Alþýðublaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 22

Alþýðublaðið - 24.12.1943, Blaðsíða 22
22 röska tveggja klúkkustunda ferð komum við heim að Hornbænum og var ferðin á enda þann daginn. MORGUNINN eftir, þann 29. júní, ferjuðu vinir okk- ar, sem á Bjargið fóru daginn áður, okkur yfir Horn- víkina til Rekavíkur. Blasti hið kuldalega Hælavíkur- bjarg þar vel við sjónum. Drukkum við kaffi í Rekavík hjá Stefáni bónda, en héldum síðan um Atlaskarð áleiðis til Hlöðuvíkur. Eftir hálfan tíma vormn við komnir upp í snjóbreiðuna og stigum á skíðin. Veður var hið bezta, skýjafar og glaða sólskin á milli. Af Atlaskarði var ágætt útsýni. Sést þar yfir Hornvíkina á aðra hönd, en Hælavík og á haf út á hina. Þegar sólar naut, markaði fyrir skíðunum í snjónum, en þegar dró fyrir sólu, var snjórinn samstundis harður sem gler. Norðan Hlöðuvíkur stendur fjall eitt, er Skálakambur heitir. Liggur leiðin þar niður, og er víða svo bxött, að skíðin, sem við bárum á öxlúnum, vildu rekast í fjallið. Bærinn að Búðum er í Hlöðuvík. Var þar tvíbýli, en fólkið ætlaði að flytja í burtu ftokkrum dögum eftir að við komum þangað og bæriirn lagðist í eyði. Þarna bjó Ingibjörg, móðir Þorleifs Bjarnasonar, með sonum sín- um. Hefur hiin biiið við Björgin alla ævi, en var nú að yl'irgefa þau. Þorleifur er uppalinn í Hælavík og Hlöðu- vík og þekkti hvern stein á leið þeirri, sem við fórum um. Eftir tveggja tíma dvöl á Búðum, héldum við áfram förinni. Flutti Bergmundux', bróðir Þorleifs, okkur á bát yfir í Kjaransvik. Þar var eitt sinn byggð, sem nú er í eyði. Gengum við nú um hálftíma fram dalinn og kom- um þá á snjóbreiðuna og stigum á skíði okkar skammt frá Grásteini. Fórum við síðan um Kjaransvíkux'skai'ð til Hesteyrar. Höfðum við skíðafæri alla leið niður á Höllin fyrir ofan Hesteyri og var færi hið bezta. Komum við að Hesteyri kl. 10 um kvöldið, eftir 12 tíma ferð frá Horni. Frá Hesteyri fórum við síðan með mótorbát til ísafjarðar daginn eftir. Lengstan hluta leiðarinnai’, dag- ana 27. og 29. júní, fórum við á skíðum. Þarna norður- % W & ^ ® $ Jólablað AlþýðublaSsins frá er venjulega snjóþungt, en að þessu sinni var snjór- inn alveg óvenjulega mikill. VEGIR ei'u engir á Hornströndum, nema lítill vegai'- spotti á leiðinni frá Hesteyri til Látra. Allir stærri þunga- vöruflutningar verða að fara fram á sjó, urn erfiðustu sjóleiðina, sem til er við strendur landsins yfir vetrar- tírnann. Þarna er mjög langt á milli bæja og landleið víða mjög örðug, og mun mörgum hafa veitzt þung ganga með bagga á baki í ófærð og vegleysum að vetrar- lagi, því að aldrei verður komizt hjá einhverjum að- dráttum á þann hátt í strjálbýlinu. Fólkið á Hornströndum lifir á fiskveiðum, eggjatöku og fuglaveiði úr björgunum og nokkurri sauðfjárrækt. Gestrisni er þarixa mjög mikil og með þeim hætti, sem gestinum er viðkunnanlegastur. Fólkið er frjálslegt og kurteist og framkoma þess í alla staði hiir viðfelldnasta. Skaplyndi þess er mótað a£ umhverfi og erfiðri lífsbai'- áttu, þó að ekki gæti þess í umgengni við ókunnuga. Um þennan landshluta, og fólkið, sem þarna býr, má með sanni segja, að rétt væri og skylt að sýna því meiri athygli og ræktarsemi, en til þessa hefur átt sér stað. Skal ég eigi fjölyrða tun þetta, en ræð þeim, sem vilja kynna sér líf Hornstiendinga og Hoinstrandir nánar, að lesa hina ágætu Hoxnstrendingabók Þói’leifs Bjarnason- ar, sem er, að öðrum bókum ólöstuðum, að mínum dómi einhver skemmtilegasta og bezt ritaða bók, sem komið hefur út á þessU ári. - 1 KVIKMYNDALEIKARAR. Á myndinni sést hinn kunni kvikmyndaleikari, James Cagney, freg- ar hann kom til New York frá Hollywood. Systir hans, sem er kvikmyndaleikkona og sést á myndinni með honum, varð fyrst til að taka á móti honum við komuna til New York borgar, en hún starfar þar. Cagney tók sér þessa ferð á hendur til að sitja ráðstefnu leikara, sem starfa að f>ví að skemnita hermönnum,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.