Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.2004, Síða 47
DV Helgarblaö
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2004 47
giftast þér. Þú ert ekki nógu hug-
rakkur fyrir mig.“ Richard svaraði
með því að hann skyldi sína henni
hversu hugrakkur hann væri. „Ég
skal giftast þér núna." í salnum var
prestur sem pússaði parið saman.
Þetta var skrýtið upphaf á furðu-
legu hjónabandi. Susanne byrjaði
á því að breyta nafni Davids sonar
Richards í Dominic. Hún hafði
sjálf verið skírð Donna en breytti
um nafn á fullorðinsárum. Sus-
anne gerði Richard strax grein fyr-
ir því að það væri hún sem réði.
Hún tók yfir stjórnina á fjármálun-
um og þar sem hún átti Qögur
börn urðu peningar Richards fljótt
uppurnir. Fljótlega tóku skuldirn-
ar á kreditkortunum að hlaðast
upp og til að gera málin enn verri
tók hún upp á því að vilja ættleiða
barn. Ættleiðingunni var hafnað
og uppi sátu hjónin með háan lög-
fræðikostnað. Þrátt fyrir gríðarleg-
ar skuldir ákvað Susanne að þau
skyldu kaupa sér góðar líftrygging-
ar. „Þótt þau mættu bæði á minn
fund var greinilegt hver það var
sem stjórnaði,“ sagði tryggingar-
sölumaðurinn.
Morðhótun
„Mamma réð öffu og Richard
vissi það. Ekkert var gert nema
gegn hennar samþykki," sagði
elsta dóttir Susanne, Malorie. Einu
sinni hafði Richard reynt að fá
sínu fram. Þegar hann kom heim
úr vinnunni fann hann John Ray
bróður Susanne reykjandi krakk
fyrir framan börnin. Richard sagði
John Ray að hann væri ekki vel-
kominn aftur á þeirra heimiU. „Þú
talar ekki við mig svona," sagði
mágur hans og reif í hálsbindi
Rays. „Ég drep þig ef þú skiptir þér
af mér.“ Susanne kom upp á mUli
þeirra og skipaði Richard að halda
kjafti og láta bróður sinn vera.
í janúar 2003 hringdi Susanne í
lögregluna og tilkynnti hvarf eig-
inmanns síns. „Ég sá hann síðast
þegar ég kyssti hann bless í morg-
un," sagði hún með tárin í augun-
um. Um kvöldið hafði lögreglan
lýst eftir honum og Susanne fór í
sjónvarpið þar sem hún grátbað
alla sem eitthvað vissu að gefa sig
fram. Daginn eftir fannst lfkið í yf-
irgefnum bU. Að mati lækna var
dánarorsökin köfnun en plastpoka
hafði verið komið fýrir yfir höfði
hans. Morðstaðurinn var í grennd
Morðingi Raybatt
plastboka yfir vit
Richards. Vitni sáu
Richard I bll hans.
við hjólhýsi í eigu Johns Walsh
sem var vinur Johns Ray. í fyrstu
vUdi Walsh ekkert segja lögregl-
unni en eftir að þeir beittu þrýst-
ingi fór hann að tala.
„John Ray kom tU mín fyrir
mánuði og sagðist þurfa að tala
við mig. Við byrjuðum á því að
horfa á vídeó og reykja gras. Hann
sagði mér að systir sín hefði beðið
hann að kála manninum sínum og
að hún ædaði að borga honum
hluta af líftryggingunni fyrir.
Nokkrum dögum seinna kom John
Ray aftur tU mín. Ég sá einhvern í
bUnum hjá honum sem greinUega
var búið að líma fyrir munninn á.
Hann sagði mér að þetta væri
mágur sinn en ég trúði honum
ekki. Hann sagði að hann myndi
nauðga og drepa systur mína ef ég
segði frá og þá trúði ég honum.
Hann gekk aUtaf með byssu á sér
og eitt sinn kom hann með
sprengju heim tU mín.“
Var Susannesek?
Lögreglan handtók John Ray
fyrir morðið en var ekki enn sann-
færð um að Susanne hefði átt hlut
að máli. Þeir ákváðu að fylgjast
náið með henni og tóku eftir ýmsu
furðulegu. Við jarðarförina sáu
þeir hana taka yngsta barnið sitt
upp og setja í líkkistuna. „Ég fyUt-
ist viðbjóði og gekk út,“ sagði
Laura systir Richards.
Lögreglan heyrði fleiri sögur af
furðulegri hegðun Susanne og
handtók hana eftir að hafa séð
tölvupóst sem hún hafði sent
bróður sínum. „Ætlarðu að smíða
þessar hiUur fyrir mig? Upphæðin
er 50$.“ Lögreglunni fannst beiðn-
in forvitnUeg, sérstaklega þar sem
Richard hefði sjálfur getað smíðað
hiUurnar.
Furðufugl en ekki morðingi
„Susanne Carno er ekkja. En
hún er líka morðingi," sagði sak-
sóknarinn við kviðdóminn. „Stóra
sönnunargagnið í þessu máli er
líftryggingin. Verjandinn getur
ekki Utið fram hjá henni. Svo eru
aUar þessar sögur. Kviðdómurinn
hefur heyrt fóUd lýsa því þegar það
heyrði Susanne segja að Richard
væri látinn þótt hann væri lif-
andi." Verjandi Susanne sagði aUt
málið byggt upp á vanþóknun sak-
sóknarans á persónu skjólstæð-
ings síns. „Margt í hegðun hennar
er undarlegt en síðast þegar ég at-
hugaði eru furðufuglar ekki aUir
morðingjar. Það er aUs ekkert óal-
gengt að fátækar fjölskyldur komi
sér upp góðri líftryggingu."
