Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Blaðsíða 119
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 2013 119
HAFSTEINN KARLSSON
SALASKÓLA
Uppeldi og menntun
22. árgangur 1. hefti 2013
Skil skólastiga
Gerður G. Óskarsdóttir. (2012). Skil skólastiga: Frá leikskóla til grunnskóla og
grunnskóla til framhaldsskóla. Reykjavík: Reykjavíkurborg, Skóla- og frístundasvið
og Háskólaútgáfan. 309 bls.
Síðastliðið haust kom út bókin Skil skólastiga eftir Gerði G. Óskarsdóttur. Þetta er
mikið rit, rösklega 300 blaðsíður og í nokkru stærra broti en gengur og gerist. Gerður
hefur mikla og víðtæka reynslu af skólastarfi. Hún hefur verið kennari á þremur
skólastigum, stjórnað bæði grunn- og framhaldsskóla, stýrt kennaranámi framhalds-
skólakennara við Háskóla Íslands, verið ráðgjafi menntamálaráðherra og fræðslustjóri
í Reykjavík. Þar var hún yfir bæði leik- og grunnskólum. Nú stýrir hún Rannsóknar-
stofu um þróun skólastarfs á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Jafnframt hefur
hún stundað rannsóknir á skólastarfi. Hún hefur því með einhverjum hætti starfað á
öllum skólastigunum.
Bókin lýsir niðurstöðum viðamikillar rannsóknar á skólastarfi í fjórum árgöngum
á þremur skólastigum, leikskóla-, grunnskóla- og framhaldsskólastigi, og skilunum
milli þeirra, eins og segir í inngangi bókarinnar. Í bókinni eru tíu kaflar, en hún skiptist
í meginatriðum í fjóra hluta. Hver kafli getur staðið sjálfstæður enda gerir höfundur
ráð fyrir að einstakir kaflar höfði til mismunandi lesendahópa. Þannig er hægt að velja
úr ákveðna kafla og fá góða yfirsýn yfir starf á einu eða tveimur skólastigum, starfs-
hætti í námi og kennslu eða skil milli skólastiga. Þetta eykur gildi bókarinnar en hefur
í för með sér einhverjar endurtekningar sem engan veginn trufla þó þá sem kjósa að
lesa alla bókina.
Í inngangi gerir Gerður grein fyrir tilurð rannsóknarinnar og markmiði og upp-
byggingu bókarinnar. Þetta er vel gert og gefur glögga mynd af því sem framundan er.
Fyrsti hluti bókarinnar skiptist í tvo kafla. Sá fyrri greinir ítarlega frá baksviði rann-
sóknarinnar sem skiptist í þrjú lykilþemu, þ.e. umgjörð skólastarfs, starfshætti og
tengsl skólastiga. Hugtök eru skýrð, greint frá kenningum um þáttaskil í námi, fjallað
rækilega um ytri umgjörð skólastiganna þriggja og tengsl þeirra og að síðustu er greint
frá rannsóknarspurningum. Í þessum kafla er vitnað til innlendra og erlendra rann-
sókna á þessum sviðum, farið yfir þá þróun sem kemur fram í lögum og reglugerðum