Félagsbréf - 01.03.1960, Page 12
í AMMAN
Amman í dalnum, auðnarperlan,
er austurlenzk nýtízkuborg.
Brenndur af sál hinnar sýrlenzku auðnar
ég sezt við Hússeinstorg.
Á torginu liggur limlestur hundur,
loftið sker ýlfrandi vein.
Með brotnar lendar og blóðuga fætur
ber hann höfði við stein.
Langdregin kvein hans glymja og gjalla
um glóandi stéttar og þil.
Menn vafra um torgið verzla og spjalla
þótt vart heyrist orðaskil.
Ég ræðst inn í búð, sé rösklegan mann
og rétti honum silfurdal:
Fáið dugandi menn til að drepa rakkann
hve dýrt, sem það vera skal.
Mangarinn berar bjartar tennur,
brosir með þýðri lund:
Því miður, herra, þekkir hér enginn
þennan sérstaka hund.
Ég heyrði kvein hans hvar sem ég fór,
ég heyrði það fram á nótt.
Og enn í dag, jafnvel heima hér
hefur það að mér sótt.