Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004
Helgarblað DV
Bubbi Morthens er maður ekki einhamur eins og flestum má ljóst vera. Á næstunni er von á plötu frá
honum, heimildarmynd um ævi hans er að líta dagsins ljós og í jólabókaflóðinu mun synda barnabók
eftir hann og Róbert Jackson sem ber nafnið Djúpríkið.
Ofupsvalun
Stórlexinn heinr séð hetta allt
Bubbi Morthens Er að fikra sig
lengra og lengra inn á rithöf-
undalendur.Hannveithinsvegar
ekki um hvað er rætt þegar talað
er um einsemd rithöfundarins.
' íSSl ~
.
“Djúpríkið."
Ha?
“Djúpríkið!"
Hvað segirðu?
“DJÚPRÍKIÐ," hrðpar sjálfur Bubbi Morthens í eyra blaða-
manns og má vart á milli sjá hvor heyrir verr. „Þetta er nýyrði um
það svæði sem er undir yfirborði sjávar. Fínt orð þó ég segi sjálf-
ur frá.“
Ný bamabók og nýstárleg er nú
á leið í prentsmiðjuna. Djúpríkið.
Þetta er bók eftir Bubba Morthens
og Róbert Jackson, breskan blaða-
mann og rithöfund. Myndskreyt-
ingar annast svo snillingurinn Hall-
dór Bjarnason.
„Hún gerist öll undir yfirborði
sjávar og í ám. Þær eru tvær aðal-
persónurnar. í stuttu máli þá má
segja að þetta sé þroskasaga tveggja
laxa sem leggja í hann undan ísnum
einhvers staðar í Norðurhöfum.
Þeir eru á leið í ána sína ásamt sín-
um ættbálki. Þar fer fyrir höfðing-
inn - Stórlax - sem hefur lifað tím-
ana tvenna og er orðinn ógnarstór.
Varðandi hann þá vildi ég ná þar
fram vísun í Moby Dick. Hann er
öróttur og í honum hanga gamlar
flugur og önglar. Engum hefur tek-
ist að landa honum. Stórlaxinn er
búinn að sjá þetta allt saman. Hann
er ofursvalur."
Net hinna dauðu
Bókin fjallar svo um ferð laxanna
í hafinu og ævintýrum þeim sem
þeir lenda í á leiðinni. „Þetta er æv-
intýri. Laxarnir lenda í sel sem ræðst
auðvitað á þá, þeir sjá nokkuð sem
þeir hafa aldrei séð áður og skelfir
þá ógnvænlega. Laxakvíarnar. Net
hinna dauðu. Síðan þurfa þeir að
komast upp í ána án þess að maður-
inn drepi þá, þeir þurfa að lifa af
hrygningu og svo jafnvel eitthvað
meira. Þetta er hörkuspennandi
saga en um leið er þetta óður til
náttúrunnar og til þessa fisks sem er
í útrýmingarhættu."
Djúpríkið verður vegleg bók og
ferlega vel heppnuð að mati Bubba.
„Ég er búinn að ganga með þennan
grunn í maganum lengi. Svo hitti ég
Róbert f veiði í Hofsá. Það þróaðist
svo þannig að við ákváðum að
skrifa þessa bók.“
Verklagið var á þann hátt að þeir
Bubbi og Róbert hittust að morgni
dags og köstuðu boltanum á milli
sín. Þá skrifaði Róbert grunninn á
ensku og loks þýddi Silja Aðalsteins-
dóttir bókina yfir á íslensku. Þetta
má heita nokkuð sérstæð þróun
bókar og segir Bubbi ætlunina að
koma bókinni út á erlendri grundu.
Hún hefur allt í það. „Þetta er byrj-
unin á samstarfi okkar Róberts. Við
erum með ýmislegt í deiglunni."
Aldrei að gefast upp
Bubbi hefur smátt og smátt ver-
ið að fikra sig meira inn á þessar
brautir, það er að skrifa. Hann segir
þetta enda ekki mjög frábrugðið því
sem hann hefur verið að gera með
ljóðum sínum og textum. Þá má
ekki gleyma því að Bubbi hefur
áður sent frá sér barnabókina
„Rúmið hans Árna".
Boðskapur Djúpríkisins virðist
liggja í augum uppi. Bubbi er þekkt-
ur fyrir áhuga sinn og ást á náttúr-
unni, ekki síst laxastofninum. Hann
vill þó ekkert endilega fara inn á
þær brautir aðspurður. „Boðskap-
ur? Menn eiga nú að taka því eins
og þeir vilja. En kannski má segja
að fyrst og fremst sé boðskapurinn
sá að maður eigi ekki að gefast upp.
Aldrei. Ef maður er staðfastur tekst
það sem maður ætlar sér. Allt í lagi
að vera hræddur, það er eðlilegt. En
maður getur sigrast á öllu."
Eins og þessir litlu laxar munu
væntanlega sýna?
„Það kemur í ljós! Það kemur
nefnilega í ljós, karlinn minn. Þetta
er mjög óvenjuleg bók og ekki hefur
áður verið skrifuð bók þar sem
aðalpersónurnar eru laxar."
Þessi saga virðist hafa allt það til
brunns að bera sem prýðir góða
teiknimynd að hætti Disney. Bubbi
segir aldrei að vita hvað verður.
