Alþýðublaðið - 24.12.1943, Page 51
Jólablað Alþýðublaðsins
Sú, sem las, var norska leikkonan Gerd Grieg, og
var kvæðið eftir mann hennar, Nordahl Grieg, ort í
tilefni af þjóðhátíðardegi Norðmanna undir yfir-
standandi kringumstæðum.
Síðan var sunginn þjóðsöngur Norðmanna: „Ja,
vi elsker dette Landet.“ Að lokum blessaði svo prest-
urinn yfir söfnuðinn.
Fánaverðirnir gengu að fánanum, hylltu hann, og
gengu svo í fararbroddi með fánann á lofti utar eftir
kirkjunni, og lutu Norðmenn í þögn á meðan. Síðan
var gengið úr kirkju.
Séra Bjarni stanzaði fyrir neðan kórtröppurnar.
Gengu nokkrir Norðmenn til hans og tóku í hönd
honum. Þar á meðal Gerd Grieg. Datt mér þá í hug,
að hún væri konan með kórónuna, sem ég sá í
draumnum. Þegar ég gekk heim frá þessari kirkju-
athöfn, fannst mér margt af því, sem ég sá og heyrði,
minna mikið á sumt af því, sem bar fyrir mig í
draumnum. Fátt eða ekkert var þó alveg eins, en mér
fannst mega lesa út úr því táknræna líkingu. Þetta
var minningarathöfn fyrir þjóð, sem var í sorg og
þrengingum. Gátu blöðin, sem dreift var um bekk-
ina, með norska fánanúm á forsíðu, og andlegum
sálmum og ljóðum þessarar þjóðar, bent á sorgar-
slæðurnar í stiganum. Þessi blöð voru viðstaddir að
tína upp til minningar um þessa athöfn. Ekkert sá
ég samt, sem mér fannst minna á herbergið með
konumyndunum, sem bundið var fyrir munninn á.
Það gat þó verið eitthvað táknrænt upp á þetta
sama.
En nokkrum dögum síðar var ég á gangi í Austur-
stræti. Þá voru sýndar í skemmuglugga Haraldar
Árnasonar myndir, sem norskur listamaður hafði
teiknað af búningum fyrri tíma, viðvíkjandi veizl-
unni á Sólhaugum, sem þá var verið að leika hér.
Eina mynd sá ég þar, þar sem hálft andlitið var
hulið með einhverjum dúk, og sumar myndirnar
báru líka eins konar kórónu, líkt og fólk það, sem
mig dreymdi að gekk í fararbroddi inn að kórnum í
í kirkjunni. Þessar myndir voru líka liður í því sama,
sem gerðist í kirkjunni 17. maí, og skoðaði ég þetta
sem viðbót á ráðningu draumsins.
Svo var það í ágústmánuði í sumar, að ég var
nokkrum sinnum við heyvinnu uppi á Lágafelli.
Þegar við vorum niður á túninu, suðaustur af
bænum, fannst mér aðstaðan vera mjög lík og í
draumnum um páskana, þegar ég þóttist vera að
vinna skammt frá hinum óþekkta bæ, sem ég hugði
vera Jerúsalem.
Þarna stóð kirkja uppi á túninu og nokkur hús
nálægt henni, tvö íbúðarhús og nokkur gripahús. Og
skammt frá var allstórt þorp af hermannaskálum.
Þarna hafði ég aldrei fyrr komið, og var því allt
fremur nýstárlegt fyrir mér á Lágafelli. Og hér í ná-
fn5i
^<>><><><><>>>><><><><><>>>>>><><>>><><><>*<>^<>^<>3><>$:*W,¥$'¥^<>
HLÍNARMERKIÐ tryggir yður góða vöru)
t
r>
Höfum ávallt
bæjarins fjölbreyttasta úrval af<j
Prjónavörum
Verðið skuluð þið athuga
og dæma sjálf
I
*
HLÍN
Laugavegi 10 — Sími 2779
<>>>.>><><><><>>>>>>>0^><><>o<>>>e<í<>><><>><><><>^<><><>>>>>-><>o
Gleðileg jól!