Kviðdómurinn var sannfærður.
Susanne Carno og John Ray voru
dæmd í 40 ára fangelsi án mögu-
leika á reynslulausn. Laura systir
Richards átti síðasta orðið:
„Richard var góður maður sem
vann mikið tU að framfleyta fjöl-
skyldunni. Það eina sem hann
þráði var ást. í staðinn giftist hann
inn í fjölskyldu úr helvíti. Hann
átti betra skilið."
1'
Susanne Carno
Þeir sem þekktu
Susanne sögöu hana
agalega stjómsama.
Hún tókyfirfjármál
Richards og steypti
þeim I miklar skuldir.
Persónulegir hlutir franska skiptinemans Amelie Delagrange fundust í ánni
Thames eftir mikla leit. Amelie var myrt á hrottafenginn hátt fyrir nokkrum
vikum en morðvopnið hefur ekki enn fundist.
Mikilvægur áfangi í rannsókninni
Veski franska skiptinemans
AmeUe Delagrange er komið í ieitim-
ar eftir að kafarar leituðu í ánni
Thames fyrir skömmu. Delagrange,
22 ára, var myrt er hún var á heim-
leið. í ánni fundust einnig lyklar
hennar og ferðageislaspUari en taska
sem hún var með og sími em enn
ófundin. Staðurinn er skammt frá
þeim stað sem MUly Dowler, 13 ára,
var rænt árið 2002. Morðingi hennar
hefur aldrei fundist en lögreglan hef-
ur eklci ennþá náð að tengja morðin.
AmeUe var myrt í 10 kUómetra fjar-
lægð frá þeim stað þar sem eigur
hennar fundust og telur lögreglan að
morðinginn hafi hent eignum henn-
ar ofan í ána úr bíl á ferð.
Lögreglan telur fundinn
mikUvægan fyrir rannsóknina.
„Hlutar púsluspUsins em að
faUa saman og þetta verður
aUtaf athyglisverðara." Lögregl-
an hefur sviðsett atburðinn þar
sem lögreglukona sem svipar dl
fómarlambsins klæddi sig í svipuð
föt og Amelie.
Morðvopnið hefur ekki ennþá
fundist. Lögreglan segist leita að
múrsteinum, kylfu, trjádrumbi eða
hamri. Lögreglan segir að morðing-
inn gæti einnig hafa ráðist á fjórar
aðrar ungar stúlkur og rnyrt hina 19
ára Marsha McDonneU.
Fundarstaðurinn
fiuk veskisins fundust
lyklarogferOagfs'a-
spilariíeiguDe,a'
grange.Slmmnhenn-
I ar hefur ekki ennþá
I fundist.
r*5STi
*
Náði sér
aldrei eftir
misþyrmingar
Susan McDonald, 36 ára, fannst
látin á helmili sfnu eftir aö hafa
gleypt fjöldan allan af svefntöfl-
um. Móðlr konunnar seglr aö
Susan hafi aldrei náð aö jafna slg
eftir hörmulega framkomu
kærastans hennar. Krakkhausinn
Milton Brown hélt Susan nauð-
ugri inni á heimili þeirra (þrjá
mánuöi þar sem hann misþyrmdi
henni reglulega og baröi meðal
annars meö planka þöktum nögl-
um. Brown var dæmdur f 21 árs
fangelsi fyrir vikiö. Lfk Susan
fannst á heimili hennar eftlr að
nágrannar kvörtuðu yfir hrika-
legri lykt. Allt (krlngum hana
voru tóm pfllubox.
Átta ára með
falsaðan seðil
Átta ára strákur reyndi að ■*'
kaupa sælgæti með heimatil-
búnum peningaseðli í Noregi.
Samkvæmt lögreglunni hafði
drengurinn ásamt jaftialdra
vinkonu sinni ljósritað seðla
fyrir búðarleik. Þau voru svo
ánægð meö útkomuna að þau
ákváðu að prófa seðlana í
verslun en á drengnum fund-
ust mörg þúsund krónur í
fölsuðum seðlum. „SeðiIIinn
leit út eins og venjulegur seðill
en þegar afgreiðslumaðurinn
tók við honum fann hann að
eitthvað var að.“ Kallað var á
lögregluna sem var næg refs-
ing fyrir bömin enda skelfingu
lostin þegar þau gerðu sér
grein fyir alvarleika málsins.
Fársjúkur og
eldgamall í
fangelsi
Lestarræninginn aldraði
Ronnie Briggs er kominn á
sjúkiahús í fimmta skipti frá
því hann var handtekinn.
Biggs, setn er orðinn 75 ára,
getur ekki talað og fær nær-
ingu í æð að sögn Michaels
sonar hans. Biggs héfur fengið
nokkur hjartaáföll og þarf
mikla aölúynningu lækna.
Löglratðingar hans hafa beðið
um að honum verði veitt frelsi
af mannúðarástæðum. Biggs
hafði verið á llótta í 36 ár en
gaf sig fram árið 2001 og hefur
dvalið í fangelsi síðan.
%