Morgunblaðið - 20.07.1975, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JULl 1975
35
föður síns. Um það efni segir
hann sjálfur svo í „bókinni
um Sigvalda Kaidalóns": „Ég
leit upp til föður míns og
dáði hann. Eftir að ég var
kominn á fullorðins ár, fékk
ég dýpri skilning á verkum
hans og fannst að á mér hvíldi
skylda að heiðra minningu hans
og koma verkum hans á framfæri
með útgáfum. Að þessu hef ég
unnið milli 20 og 30 ár, og nú er
svo komið að flest tónverk hans
eru komin út i heftum, og á plöt-
um eru 60 til 70 lög. 180 lög eru f
heildarútgáfu og að auki sér-
prentanir á einblöðungum."
Ekki mun ofmælt, að í þessu
efni hafi Snæbjörn unnið umtals-
vert afrek þjóðinni til gagns og
ánægju og honum sjálfum til hins
mesta sóma. Hefur hann með
þessu verki reist sjálfum sér verð-
ugan bautastein.
Nú að leiðarlokum fylgir hinum
látna heiðursmanni hlýr hugur
samstarfsmanna i STEFi og
þakkir skulu hér fram bornar
honum til handa frá STEF-stjórn,
starfsmönnum félagsins og rétt-
höfum öllum fyrir mikið og gott
starf í þess þágu.
Eftirlifandi dætrum hans frú
Ester og Erlu Kaldalóns, svo og
systkinum hans og öðrum vanda-
mönnum eru fluttar samúðar-
kveðjur.
Sigurður Reynir Pétursson.
Minning:
Bjarni
Jóhann
Oskarsson
Fæddur 16. 4.1955.
Dáinn 12. 7.1975.
Lifa og gleðjast
lífs um fáa daga.
Heilsast og kveðjast
það er lífsins saga.
Ósjálfrátt flugu mér í hug þessi
orð þegar ég mjög að óvörum
frétti um hið sviplega fráfall
vinar míns og vinnufélaga Bjarna
Óskarssonar, sem lést af slysför-
um 12. júlí s.l. Þegar ég kvaddi
hann að loknum vinnudegi
daginn áður, grunaði mig síst að
það yrði okkar hinsta kveðja i
þessu lífi.
Svo mjög kemur dauðinn að
óvörum þegar hann á svipstundu
heimtar lif ungs manns sem átti
með réttu að eiga lifið framund-
an.
Bjarni var fæddur 16. apríl
1955 og var þvi tvitugur þegar
dauða hans bar að höndum. Hann
var sonur hjónanna Sigurjónu
Marteinsdóttur og Óskars Bjarna-
sonar, Leifsgötu 21 hér i borg,
Guðlaug Guðmunds-
dóttir - Minningarorð
Fædd 16. september 1892
Dáin 11. júlí 1975
Þeim fækkar nú óðum sem
minnast bæjarlífsins eins og það
var hér í upphafi þessarar aldar
þegar fólk lifði einföldu lífi og
undi við sitt. Þá voru morgnarnir
langir og bjartir í vesturbænum,
en lítil stúlka kvik á fæti og
dálítið freknótt i framan gaf öllu
vökult auga sem gerðist í kring-
um hana og geymdi það trúlega í
minni um langa ævi.
Þessi stúlka hét Guðlaug
Guðmundsdóttir. Hún var fædd í
Grindavik 16. september 1892
dóttir Guðmundar Einarssonar
sjómanns og Herdísar Aradóttur.
Brimgarðurinn i Grindavik tók
föður hennar frá henni þegar hún
var kornung og var henni þá
komið i fóstur til Reykjavíkur til
hjónanna Bjarna Arnasonar og
Önnu Guðmundsdóttur. Reyndust
þau henni sem bestu foreldrar, en
dóttir þeirra hjóna Elísabet gift-
ist síðar Jóni Guðmundssyni
seglameistara og batt Guðlaug eða
Lauga eins og hún var venjulega
kölluð, mikil tryggðabönd við það
ættfólk allt.
Hún gekk í barnaskóla i Reykja-
vik en fór siðan að vinna fyrir sér,
og svo lánsamir voru foreldrar
mínir að ráða hana í þjónustu
sína inn að Kleppi að gæta barna-
hópsins. Komu þá brátt mann-
kostir hennar vel í ljós.
Móðir okkar fór iðulega i
siglingu til ættingja í Danmörku
og gat þá ókvíðin skilið barna-
hópinn eftir í umsjá Laugu, og
svo mikið traust bárum við sjálf
til hennar að við héldum að hún
kynni ekki að hræðast. A spftalan-
um var þá oft mjög sjúkt fólk sem
hætta gat stafað af, þar sem
róandi lýf þekktust þá ekki, en
aldrei urðum við börnin fyrir
neinu hnjaski og var það ekki sist
árvekni Laugu að þakka og eins
þvi hvað hún hafði gott lag á þvi
að eyða ótta og tortryggni milli
fólks.
Það var eitthvað í fari hennar
sem bar með sér einhvern æðri
mátt, kannski var það augnaráðið
sem sumum þótti við fyrstu kynni
seiðmagnað, jafnvel stingandi, en
við sem þekktum hana vissum að
hún sá lengra en annað fólk. Fór
um tíma mikið orð af skyggni-
hæfileikum hennar, sem hún
mikiaðist þó ekki af, en margir
leituðú til hennar í raunum
sínum og fóru þaðan glaðari i
bragði.
