Morgunblaðið - 29.10.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
296. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
MENNING
GÓÐAR BÆKUR FYRIR
KREPPUVETURINN
DAGLEGTLÍF
Staðgöngumæðrun
leyfð í hrossarækt
Fjórar saman
0
8
-
1
6
0
9
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Loksins fáanlegur
í sneiðum
Nýjungar!
Leikhúsin
í landinu >> 33
TAP sveitarfélagsins Árborgar
vegna peningabréfa í Landsbank-
anum nemur um 110 milljónum
króna. Ragnheiður Hergeirsdóttir
bæjarstjóri útilokar ekki málsókn
þar sem bankinn greiðir aðeins út
68,8% af inneigninni fyrir gjald-
þrotið. Tilkynnt var í gær að eig-
endur innlendra peningabréfa hjá
Landsbankanum fengju greitt í dag
en útgreiðsluhlutfall er misjafnt
eftir því hvort bréfin voru í inn-
lendri eða erlendri mynt.
„Ef þetta er niðurstaðan verður
uppreisn,“ segir Ómar Sigurðsson
sem átti 60 milljónir kr. í peninga-
bréfum. Hann sættir sig ekki við að
ríkið taki nær 20 milljónir af sparn-
aði hans.
Kristín Helga Káradóttir er
sömuleiðis ósátt. Hún lagði sparnað
sinn í peningabréf fyrr á árinu.
„Við viljum fá sparnað okkar bætt-
an að fullu. Við ætlum ekki að láta
þetta yfir okkur ganga,“ segir
Kristín. gag@mbl.is | 15
Árborg íhugar málsókn
Ósátt við útgreiðsluhlutfall peningabréfa Landsbankans
„Við ætlum ekki að láta þetta yfir okkur ganga“
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
DANSKA lágfargjaldaflugfélagið
Sterling verður tekið til gjaldþrota-
skipta. Stjórn Sterling fundaði í gær-
kvöld og varð það niðurstaða fund-
arins á tólfta tímanum, að óska eftir
því í dag, miðvikudag, að félagið yrði
tekið til gjaldþrotaskipta.
„Þetta eru auðvitað gífurleg von-
brigði fyrir okkur sem höfum verið að
reyna að semja um sölu á félaginu að
undanförnu,“ sagði Pálmi Haralds-
son, annar aðaleigandi Fons eignar-
haldsfélags, sem á Sterling, í samtali
við Morgunblaðið laust fyrir mið-
nætti. Pálmi sagði það mjög sérstakt
að til þessa hefði þurft að koma, þar
sem vaxtaberandi skuldir Sterling
hefðu engar verið.
„Eftir að bankakrísan skall á hefur
þetta verið nánast óbærilegt. Lánar-
drottnar hafa reynst okkur mjög erf-
iðir og tryggingaþörfin hefur aukist
mjög undanfarnar vikur. Við vorum
komnir á þann stað, að við þurftum að
ástunda staðgreiðslu í nánast öllum
okkar viðskiptum.“
Erum rúin trausti
Hann sagði að samhliða mikilli
veikingu krónunnar hefðu erfiðleikar
félagsins aukist mjög. Lagðar hefðu
verið inn í rekstur félagsins yfir 500
milljónir króna danskra á undanförn-
um þremur mánuðum, en allt hefði
komið fyrir ekki.
„Þetta sýnir okkur, svo ekki verður
um villst, að það er nánast útilokað
fyrir Íslendinga að standa í fyrir-
tækjarekstri utan Íslands um þessar
mundir. Við erum einfaldlega trausti
rúin,“ sagði Pálmi og kvaðst harma
það mjög að þessi hefði orðið niður-
staðan, ekki síst vegna starfsmanna
og viðskiptavina félagsins.
Sterling
gjald-
þrota
Ljósmynd/Sterling
MARGIR Pólverjar halda heim á leið með Norrænu frá
Seyðisfirði í kvöld. Meðal þeirra eru feðgarnir Lukas og
Stanislav sem lögðu af stað frá Selfossi í gær, þar sem
þeir hafa búið og starfað. Enga vinnu er lengur að hafa
og fylgja myndatökumenn þeim úr landi en þeir eru að
vinna frétt fyrir þýsku sjónvarpsstöðina ZDF. | 11
Pólverjar halda heim á leið
Morgunblaðið/ RAX
Eftir Steinþór Guðbjartsson og
Magnús Halldórsson
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir ljóst að verð-
fall á hrávöru undanfarna mánuði
hafi áhrif á tekjur fyrirtækisins
vegna þess að í flestum stóriðju-
samningum við álfyrirtækin sé tekið
mið af verði áls. Hinsvegar hafi vext-
ir lækkað og dollarinn hækkað og
það komi Landsvirkjun til góða, því
tekjurnar séu að mestu í dollurum.
Landsvirkjun gerir ráðstafanir til
þess að draga úr sveiflum á álverði
með því að tryggja sig fyrir því að ál-
verð fari verulega mikið niður. Frið-
rik segir að á móti sé ágóðanum fórn-
að þegar verðið sé í hæstu hæðum.
„Þó álverðið fari töluvert niður verð-
um við ekki fyrir verulegum skaða,
að minnsta kosti ekki alveg á næst-
unni,“ segir Friðrik. „Við verðum
fyrir búsifjum en ekki eins miklum
og álverðið segir til um.“
Álverð hefur í gegnum tíðina
sveiflast upp og niður. Friðrik segir
að Landsvirkjun þurfi ekki að grípa
til sérstakra ráðstafana nú. Hann
bendir á að krafa sé gerð um að
kaupandinn kaupi orkuna burtséð
frá því hvort hún sé nýtt eða ekki.
Víða um heim loki álver hins vegar
þegar verðið lækki eins mikið og það
hafi nú gert á skömmum tíma.
Verðfall á hrávöru
skaðar Landsvirkjun
Lækkun vaxta og gengi dollars vega upp á móti tekjutapinu
Í HNOTSKURN
» Staðgreiðsluverð á tonniaf áli hefur lækkað úr
3.300 dollurum í 1.880 dollara
á rúmlega þremur og hálfum
mánuði.
» Tekjur Landsvirkjunareru að mestu í dollurum
sem og skuldirnar.
Miklir hagsmunir | 8
VÍÐTÆK ÁHRIF
AF 6 PRÓSENTU-
STIGA HÆKKUN
STÝRIVAXTA
18%
Stýrivextir Seðlabankans
22,65%
Algengir vextir á yfirdrátt-
arláni einstaklings í dag
28,65%
Líklegir vextir á yfirdrátt-
arlánum eftir hækkun
143 þús.
Vextir af 500 þús. kr.
yfirdráttarláni á ári
23 þús.
Hækkun vaxtakostnaðar af
500 þús kr. yfirdráttarláni
180 ma.
Yfirdráttarlán fyrirtækja
og heimila í milljörðum
26,5%
Dráttarvextir til 1. janúar
Yfirdráttarvextir | 16