Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Blaðsíða 41
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 47
Alls kyns megrunarkúrar og töfralausnir tröllríða vestrænum samfélögum þessa dagana. Atkinskúr-
inn, megrunarduft, megrunarpillur, megrunarsápur og -súpur eru dæmi um töfralausnir á offituvand-
anum fyrir utan allar skurðaðgerðirnar sem í boði eru. DV ákvað að leggja sitt af mörkum í barátt-
unni við offitu og kynnir þess vegna nokkrar aðferðir sem gætu hjálpað fólki að léttast.
Við Vesturlandabúar fitnum
með hverju árinu sem líður. Kjag-
andi fitubollur setja æ stærri svip á
samfélagið og einna augljósast er
vandamálið í skólakerfinu. Fyrir
nokkrum árum var ein fitubolla í
hverjum bekk en nú er ein hor-
rengla í hverjum bekk en hinir of
feitir. Offita og kvillar samfara
henni eru faraldur og stærsta heil-
brigðisvandamál samtímans. Sá
sem fyndi upp 100% lausn á offitu-
vandamálinu yrði ríkur maður. Og
svo sannarlega hafa margir reynt.
Eftir því sem vandamálið verður
stærra koma fram fleiri lausnir. Á
7. áratugnum fóru húsmæður til
læknis og fengu svokallaðar megr-
unarpillur. Þetta var amfetamín í
pilluformi og þegar húsmæðurnar
voru byrjaðar að ryksuga á nótt-
unni gáfiist þær oftast upp. Um
1980 var hver stolt húsmóðir með
slímkenndan Kákasus-geril í
krukku í eldhúsinu en gerillinn átti
að vera allra meina bót, þ. á m.
grennandi. Síðan hafa alls konar
kúrar og lausnir dunið á okkur -
Atkinskúrinn, appelsínu-, epla- og
sítrónukúrinn, megrunarduft,
megrunarpillur, megrunarkara-
mellur, megrunarplástrar, megr-
unarskóinnlegg, megrunareyma-
lokkar, megrunarhjólabuxur,
megrunarsápur og -súpur og alls-
kyns tæki og tól - en ekkert virðist
duga og þjóðin hefur aldrei verið
feitari. DV leggur nú lóð á vogaskál-
ctr vandamálsins og kynnir til
sögunnar nokkra byltingarkennda
megrunarkúra.
Týpíski megrunarkúrs-kúrinn
Þeir sem hafa farið nokkrum
sinnum í megrun
ættu að kannast
við þennan kúr.
Morg-
unmatur:
1/2
greipaldin
1 sneið
Korni-hrökkbrauð
með kotasælu
1 glas undanrenna
Hádegisverður:
200 g magur kjúkhngur
1 bolli af soðnu spínati
1 bolli jurtate
1 Homeblest-kexkaka
Miðdegissnakk:
Afgangurinn af
pakkanum
1/2 diet-drykkur
Homeblest-
Kvöldverður:
2 sneiðar af hvítlauksbrauði
16“ pítsa með pepperóní, hvít-
lauk og papriku
1 stór ís með dýfu
1 Prins Póló
2 bjórar
Bland í poka fyrir 300 kall
Miðnætursnakk:
Heil frosin ostakaka - étin beint
úr ísskápnum
Endurtakist eins oft og þarf til að
þú gefist upp.
Hrái kjúklinga-kúrinn
Hrár kjúklingur er sleiktur
og étinn. Blóð og safi drukkiö \
með. Síðan er bara að bíða'
og vona að salmonellan eða
kamfílóbakterían vinni sitt verk
og guðdómlegt rennirí fylgi í kjöl-
farið. Fólk hefur misst mörg kíló
þennan áhrifaríka hátt.
Sjálfsblekkingar-kúrinn
Þessi megrunarkúr er góður að
því leyti að þú breytir hvorki matar-
æði þínu eða hreyfingu, heldur trú-
ir bara í blindni á eftirtaldar reglur:
1. Sá matur sem enginn
sér þig borða inniheldur
engar hitaeiningar.
