Skagfirðingabók - 01.01.2011, Page 144
SKAGFIRÐINGABÓK
mjög harður knattspyrnumaður og gaf
aldrei þumlung eftir. Hann spilaði
ávallt á miðjunni. Þá voru Sölvabræður
afar leiknir með boltann, þeir Kristján
og Sölvi Sölvasynir. Þarna voru meðal
annarra Mundi Valda Garðs (Guð
mundur Valdimarsson), Stebbi í Bæn
um og Indriði bróðir hans, synir Sig
urðar Stefáns sonar, Ingvar Ásu og Lilli
Ásu (Ingvar Jónsson og Sigvaldi Egill
Jónsson, synir Áslaugar Egilsdóttur),
Hólm ar Magnússon og bróðir hans
Ingi (Ingvar Magnússon), þá Addi
Dýllu, þ.e. Árni Guðmundsson, bróðir
Sveins, og Eiki Jóns (Eiríkur Jónsson),
hann spilaði ætíð sem bak vörður, og
Vagn Kristjáns eða Vaggi eins og
hann var jafnan kallaður, en hann var í
marki. Dómari var oftast Ole Bang
apó tekari. Á þessum tíma var mjög
öflugt knattspyrnulið á Sauðárkróki.
Það var fastur liður að keppt var tvisv
ar á vetri við Hólasvein a heima og
heim an. Akvegur til Hóla var á þess
um árum mjög bágborinn og yfirleitt
Fræknir íþróttamenn.
F.v.: Eiríkur Jónsson,
Jóhannes Hansen, Ottó
Þorvaldsson og Árni
Guðmundsson.
F.v. Ingvar Jónsson, jafnan kallaður
Ingvar Ásu, Júlíus Friðriksson og
Árni Gíslason, allir hátt gyrtir.
144