur. Það er stórt skarð
höggvið í okkar raðir. Pétur var um
tíma allt í öllu í íslensku popplífi.
Þó svo að hann hafi dregið sig að
mestu úr spilamennskunni á
seinni árum þá sneri hann sér að
hinu, að gera veg tónlistar sem
mestan í gegnum sína frægu
markaði í Perlunni sem menn
biðu gjarnan eftir til að kaupa
tónfist af Pétri. Hans verður sárt
saknað."
'Wild thing'við jarðarförina
Leiðir Guðmundar Jónssonar
gítarleikara og Péturs hafa legið
saman lengi og með reglulegu
millibili. Guðmundur segir þetta
erfiða tí'ma, hann hefur nú með
stuttu millibili misst tvo mentora
sína í tónlistinni: Pétur og Rabba
Jóns. „Þegar ég kom í bransann 18
ára með hljómsveitina Kikk ásamt
öðrum þá var það Pétur sem kom í
bflskúrinn og bjargaði plötusamn-
ingi við Steinar. Stór stund. Þá
vann Pétur þar, Uppfrá því tókst
með okkur vinskapur. Ég hafði þá
fylgst grannt með honum í P-önd-
um sínum sem hann rak með
glæsibrag. Það var alltaf gæða-
stímpill sem fylgdi Pétri. Góður
söngvari og mikill foringi."
Arið 1993 bauð Pétur Kristjáns-
son Guðmundi að vinna með sér
að sólóplötu sinni sem síðan varð
að endurreisn Pelican sem flestir
héldu að væri löngu dauð. „Við
spiluðum saman þá og frá því
tímabifi á ég mjög góðar minning-
ar. Svo kom Pétur reglulega og tók
lagið með okkur í Sáfinni. Krókur-
inn er saminn í kringum sérstakt
tungumál sem Pétur talaði og bara
innvígðir skildu."
Guðmundur segir Pétur hafa
verið afskaplega góða sál, fallega
manneskju sem vildi engum illt.
Og umfram allt afskaplega
skemmtilegur. „Pétur bjó yfir ein-
lægri tónlistarástríðu og það
skemmtilegasta sem hann gerði
var að tala um tónlist, selja tónlist
og umgangast fólk. Mikill karakter
sem verður sárt saknað, harm-
dauði, og bransinn verður ekki
samur."
í bókinni „Eru ekki allir í stuði?"
segir í lok kaflans um Pétur. „Hann
er einn af glæsilegustu fulltrúum
hins óslökkvandi rokkþorsta og
hefur lýst því yfir að „Wild thing"
verði leikið í jarðarförinni sinni."
Pétur kom oft upp á svið þar sem
Sálin var að leika og Guðmundur
segir að þá hafi ætí'ð verið tekin
þrjú lög. „Það var hinn heilagi
þristur: Seinna meir, Krókurinn og
Wild Thing. Og aldrei mundi hann
textana. Bara rokk alveg inn að
merg."
jakob@dv.is
1. Pétur í kurmuglegri stellingu
með mikrófóninn og kunni ekki
textana. Það skipti engu máli.
2. Hér eru strákarnir með Óla
blaðasala. Pétur og hljómsveitir
hans voru oftar en ekki umfjöllun-
arefni blaðanna.
3. Pelican sneri óvænt aftur árið
1993 en flestirtöldu hljómsveitina
löngu dauða.
4. Hljómsveitin Poker. Valinn mað-
ur I hverju rúmi. Enda hljómsveitin
stofnuð gagngert til að slá í gegn I
útlöndum.
5. „Það að meika þaö erlendis er
ekki farið að skipta neinu máli eftir
að maður er orðinn fjölskyldu-
maður.'sagði Péturl viðtaliásfn-
um tima.
6. Langflottastir. Pétur og félagar
á kynningarmynd.
7. íátján grflnajakkanum.
8. Gleðigjafinn Pétur Kristjánsson.
Aöalsöngvari eða bassaleikari.
9. Þessir tveir félagar höfðu ýmis-
legt saman að sælda I gegnum
tfðina. Tróðu stundum upp sem
dúó og Bjartmar samdi texta fyrir
Pétur.
10. Skólahljómsveit Péturs en
hann fetaði strax I fótspor föður
sfns, sjálfs KK. Pétur heldur utan
um félaga sína, fyrir miðju.
11. / hljómsveitinni Paradls voru
helstu töffararsfns tfma.
12. „Fyrstl popparinn sem hafði
þessa bresku hefð - að vera svona
glamúrtýpa,' segir Bubbi
Morthens.
13. Tískan fer í hringi. Pétur var
alltaf samkvæmur sjálfum sér og
datt reglulega í tísku.
14. Gunnar, Pétur, Ásgeir og Björg-
vin. Félagar f gegnum súrt og sætt.
Iblfðu og strföu.
15. Pétur Kristjánsson bar meö sér
gleöi, var alltaff stuði og gerði alla
menn að vinum sfnum.
16. Pellcan átti sviðið meðan hún
var og hét. Hér er Pétur með gull-
plötu.
17. Pétur og Kristján Hreinsson
voru góðir vinir. Kristján semur
einmitt textana á plötu sem Pétur
var að vinna þegar hann féll frá.
18. Pétur kom inn I tónlistina á
Bftlaárunum en nærþroska sem
tániistarmaður þegar hippamenn-
ingin erallsráöandi.
I