Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2003, Qupperneq 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2003, Qupperneq 53
VÍSINDASJÓÐUR Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hveiju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B- hluta. A-hluti Vísindasjóður A-hluti - Greiðslur úr A-hluta vísindasjóðs félagsins verða lagðar beint inn á bankareikning félagsmanna í lok mars nk. I A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endur- menntunar, rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um framlagið, upphæðin er lögð inn á bankareikning félagsman- na, sem hafa gefið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu, eða send með ávísun heim. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tíma- bilið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlu- tun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úth- lutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. sep- tember árið fyrir úthlutun. B-hluti Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B- hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22. Ur B-hluta vísindasjóðs er þeim 10%, sem eftir eru af tekjum sjóðsins, varið til að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsóknar- og þróunarverkefni. Úr þeim hluta er úthlutað einu sinni á ári. Úr starfsreglum fyrir B-hluta vísindasjóðs Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræði- mennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkrunar. I þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta á yfirstandandi sjóðsári leg- gst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða dok- torsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almennum ski- lyrðum enda sé viðkomandi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðn- um árið sem réttur til úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verksins enda skili styrkþegi inn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar vísindasjóðs ásamt niður- stöðum, t.d. tímaritsgrein. Vísindasjóður hefur á hverjum tíma yfirlit yfir allar styrkum- sóknir og styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. í umsókn um styrk þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs-reynsla og reynsla af rannsóknar- eða þróunarvinnu. Styrkir úr vísindasjóði geta nýst til að Ijúka verkefnum til kynningar á ráðstefnum. Greinaskrif: • Heiti rannsóknarverkefnis/þróunarverkefnis. • Markmið með vinnu verkefnis. • Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heil- brigðisvísindi. • Rannsóknaráætlun/verkáætlun. • Aðferðafræði. • Heimildaskrá. • Mælitæki. • Tímaáætlun. • Kostnaðaráætlun. Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: • Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? • Hvert er mikilvægið? • Er framsetning markmiða skýr? • Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækj- anda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? • Er hægt að fella niður eða lækka einhverja kostnaðarliði, hvernig? • Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d. 0-5, til að auðvelda mat og ákvarðanatöku við styrkveitingar. Timarit islenskra hjúkrunarfræöinga 1. tbl. 79. árg. 2003

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.