Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.04.1966, Blaðsíða 105
2. gr. Félagi getur liver maður eða stofnun orðið, sem hefur áhuga á tilgangi fé-
lagsins, og kemur því á framfæri við einhvern stjórnarmann eða varamann.
3. gr. Aðalfundur með rannsóknarferð, er haldinn annað hvert ár, og skiptist
fundarstaðurinn milli Norðurlandanna. A aðalfundi er ákveðinn staður
fyrir næsta aðalfund. — Möguleiki er að koma á rannsóknarferð milli aðal-
funda á Norðurlöndum, eða á öðrum svæðum, þar sem norrænir grasafræð-
ingar stunda rannsóknir.
4. gr. Stjórn íélagsins er skipuð formanni og ritara og einum meðstjórnanda frá
hverju Norðurlandanna. — Formaður og ritari, ásamt varamanni þess síðar-
nefnda, eru kosnir af félagsmönnum í heild, en aðrir stjórnarmenn og vara-
menn þeirra af félögum viðkomandi lands. — Allar kosningar fara fram á
aðalfundi og gilda til næsta aðalfundar. Stjórnin velur sér varaformann.
5. gr. Fundir og rannsóknarferðir eru skipulagðar af viðkomandi stofnunum í sam-
ráði við stjórn félagsins.
6. gr. Félagið gefur út árskýrslu, sent inniheldur ýmis félagsmálefni, skrá yfir virka
rannsóknarmenn, heimilisföng þeirra og rannsóknarsvið, og aðrar fregnir
félaginu viðkomandi. — Ritari félagsins annast ritstjórn skýrslunnar.
7. gr. Félagsgjald er 10 sænskar krónur fyrir félagsmann, en 100 kr. fyrir stofnanir.
8. gr. Ritari félagsins sér um fjárreiður. Reikningsárið miðast við almanaksár.
9. gr. A aðalfundi eru kosnir tveir endurskoðendur ásamt varamönnum, fyrir yfir-
standandi og næstkomandi almanaksár. Leiðréttingar endurskoðenda skulu
liggja fyrir á næsta aðalfundi.
Samkvæmt jjessum lögum var fyrsti formaður félagsins valinn, Hans Luther,
Helsingfors, en ritari Aarno Rousi, Ábo. Meðstjórnendur eru Kai Larsen, frá Árós-
um, fyrir Danmörku, Antero Vaarama frá Ábæ (Turku) fyrir Finnland, Gunvör
Knaben frá Oslo, fyrir Noreg, og Henning Weimarck frá Lundi, fyrir Svíþjóð.
Fyrir ísland var enginn stjórnarmaður kosinn, vegna þess, að enginn var mættur
þaðan. Væri æskilegt, að einhverjir ísl. grasafræðingar sæju sér fært að fara á næsta
fund félagsins, en hann var ákveðinn 1967 í Ábæ i Finnlandi.
H.Hg.
SJALDGÆFAR MOSATEGUNDIR.
Sumarið 1960 safnaði ég allmiklu af mosum í nágrenni Akureyrar, í Aðaldal,
Laxárdal, á Hveravöllum á Kili og víðar.
Sumarið 1963 safnaði ég einnig talsverðu af mosum í fjallaferðum okkar Harð-
ar Kristinssonar í sambandi við hæðarmarkarannsóknir. Nokkru var einnig safnað
sumurinn 1964 og 1965, aðallega í útsveitum við Eyjafjörð.
Mestur hluti þessa mosasafns, sem varðveitt er í Náttúrugripasafninu á Akur-
eyri, hefur til jsessa verið ónákvæmlega nafngreint. Nú í vetur (1966) hefur Berg-
þór Jóhannsson, grasafræðingur, Náttúrufræðistofnun Islands í Reykjavík, gert mér
þann mikla greiða að yfirfara allar nafngreiningar á apokörpu mosunum. Kann ég
honum miklar þakkir fyrir jietta.
Við þessar endurgreiningar hefur ýmislegt komið í ljós um útbreiðslu sjald-
gæfra mosategunda og verður það helzta talið hér á eftir.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 103