Eins gat hún undir vissum
kringumstæðum fallið í dá, en
blýanturinn lék i hendi hennar þó
hún lægi fram á borðið og fylgdist
ekki með því sem hún skrifaði.
Það varð mér mikið undrunarefni
þegar ég sá eitt sinn hvernig rit-
hönd hennar sem var mjög við-
vaningsleg i vökuástandi gjör-
breyttist i þessu dái og varð stíl-
hrein og leikandi.
Eftir að faðir minn var hættur
læknisstörfum á Kleppi og fluttur
í Suðurgötuna gerðist Guðlaug
um hríð starfsmaður á elli-
heimilinu Grund, en síðan varð
hún um árabil gæslukona á barna-
leikvelli við Grettisgötu. Og þá
sem fyrr hændust börn að henni.
Hún rækti vináttu við fólk af
öllu tagi og á öllum aldrei. Það
var ailtaf ró og æðruleysi í fari
hennar. Á yngri árum fór hún
víða um landið á reiðhjóli, lenti
oft í svaðilförum, en alltaf lagðist
henni eitthvað til þegar sist varði.
Á efri árum fór hún tvívegis til
Vesturheims að heimsækja
Guðrúnu systur sina í Kanada og
Helgu Sigurðsson Potter i Texas.
Hún fór ein sins liðs, mállaus á
erlendar tungur, um þver og endi-
löng Bandaríkin, og það var I
senn kátlegt og furðulegt að
heyra hana segja frá þvi hvernig
hún bjargaði sér út úr vanda fyrir
einskærar tilviljahir. En aldrei
kom henni neitt á óvart og hún
var alltaf jafn æðrulaus. Því hélt
hún til hinstu stundar.
Alltaf bar hún takmarkalausa
umhyggju fyrir öðrum og kvart-
aði 'ekki um eigin hag þó að
heilsan væri farin.
Með þakklæti í huga minnumst
við systkinin þessarar góðu konu
þegar hún á morgun verður borin
til hinstu hvildar.
Agnar Þórðarson.
næsiyngstur ijogurra systkina.
Hann hafði nú stundað nám i
húsasmiði um þriggja ára skeið og
rækt það með prýði. Atvikin
höguðu því svo að við Bjarni unn-
um saman siðustu árin og þekkt-
umst við því vel, bæði á því sviði
og öðrum. Kynning okkar var góð,
þvi það ej- ekki ofmælt að Bjarni
var oftast léttur í lund og glaður i
viðmóti og smitaði aðra með glað-
værð sinni. Hann var líka
drengur góður og og vinur vina
sinna. Aldrei lét hann það á sig fá
þótt móti blési, en eygði jafnan
björtu hliðarnar á tilverunni.
Slikir menn finnast ekki of marg-
ir og því er hart að lúta því að
þessi lífsglaði drengur sé nú
kallaður burt í blóma lífsins.
Við drúpum nú höfði vinir
hans, þegar burtu er glaðværasti
félaginn úr okkar hópi, en
foreldrum hans, systkinum og
unnustu þið ég blessunar í sorg
þeirra.
Bjarni er nú horfinn til betri
heims að okkar trú. Honum fylgja
kveðjur og þakkir okkar vina
hans og félaga sem áttum með
honum samleið á stuttri ævibraut
hans. Nú er stórt skarð í okkar
hópi en eftir stendur minningin
um einlægan félaga og góðan
dreng sem ekki mun gleymast.
J.M.Í.
Kveðja frá lítilli frænku
Vort lff er svo ríkt af Ijóssins þrá,
að lokkar oss himins sólarbrá,
og húmið hlýtur að dvfna,
er hrynjandi geislar skfna.
Vor sál er svo rík af trausti og trú,
að trauðla mun bregðast huggun sú.
Þó ævin sem elding þjóti,
guðs eilffð blasir oss móti.
Aímælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á I
miðvikudagsblaði, að berast i
stðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera í sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu línubili.
Vort hjarta er svo rfkt af hreinni ást,
að hugir f gegnum dauðann sjást.
— Vér hverfum og höldum víðar,
en hittumst þó aftur — sfðar.
(Jóhannes úr Kötlum)
Badda þakka ég allt. Ég veit að
Guð geymir hann.
Birgitta Osk.
AUr.I.ÝSINGASÍMINN ER:
22480
JRvrgnnlihiiiti
t
Maðurinn minn,
VIGGÓ F. SIGURÐSSON,
Borgarholtsbraut 48,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. júli kl. 1 3.30
Fyrir mlna hönd, barna, tengdabarna, barnabarna og systkina,
ValgerSur Ólafsdóttir.
MEKKA
Stórglæsileg ný skápasamstæða
með höfðingjasvip
Nýja skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar
hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og
glæsilegt útlit. Sérstök hillulýsing í kappa.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið
eftir plötuhillum, vín-og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og
hljómburðartæki, o.s.frv.
Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik í wengelit, sem gefur stofunni
höfðinglegan blæ. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir sérstaklega hagkvæmt
verð.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf,
Jón Loftsson hf.
Híbýlaprýði
Borgarnes: Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Akureyri: Augsýn hf.
Húsavík: Hlynur sf.'
Selfoss: Kjörhúsgögn
Keflavík: Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA