Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Blaðsíða 123
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 2013 123
INGIbJöRG H. HARÐARDÓTTIR
MENNTAvÍSINDASvIÐI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Uppeldi og menntun
22. árgangur 1. hefti 2013
Um skilnaði og stjúptengsl
Valgerður Halldórsdóttir. (2012). Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl.
Reykjavík: Vaka-Helgafell. 225 bls.
inngangUr
Bók Valgerðar Halldórsdóttur Hver er í fjölskyldunni? Skilnaðir og stjúptengsl kom út
á síðasta ári hjá Vöku-Helgafelli. Í henni er leitast við að varpa ljósi á margbreyti-
leika stjúpfjölskyldna en jafnframt draga fram hvað þær eiga sameiginlegt. Mark-
mið bókarinnar er að efla skilning á viðkvæmni stjúptengsla, ryðja fordómum úr
vegi og styrkja stöðu stjúpfjölskyldna. Í formála rekur Sigrún Júlíusdóttir prófessor
þátt höfundarins, Valgerðar Halldórsdóttur, sem brautryðjanda í málefnum stjúp-
fjölskyldna. Valgerður er menntaður félagsráðgjafi og á jafnframt að baki viðbótarnám
í kennslu- og uppeldisfræði og stjórnmálafræði. Bókin ber þess merki að höfundur
hefur mikla meðferðarreynslu, hún hefur mörg dæmi á takteinum og á auðvelt með
að gera flókið efni aðgengilegt með dæmum – helst að dæmin séu svo flókin að maður
sjái aldrei til botns í þessu grugguga vatni – en kannski er það einmitt staðan?
Höfundur vitnar til íslenskra og erlendra fræðimanna til að rökstyðja mál sitt.
Fræðileg umfjöllun er ekki djúp en heimildir eru margar, sbr. heimildaskrá, og gefa
áhugsömum lesendum möguleika á að kafa dýpra í fræðin.
Bókinni er ætlað að höfða til breiðs hóps, bæði almennings og fagfólks sem vinnur
með fjölskyldur, svo sem félagsráðgjafa, kennara, þroskaþjálfa, presta og lögfræðinga,
og er hagnýtt gildi hennar ótvírætt.
UPPBygging BóKarinnar
Bókinni er skipt í tíu kafla auk formála, inngangs, tilvísanaskrár og heimildaskrár.
Uppbygging bókarinnar er aðgengileg. Ítarlegt efnisyfirlit er yfir kaflana tíu auk
allra undirkaflanna. Kaflarnir hefjast allir á spurningum sem höfundur leitast síðan
við að svara og geta þær einnig nýst vel í umræðuhópum og í vinnu með fjölskyldum.