2. Það eru engar hitaein-
ingar í diet-drykkjum eins
og Diet Kók og Pepsi Max og
því draga þessir drykkir í sig
hitaeiningar úr öðrum mat
eins og súkkulaði og lakkrís.
Þess vegna er í lagi að borða
mat með miklu hitaeiningamagni
ef diet-drykkir eru drukknir með.
3. Finndu þér feitt fólk til að
borða með því ef sá sem þú ert
að borða með borðar meira en
þú teljast hitaeiningarnar í þín-
um mat ekki með.
4. Hitaeiningar í mat sem þú
borðar í lækningaskyni teljast
ekki með því þær fara allar í að
lækna líkamann. Dæmi: Heitt
súkkulaði, koníak, kók.
5. Ef þú fitar alla í kringum þig
grennist þú. Byrjaðu því að lauma
rjóma og sykri í mat vinnufélaga og
íjölskyldu.
6. Skyndibitafæði og sælgæti
sem neytt er í bíó hefur engar hita-
einingar því þess er neytt í myrkri
og er hluti af skemmtuninni.
Dæmi: Popp, nammi, nachos.
7. Hitaeiningar í kexi hverfa ef
þú neytir einungis kex sem hefur
brotnað.
8. Fæða sem sleikt er af hnífi eða
skeið þegar verið er að útbúa mat er
hitaeiningalaus.
bræður okkar og systur í
þriðja heiminum
„grennri" (m.ö.o. svelta í
hel). Gott ráð í megrun-
arvanda okkar heppnu
er því að taka sér lifn-
, aðarhætti fbúa þriðja
heimsins til fyrir-
myndar. Reglur:
Dæmi: Hnetu-
smjör, þeyttur rjómi, kökudeig.
9. Fæða sem er eins á litinn inni-
heldur sama hitaeiningafjölda.
Dæmi: Hvítkál og hvítt súkkulaði,
Spínat og grænn frostpinni, eggald-
in og lakkrís.
Alltaf að flytja-kúrinn
Kyrrseta er ein af ástæðum
offitu. Því er upplögð lausn að byrja
í fasteignabraski sérstaklega þar
sem hagstæð lán
bjóðast nú sem
aldrei fyrr. Þú
selur íbúðina
þína og kaupir
aðra sem
þarfnast mik-
ils viðhalds.
Þú ert hálfan
mánuð að
flísaleggja, brjóta niður veggi,
parketleggja og ferð ítrekað í bygg-
ingarvöruverslanir og Sorpu. Pass-
aðu þig á að vinna undir pressu, t.d.
með því að losa gömlu íbúðina
fljótt og þurfa því að vera búinn að
gera nýju íbúðina upp innan
skamms tíma. Þú hamast og ham-
ast, ert alltaf á ferð og flugi og hefur
engan tíma til að borða. Einstaka
sinnum treður þú í þig sjoppumat.
Með þessum hætti ættirðu auð-
veldlega að losna við a.m.k. 5 kíló á
2 vikum. Ef það er ekki nóg ferðu
strax að leita að nýrri íbúð sem þarf
að gera upp og þannig koll af
kolli þar til kjörþyngd er náð,
Þriðja heims-kúrinn
Það er staðreynd að eftir
því sem við Vesturlandabú-
ar verðum feitari verða
* Þú vinnur minnst
14 tíma á dag en biður yfirboðara
þína að borga þér bara fyrir hálf-
tíma.
* Ekki eyða meira en 30 krónum
í mat á dag.
* Soðin hrísgrjón eru aðaluppi-
staðan í mataræðinu. Þó ekki meira
en 100 g í einu.
* Drekktu vatn úr drullupollum.
* Ef svengdin sækir á máttu at-
huga ruslatunnur nágrannanna.
Ekki er ráðlegt að vera á þessum
kúr lengur en í eina viku. Eftir það
skaltu spara við þig í mat og gefa
Rauða krossinum það sem þú hefð-
ir annars eytt í óhóf.
