Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Blaðsíða 26
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 201326
nám og námsUmhverfi 21. aldarinnar
sveitarfélags Birkiskóla minnir á að okkur hætti til þess að færast of mikið í fang og
oft skorti úthald til að festa breytingar í sessi. Farsælt gæti verið að innleiða breytingar
í markvissum skrefum með öflugum stuðningi sveitarfélagsins þannig að þær hljóti
gott brautargengi. Ætla má að í einhverjum tilvika hafi skort á þetta. Það er lag til þess
að bæta um betur í þessum skólum og styðja kröftuglega við bakið á starfshópunum
svo að námsumhverfið nýtist sem best og ekki myndist gjá milli námsumhverfis og
starfshátta.
lOKaOrÐ
Metnaðarfullar hugmyndir voru lagðar til grundvallar við hönnun þeirra fjögurra skóla
sem hér eru til skoðunar. Áhersla var á sveigjanlegt og fjölbreytt námsumhverfi til að
styðja við einstaklingsmiðað nám og vellíðan nemenda og starfsfólks. Vísbendingar
eru þó um að fyrstu skref kennara og annars starfsfólks í nýrri byggingu hafi að mörgu
leyti verið erfið. Stundum virðist sem „kerfið“ sé skrefi framar en „fólkið í kerfinu“.
Af niðurstöðum má draga þann lærdóm að mikilvægt sé að skapa samhug í skóla-
samfélaginu og nærumhverfinu um skólann og skólastarfið; ekki sé nóg að byggja
af myndarskap. Huga þarf gaumgæfilega að upphafi starfs í nýju skólahúsnæði, sér-
staklega ef þar á að taka upp nýjar starfsaðferðir. Starfsmenn og stjórnendur þurfa
stuðning og svigrúm til þess að nýta alla þá möguleika sem nýtt námsumhverfi og
nýjar áherslur bjóða. Þar þarf allt skólasamfélagið að koma að verki: starfsfólk skól-
anna og sveitarfélaganna, háskólasamfélagið, stéttarfélög og fagfélög.
HEiMilDir
Amalía Björnsdóttir og Kristín Jónsdóttir. (2010). Starfshættir í grunnskólum: Fyrstu
niðurstöður úr spurningakönnunum meðal starfsmanna skóla. Ráðstefnurit Netlu –
Menntakvika 2010. Sótt 14. september 2011 af http://netla.khi.is/menntakvika2010/
alm/001.pdf
Anna Kristín Sigurðardóttir. (2010). Professional learning community in relation to
school effectiveness. Scandinavian Journal of Educational Research, 54(5), 395–412.
Borrelbach, S. (2009). The historical development of school buildings in Germany. Í R.
Walden (ritstjóri), Schools for the future: Design proposals from architectural psychology
(bls. 45–74). Cambridge: Hogrefe & Huber Publishers.
Dudek, M. (2000). Architecture of schools: The new learning environments. Oxford: Archi-
tectural Press.
Eaker, R., DuFour, R. og DuFour, R. (2002). Getting started: Reculturing schools to become
professional learning communities. Bloomington: Solution Tree Press.
Fasteignastofa Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. (2004). Húsnæði grunn-
skóla Reykjavíkur: Greining á þörf fyrir byggingar og endurbætur. Reykjavík: Höfundar.
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. (2000). Starfsáætlun fræðslumála í Reykjavík 2000. Reykja-
vík: Höfundur.