„Þetta er kannski ekkert svo langt
frá Nemó ef því er að skipta. En
fýrst og fremst er þetta skemmtileg
saga og tilvitnanir eru ýmsar, til
dæmis í gamlar íslenskar þjóðsagn-
ir. Og, eins og í öllum ævintýrum
eru hættur, spenna og drama."
Sá sem gargar hæst
Aðspurður hvort ekki megi
vænta þess að hann fari að senda
frá sér bók ætlaða hinum fuUorðnu
verður Bubbi leyndardómsfuUur
mjög. „Ég get sagt aUavegana eitt.
Einhvers staðar við sjóndeildar-
hringinn eru Bubbi og Jón Atíi með
verkefni."
Nú, þá leikhús?
„Menn mega láta sér detta það í
hug sem þeirvUja."
Bubbi talar um að samstarfið við
Róbert, sem hann segir mjög hæfi-
leikaríkan mann, hafi verið mjög
ánægjulegt. „Mjög gaman, frábær
samvinna en Róbert er kannski
þekktur sem einn ritstjóra
Grapevine-tímaritsins. Þetta er
maður á aldur við mig, kornungur."
Bókin er á leið í prentsmiðju og
svo tekur við það sem fylgir bóka-
útgáfu. Bubbi hlær og segir að sá
sem gargi hæst, það sé tekið eftir
honum. Og einhvern veginn hefur
maður ekki áhyggjur af Bubba í því
samhengi.
„Ég er mjög spenntur enda of-
boðslega skemmtílegt ferli um að
ræða, gaman að sjá bókina fæðast,
myndirnar koma og persónurnar
fæðast."
Og að sögn Bubba er ekki mildU
munur á að vinna plötu og bók en
Jiljómplöturnar hefur hann vita-
skuld gert ófáar.
„Þetta er aUt fantasía. Plata er
ekkert annað en fantasía. Nei, þetta
liggur mjög nálægt hvort öðru. Ég sé
ekki himin og haf þarna á miUi.
Þessari sköpun fylgir sama barns-
lega ánægjan og alltaf er þegar verið
er að skapa eitthvað. Búa eitthvað
tU. AUt ryþmi. Að skrifa bók er
ryþmi. Hann þarf að finna. Og tón-
inn. Mér finnst ekki langt þarna á
miUi."
Margir þú og bullandi
stemning
f boUaleggingum um hvort
Bubbi sé í auknum mæli að feta sig
inn á þær brautir að verða rithöf-
undur kemur tU tals þessi einsemd
sem svo mörgum rithöfundinum
verður tíðrætt um. Það er hins vegar
nokkuð sem Bubbi nær engan veg-
inn að festa fingur á.
„Ég fatta það ekki alveg. Þegar ég
er að búa tU tónhst og texta er ég
aUtaf einn í eiginlegri merkingu. En
þegar maður er að skapa getur mað-
ur ekki verið einn. Það er ekki hægt.
Þú ert margir þú. Og alveg buUandi
stemning. Ég hef aldrei sldlið þetta
að það sé einmanalegt að vera rit-
höfundur eða ljóðskáld. Ég fatta
ekki hvað menn eru að tala um. Mér
finnst þetta svo skemmtilegt. Upp-
lifi mig aldrei sem einan. Vakna
fimm eða sex á morgnana, finnst
aUt vera í litum, myndum, tónum,
og persónum. Bara alveg æðislegt."
Að venju er Bubbi með ýmislegt
á pijónunum. 14 laga plata er að
Djúpríkið Bók Bubba er ævintýrabók, ríku-
lega myndskreytt, en hún fjallar um för laxa-
ættbálks úr Norðurhöfum í ána sína. Hætt-
urnar leynast víða og laxarnir sjá til dæmis
„Nethinna dauðu“-laxakvíarnar.
koma frá honum þar sem yrkisefni
hans er hafið og hinn helmingurinn
er byggður á Bibh'unni - Tómasar-
guðspjalli. Þar segir Bubbi ýmsar
sögur frá sjónarhóU persóna sem
þar eru: Maríu mey, Maríu Magda-
lenu og Júdasi sem uppgötvar að
hann er bara peð við það að Guð
þakkar honum svikin við Jesús. „Og
gunguháttinn þegar þeir koma tU að
sækja Jesús í garðinn og lærisvein-
arnir koðna niður í ekki neitt. Þetta
er engin predikun, bara sögur úr
TómasarguðspjaUi. VinnutítiUinn er
Tvíburinn og hafið en Tómas þýðir
tvíburi á sýrlensku.
Svo er bíómynd væntanleg, mik-
U heimUdarmynd um Bubba sjálfan
sem verið er að ljúka við að klippa.
„Já, svo erum við Barði í Bang Gang
að gera saman plötu. FaUegur dag-
ur. Hann er pródúsentinn og verk-
stjórinn. Ég mætí bara með lög og
Barði ræður hvað hann gerir við
þau. Hefur frjálsar hendur."
Baröi í Bang Gang? Er hann ekki
algjör aumingi?
„Neineineinei, algjör snillingur.
Þeir hta oft þannig út þessir sniU-
ingar."
jakob@idv.is
„Upplifi mig aldrei einan. Vakna fimm eða sex á morgnana, finnst allt
vera ílitum, myndum, tónum, og persónum. Bara alveg æðislegt."