Alþýðublaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 9
Jólablað Alþýðublaðsins W W & V W & W & ^ W ^ ^ ® V W % ý W & V 9 — Já, þetta er nýi eldastrákurinn okkar, hróp- aði Niels, sem svar við þögulli spurningu minni. Röddin lýsti fyrirlitningu eins og hann skyldi vera að kynna hirðfífl. Jens Stagfok reyndi að brosa, en ég sá, að hann tók sér þetta nærri. Síðan hitti ég hann mörgum sinnum. Og alltaf var það sama sagan — hann var síleitandi að tækifæri til að draga fram lífið á sæmilegan hátt — ekki einmana meðal hæðinna starfsbræðra, heldur félagi meðal jafningja. En þreytulegt, angurvært yfirbragð hans sýnid mér, að til þessa hafði leit hans engan árangur borið. — Svo hvarf hann hljóðlaust inn í hópinn, sem beið þess að fá kortið sitt stimplað á vinnumiðlunarskrifstofunni. Hann fór nokkra túríí með okkur. Það var bæði hryggilegt og átakanlegt að sjá, hvað hann, sem var elztur um borð, lagði að sér til að læra af okk- ur listirnar og framkvæma starf sitt óaðfinnanlega. En — hann var ekki fiskimaður og mundi aldrei verða það. Það er mikið djúp staðfest milli starfs kyndarans og starfsins á fiskiskútunni. Þjdr eru kröfurnar margar og ólíkar. Skyndilegar og óvænt- ar ákvarðanir verður að taka í einu vetfangi. Slíkt er ekki fyrir aðra en þá, sem frá barnæsku hafa vanizt hinni ólíkustu vinnu og margbrotnum kröf- um. Ég hitti Jens Stagfok aftur í hríðarveðri á að- fangadag jóla. Það var á bryggjunni í Álaborg. Niðri við höfnina var talað um gömlu ,,Mary“. Skipun hafði borizt um að henni skyldi tafarlaust siglt til Liverpool. Dögum saman hafði verið unnið að því af kappi að gera þetta gamla, vánhirta skip sjófært á ný. Einhver töframaður hafði fengið járn- stykkin í vélarrúminu til að haga sér eins og gufu- vél. Reykurinn hnyklaðist út um ryðgaðan reykháf- inn, og skrúfan breytti vatnsfletinum aftan við skipið í iðandi hringiðu. í þessu tvennu átti vinur minn Jens þátt meðal annarra. Hann var sem sé einn þeirra, sem sveittir og sótugir, en hamingjusamir, kyntu eld undir kötlunum. Vistahlaðar stóðu á þil- fari og lestarhlerum. Skipstjórinn gekk nöldrandi um stjórnpallinn, og öll skipshöfnin var önnum kaf- in við að gera skipið ferðbúið sem fyrst. Það hafði gengið erfiðlega að fá áhöfn á gamla skipið. Jólin voru að ganga í garð, og hver vill á þeim tíma hætta góðu skiprúmi fyrir einn „túr“? Áhöfnin var heldur ekki fyrsta flokks sjómenn. Já, ef satt skal segja, þá voru það menn, sem aðeins á þennan hátt eða líkan áttu þess kost að fá skiprúm. En að því er virtist — og sem betur fór — þá skapaði það þeim ekki neina minnimáttarkennd, og yfirbragð þeirra allra bar vott óblandinnar ánægju. Ennþá einu sinni áttu þeir þess kost að fara „til sjós.“ Að fáum tímum liðnum byrjaðj jólahelgin. Jóla- GLEÐILEG JÖL! Bifreiðastöð Reykjavíkur. GLEÐILEG JÓL! Verzlunin BRYNJA GLEÐILEG JÓL! Kexverksmiðjan FRÓN h.f. GLEÐILEGJÓL! I Verzlunin ÁRNES GLEÐILEG JÓL! Gott og farsælt nýár! f Hjörtur Hjartarson, Bræðraborgarst. 1. Framnesv. 64. Verzlunin Reynimelur, Bræðraborgarstíg 22. GLEÐILEG JÓL! Blikksmiðja Reykjavíkur. GLEÐILEG JÓL! Verzlunin B. H. Bjarnason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.