Alþýðublaðið - 24.12.1943, Qupperneq 38

Alþýðublaðið - 24.12.1943, Qupperneq 38
Jólablað AlþýðublaÖsins Eggert Kristjánsson & Co. h.f. «><<><<><*><><£<>C><><><><><><><*c><*><><><><*£><><x£<><><xc><><^^ bráð. Svo fer þú með fórn þessa inn til föður þíns og hlýtur blessun hans áður en Esaú kemur aftur heim. — Já, svaraði Jakob. Hann vildi gjarna blessun hljóta. — En Esaú er svo loðinn og skeggjaður. Ég óttast, að faðir minn þreifi á mér og beri kennsl á mig, og þá kynni svo að fara, að liann fonnælti mér í stað þess að blessa mig. — Ég skal sjá fyrir því, að til þess komi ekki, svaraði Rebekka. — Far þú aðeins að orðum mínum. Jakob, sem ávallt var hlýðinn, fór þá og sótti lamb. Hann fann ekkert larnba sinna, svo að liann tók því eitt af lömbum Esaii. Lömbin voru livert öðru lík, svo að auðvelt var að afsaka slíkt. Þegar lambinu hafði verið slátrað, tók Rebekka gæruna og bjó úr henni skegg á Jakob. Hún batt og ræmur af gærunni um hendur hans og háls, svo að hann varð loðinn. Að því búnu gekk hún inn í tjald Esaú, tók fram hin beztu klæði hans og færði Jakob f þau. Þau fóru honum ekki sem bezt. Þau voru allt of stór á hann, og ermarnar náðu honum fram fyrif hendur, en Rebekka sá ráð við því öllu. Svo gekk hann inn til föður síns með rétt þann, er framreiddur hafði verið. ísak var það undrunarefni hið mesta, að Esaú skykli þegar kominn úr veiðiför sinni. En Jakob lét orð um það falla, að Jelióva hefði látið bráð verða á vegi sínum, er hann hefði skammt gengið. Slíkt lét alls ekki'ótrúlega í eyrum. Áþekkir atburðir höfðu gerzt fyrri. ísak minntist þess, að þegar hann var vart úr grasi vaxinn, hafði drottinn gerzt mjög reiður. Abraham hafði þá helzt í huga að fórna ísak, þótt einkasonur hans væri, þar eð engin fórnardyr voru fyrir hendi, aðeins nokkrar geitur og gamall og hrumur asni. En drottinn var svo reiður, að hann eirði því eigi að bíða þess, að ísak yrði fórnað honum til dýrðar. Þegar Abraham kom svo loks til staðar þess, þar sem drottinn var fyrir, liafði hann þegar fundið sér sjálfur feitan geit- hafur, sem hann hafði velþóknun á. Slíkir atburðir löldust vart til eindæma. En hins vegar lilaut ísak að undrast það mjög, hversu rödd Esaú var mild og hljómþýð. aði ísak sér um munninn og mælti: aði ísak sér um munninn að mælti: — Ert þú sonur minn Esaú? — Já, ég er sonur þinn, svaraði Jakob. — Komdu þá hingað og lcysstu mig, sonur minn! ísak þreifaði á skeggi hans og höndum. Að því búnu mælti hann: — Hendurnar eru hendur Esaú, en röddin er rödd Jakobs. Farðu og sæktu bróður þinn, svo að ég geti einnig blessað hann. í sama mund kom Rebekka inn í tjaldið og mælti: — Vilt þú ekki blessa hinn frumborna son þinn! Því að Jakob hafði keypt frumburðarréttinn af Esaú. Þá mælti ísak til Jakobs: — Guð gefi þér dögg a£
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.