Gúrkutíðar-kúrinn
Svengd er tengd ytri aðstæðum
og ljóst að fólk borðar eftir því í
hvernig skapi það er. ísland er
dvergríki og því er stundum lítið í
ff éttum. Hér ríkir
því blessunar-
lega oft það sem
er kallað gúrku-
tíð. Þessi kúr
byggir á að
borða eftir því
hvernig ffétt-
irnar eru, en
fréttir hafa mikil
áhrif á líf flestra. Það eru um 60
hitaeiningar í meðalstórri gúrku og
því augljóst að um ákjósanlega
fæðu er að ræða. Gúrkan kemur því
nokkuð við sögu í þessum kúr.
Hér koma nokkur dæmi um það
hvernig á að borða í þessum kúr þar
sem innihald ffétfa ræður ferðinni:
* Gúrkutíð
Einkenni: Fréttamaðurinn á
Suðurlandi er með aðalfrétt kvölds-
ins í Sjónvarpinu og Magga Massi
er aðalmálið framan á Séð og heyrt
aðra vikuna í röð.
Kvöldmatur: Ein gúrka. Vatn.
* Miðjumoð
Einkenni: Fyrstu fréttir kvölds-
ins eru erlendar og nokkuð djúsí,
en um miðjan fréttatímann skellur
á 10 mínútna umfjöllun um
eitthvað sem er að gerast á
Sjálandi. Frétt um ógæfu-
saman ungling sem rændi
ellilífeyrisþega og danglaði í
mann á förnum vegi er það
helsta af innlendum vettvangi.
Kvöldmatur: Hálf gúrka skorin
ofan á hrökkbrauð. 200 g magurt
kjöt. Diet-drykkur.
Einkenni: í fréttum er spenn-
andi efni sem varðar flest fólk. T.d.
vaxtastríð bankanna, eða það að á
landinu er heimsfrægt stórmenni
sem fer lofsemdarorðum um land
og þjóð. Spennandi gíslataka er í
gangi í útlöndum og múslimar eru
með einhver læti. >•
Kvöldmatur: Hakk og spagettí
með súrum gúrkum. Rjómaís með
berjasultu í eftirrétt.
* Brjálæði
Einkenni: Þjóðin stendur á önd-
inni og skiptist í tvö lið. Þeir sem
aldrei hafa mótmælt áður fjöl-
menna öskrandi niður í miðbæ.
Fólk er með ákveðinn stjórnmála-
mann á heilanum og allir vinnu-
staðir landsins eru undirlagðir af
umræðum um málefnið. Fólk vílar
ekki fyrir sér að fylgjast með frétt-
um aÚra ljósvakamiðlanna og lesa v
öU dagblöðin til að fá að vita sem
mest um málið.
Kvöldmatur: Þrefaldur ham-
borgari með beikoni, spældu eggi
og gráðosti, franskarkartöflur, hálf-
ur líter af kokteilsósu, kók,
hnetusmjörsís. Tvær gúrkur,
sykraðar og velt upp úr
hamsatólg.
Guðjón Zöega er einn af
þeim sem reynt hefur Gúrku-
tíðar-kúrinn. Guðjón er aUs
ekki ánægður með hann: „Ég
gerði þau mistök að fara á "
þennan kúr í ár og er búinn að
þyngjast um heil 60 kfió frá því ég
byrjaði. Fyrst var það þarna l£k-
fundarmálið í Neskaupstað og
svo skaU fjölmiðlamálið á og þá
fór þetta út í algjört óefni hjá mér.
Ég þyngdist nú bara um heil
fjögur kíló daginn sem Ólafur
Ragnar neitaði að skrifa undir ^
frumvarpið. Ég ætla þó að halda
áfram á þessum kúr og bind von-
ir við að Davíð hætti við að fara í
utanríkisráðherrann. Það er eig-
inlega ekki hægt að vera á gúrku-
tíðar-kúrnum á meðan hann er
ennþá eitthvað með puttana í
pólitíkinni."
Heilbrigð skynsemi-kúrinn
Að lokum kemur kúr sem virkar
örugglega.
Þessum reglum er fylgt í
hvívetna:
1. Borðaðu minna.
2. Hreyfðu þig meira.