Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004
Helgarblað £>V
c HaHe Berry er ein skærasta filmstjarna
nútímans en er hún
.5. Hvort er hún hvít eða svört?
Sumir kynnu að segja að það skipti
ekki máli en Halle Berry sjálf er ekki
í vafa. „Ég er svört,“ segir hún stolt.
En mamma hennar var nú samt
bara hvít stelpa frá Liverpool og
reyndist henni vel í bemsku og
æsku meðan hinn svarti faðir henn-
ar var ýmist fjarverandi eða fór um
með ofbeldi á heimilinu. Halle
Berry tókst hins vegar að komast
klakklaust gegnum æskuárin og er
nú á góðri leið með að verða ein
frægasta filmstjama samtímans.
Hefur til dæmis bæði fengið ósk-
arsverðlaim og hlutverk í James
Bond-mynd.
: Nefnd eftir verslunarmiðstöð
Halle fæddist þann 14. ágúst árið
1968. Það segir hún sjálf en að vísu
fullyrða sumir að hún sé tveimur
ámm eldri, fædd 1966 og eigi þess
vegna aðeins tvö ár í fertugt. Enginn
vafi leikur hins vegar á því að fæð-
ingarstaðurinn var borgin Cleve-
land í Ohio né heldur að óvenjulegt
nafti sitt fékk hún af verslunarsam-
stæðu einni þar sem Halle Brothers
stunduðu kaupskap. Svona eins og
ef íslensk stúlka yrði skfrð Smára-
lind sem kannski mim einhvem
tíma gerast.
Halle á eina eldri systur sem heit-
ir bara Heidi; faðir Halle hét Jerome
og var sem sagt svartur á hörund,
hann var ófaglærður hjálparmaður
á sjúkrahúsi og þar kynntist hann
konu sinni, henni Judith, sem kom
frá Bítlaborginni og var hjúkka á
geðdeild spítalans. Þau bjuggu í
hverfi þar sem blökkumenn vom í
miklum meiriUuta og sysmmar
Heidi og Halle vöktu athygh fyrir
ljóst Utaraft sitt en sættu þó ekki að-
kasti svo heitið gæti. Það breyttist
eftir að Jerome stakk af þegar HaUe
var fjögurra ára; þá flutti Judith með
$. dætur sínar í annan borgarhluta þar
sem hvítir vora í meiriiiluta. í emu
vetfangi hætti HaUe að vera hvít
stúlku í svörtu hverfi og varð í stað-
inn svört stúlka í hvítu hverfi.
Vildi ekki vera kynblendingur
Eins og það hefði ekki nægilegt
Halle Berry sem Kattarkonan Hún fékk
hlutverkið eftir að Michelle Pfeiffer gafþað
frá sér afþvl henni þótti búningurinn svo
óþægilegur!
umrót í för með sér eitt og sér, þá
var vistin í hvíta hverfinu öUu verri
en í því svarta. HaUe brást við með
því að gerast stoltari af sínu svarta
blóði en hinu hvíta og telur sig síðan
ótvfrætt úl blökkumanna.
Hún tók um þetta meðvitaða
ákvörðun: „Ég áttaði mig snemma á
því,“ segfr hún „að ég vUdi ekki líta á
mig sem einhvem kynblending,
sem vissi ekki hvort hann væri svart-
ur eða hvítur".
Ekki er það þó sjálft faðemið sem
hún er svo stolt af. Jerome Berry
virðist hafa verið fúlmenni hið
versta og þótt hann dúkkaði um síð-
ir aftur upp í lifi konu sinnar og
dætra, þá höfðu þær enga gleði af
þeirri endurkomu. Jerome var of-
beldisfuUur og lagði hendur bæði á
Judith og Heidi en HaUe Utla mun
hafa sloppið að mestu. Þar kom að
Jerome lét sig aftur hverfa og sakn-
aði hans enginn, HaUe vUdi engin
samskipti hafa við faður sinn þegar
hún komst til vits og áia og hafði
ekld sáð hann árum saman þegar
hann dó í fyrra, 2003.
*
Halle í myndinni Monster's Bali Fyrir hlutverkiö fékkhún óskarsverðtaun, fyrstsvartra
kvenna.
Formaður bekkjarfélagsins,
ritstjóri skólablaðsins og
klappstýra
TU að vinna bug bæði á erfiðum
heimUisaðstæðum og nokkra að-
kasti vegna hörandslitarins, þá
heUti HaUe sér út í félagslffið í skól-
anum. Henni gekk námið reyndar
mjög vel en var lfica á fuUu á öðrum
vígstöðum, var formaður bekkjarfé-
lagsins, klappstýra, ritstjóri skóla-
blaðsins og var kosin „baUdrottn-
ingin" í sínum árgangi sem þykir
mikU virðingarstaða hjá bandarísk-
um skólastúlkum. Þar kom reyndar
babb í bátinn því hún var sökuð um
að hafa haft rangt við í kosningum
og neydd tU að deUa þessum eftir-
sótta titíi með einni alveg hvítri.
Strax á táningsaldri vakti HaUe
athygli fyrir fegurð og hún fór að
taka þátt í fegurðarsamkeppnum
strax á táningsaldri. Árið 1983 sigr-
aði hún í fegurðarsamkeppni tán-
inga í Ohio og varð nokkra síðar
Ungfrú Ohio, vann táningakeppn-
ina í samanlögðum Bandarfkjunum
og varð í öðra sætí í keppninni Ung-
frú Ameríka. Það leiddi svo tíl þess
að hún fékk að taka þált I Miss
World-keppninni í London árið
1986, ári eftír að Hólmfnður Karls-
dóttir hafði unnið þá keppni, sæUar
minningar. Hún var fýrsta blökku-
stúlkan sem kepptí fyrir hönd
Bandaríkjanna í þeirri keppni og
varð í öðra sæti á eftír GiseUe
Laronde frá Trímdad.
Þvoði sér ekki dögum saman
Eftír þennan árangur vann hún
um skeið sem fýrirsæta en fór að
læra fjölmiðlun með stefrnma á
sjónvarp. Áður en hún lauk námi af-
réð hún hins vegar að leggja leildist-
ina fýrir sig, fluttí tíl New York og
fékk þar fljótlega ýmis tækifæri í
sjónvarpsseríum. Hún vaktí athygU
Spikes Lee sem fékk henni smáhlut-
verk krakk-ffidls í myndinni Jungle
Fever árið 1991 og þar með var feriU
hennar sem fihnstjömu hafinn.
Hún vaktí strax athygU fyrir að und-
irbúa sig af mikUli kostgæfrú; hún
fékk tíl dæmis að fylgja lögreglunni í
innrásir í bæh krakkneytenda og
þvoði sér ekki í marga daga fyrir tök-
ur, svo henni Uði sem mest eins og
skítugum fíklinum sem hún lék.
Vaktí það Utla hrifiúngu meðleikara
hennar en meðan á tökum stóð átti
hún þó í ástarsambandi við aðal-
leikarann Wesley Snipes. Það stóð
þó ekki ýkja lengi.
Heyrnarlítil eftir barsmíðar
kærasta
Lengi framan af var hún reyndar
óheppin með kærasta. Einn barði
hana svo að hún misstí meira og
minna heym á öðra eyra, annar hót-
aði henni ítrekað öUu Ulu eftir að
hún sagði honum upp. Árið 1993
gekk hún í hjónaband með íþrótta-
stjömunni David Justíce en þau
skUdu með núklum látum þremur
árum síðar. Þá var hún farin að vekja
athygU sem leikkona, ekki síst í
myndinni Losing Isaiah þar sem
hún lék aftur krakkffidl. í myndinni
fleygir hún bami sínu í raslafötu en
reynir nokkrum árum síðar að taka
sig á og endurheimta bamið frá fóst-
urmóður sem Jessica Lange lék. Árið
1999 fékk hún svo bæði Emmy- og
Golden Globe-verðlaun fyrir leUc
sinni í sjónvarpsmyndinni Intro-
ducing Dorothy Dandridge þar sem
hún lék fýrstu svörtu leildconuna
sem var tilnefnd tíl óskarsverðlauna.
Sama ár trúlofaðist hún tónhstar-
manninum Eric Benet og vora þau í
fýrstu afar hamingjusöm en síðar
eyðUagði kynUfsfikn Benets sam-
bandið og þau sldldu að skiptum
2003.
Stakk af frá slysstað
Árið 2000 var sviptingasamt. Hún
lék í myndinni Monster’s BaU (frurn-
sýnd ári síðar) og varð þar með
fýrsta blökkukonan tíl að fá ósk-
arsverðlaun. Tók hún á mótí verð-
laununum með miklum en einlæg-
um tilfinningavaðU. En hún oUi Uka
árekstri í New York, þar sem kona í
öðrum bfl handarbrotnaði, og stakk
af frá slysstaðnum. Hún hélt því
fram að hún hefði verið ringluð eftír
höfuðhögg, enda þurftí að sauma í
höfuð hennar 20 spor, en yfirvöld-
um var ekki skemmt og hún fékk
skUorðsbundin fangelsi fyrir vikið og
varð að vinna af sér 200 tíma í sam-
félagsþjónustu.
Að öðra leytí hefur Uf hennar ver-
ið sigurganga undanfarin misseri og
misjafiit gengi Catwoman verður
varla lengi blettur á ferU hennar.
Nokkrar helstu
myndir Halle Berry
1991 Jungle Fever eftir Spike Lee
The Last Boy Scout eftir Tony Scott (með Bruce Willis o.fl.)
1992 Boomerang, með Eddie Murphy
1994 Steinaldarmennirnir
1995 Losing Isaiah eftir Stephen Gyllenhaal (með Jessicu Lange)
1996 Executive Decision með Kurt Russell, Steven Seagal o.fl.
1998 Bulworth eftir og með Warren Beatty - ömurleg mynd!
1999 Introducing Dorothy Dandrigde, sjónvarpsmynd
2000 X-Men, eftir teiknimyndasögu
2001 Swordfish með John Travolta, Sam Shepard o.fl.
Monster's Ball með Billy Bob Thornton, óskarsverðlaun!
2002 Die Another Day, James Bond-mynd með Pierce Brosnan
2003 X2, framhald afX-Men
Gothika, hryllingsmynd með Penelope Cruz
2004 Catwoman