Morgunblaðið - 20.07.1975, Qupperneq 48
PLAST
ÞAKRENNUR
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
c§b Nýborg?
O Ármúla 23 — Síml 86755
\
ALLTÁ EINUM STAÐ
IÐNVAL
BYGGINGAÞJÓNUSTA I
9
83155
83354
BOLHOLTI 4
REYKJAVÍK
SUNNUDAGUR 20. JÍJLl 1975
Ljósm. Mbl. Kristinn ólafsson.
SKÁTAMÓT — Skátar f jölmenntu út í Viðey um helgina á mót Landnema. Á mótinu
var fjölbreytt dagskrá og sýnir myndin skátana ganga fylktu liði að varðeldi á
föstudagskvöld.
Togarar fá kol-
muna í trollin
Tveir bátar
eru farnir
á loðnuveiðar
TVEIR BÁTAR, Guðmundur RE
og Eldborg GK, héldu til loðnu —
og kolmunnaveiða úti fyrir Norð-
ur- og Austurlandi f gærkvöldi.
Eru þetta fyrstu bátarnir, sem
halda til þessara veiða á þ. ssu
sumri, en fleiri skip munu brátt
bætast f hópinn. Allt eins getur
verið að skipin leggi áherzlu á
kolmunnaveiðar úti fyrir Aust-
fjörðum, en fregnir hafa borizt
þaðan um mikla kolmunnaveiði
togara þar.
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur og leiðangursstjóri á Arna
Friðrikssyni, sagði í samtali við
Morgunblaðið i gær, að togara-
skipstjóri hefði haft samband við
sig á föstudag og skýrt frá mikilli
kolmunnaveiði togaranna á
Austfjarðamiðum. Hafa togararn-
ir fengið nokkur tonn af kol-
munna i hverju haii, en henda
honum öllum, þar eð verð á
bræðslufiski er það lágt, að ekki
borgar sig að halda kolmunnan-
um til haga.
Jakob sagði að þeir á Árna
hefðu haldið austur fyrir Langa-
nes i fyrrakvöld, þar eð illa gengi
að leita að loðnu úti fyrir Norður-
landi vegna íss. í gærmorgun var
Árni Friðriksson staddur í Bakka-
Framhlið bæjarins 50 m löng
Uppgröftur hefet að nýju við
bæjarrústirnar í Álftaveri
UNDANFARIN 3 sumur
hefur Gísli Gestsson og að-
stoðarfólk hans unnið að
bæjaruppgreftri austur í
Álftaveri. Þar hefur fund-
ist geysistór bær, alls 8
hús, og er framhlið bæjar-
rústanna yfir 50 metra
löng. Talið er að bærinn sé
frá miðöldum og hafi eyði-
lagst í Kötluhlaupi.
Gisli Gestssbn sagði i samtali
við Morgunblaðið í gær, að nú
stæði til að taka til höndum við
uppgröftinn á ný 4. sumarið f röð
og vonandi yrði hægt að ljúka við
uppgröftinn á þessu ári. Þessi
uppgröftur væri mikið fyrirtæki
og aðstæður allar frekar erfiðar.
Hann sagði, að þessar bæjar-
rústir væru mjög merkilegar, að
líkindum væru þær frá miðöldum
og hefðu eyðilagst í Kötluhlaupi á
sinum tíma. Allar bæjartóftirnar
væru óvenju skýrar. Þegar væri
búið að grafa upp, — sem þeir
kölluðu, — 8 hús og 2 væru eftir.
Húsin væru geysilega stór og ef
hægt væri að bera þau saman við
einhverjar fornminjar hér á
Gróðureyðingin
er að stöðvast
í Þingeyjarsýslu
„GRÓÐUREYÐINGIN er greini-
lega að stöðvast núna og það
skemmist ekki öllu meira á þessu
sumri. Hins vegar er það spurn-
ing hvað gerist næsta sumar/
sagði Bjarni Guðleifsson, til-
raunastjóri á Möðruvöllum við
Akureyri, er Mbl. ræddi við hann
f gær. Bjarni skoðaði i fyrradag
gróðurskemmdirnar á þingeysku
heiðunum.
Bjarni sagðist hafa séð maðkinn
i eyðileggingarstarfinu, en það
eru lirfur birkifiðrildisins sem
talið er að skaðanum valdi. Étur
maðkurinn bæði brum og blöð.
Hafa víðir og fjalldrapi orðið
langverst úti en lyng er einnig illa
farið oggætiþarveriðumað ræða
samspil maðksins og hinna miklu
þurrka sem þarjia hafa verið að
undanförnu. Er svæðið alsvart yf-
ir að líta á 60 ferkilómetra svæði.
Bjarni sagði, að hins vegar virtist
grasið lifa af þennan ófögnuð og
taldi hann að með áburðargjöf
yrði þetta jafnvei betra beitiland
en áður, en einhæfara.
Bjarni Guðleifsson sagði að lok-
um að tvö siðustu vor hefðu verið
þurr á þessum sióðum og gæti
þær aðstæður hafa skapað hag-
stæð skilyrði fyrir þennan vágest.
Ekkert væri hægt að gera til að
stöðva þetta, náttúran ein gæti
bægt þessu frá.
landi, ætti það að koma fram að
þau væru stærri en Stangar-
bærinn í Þjórsárdal. Framhlið
bæjarins væri yfir 50 metra Iöng.
Þá sagði Gísli, að enn hefði ekki
fundist margt merkilegra muna,
einna merkilegast væri dálitið af
timbri og algengustu hlutir, sem
notaðir hefðu verið á þeirri tið.
Gert er ráð fyrir að uppgröft-
urinn hefjist að nýju í lok þessa
mánaðar eða byrjun ágúst.
Strætisvagnaferðir
að hefjast í Eyjum
LEIGUBlLSTJÓRI í Vestmanna
eyjum, Georg Stanley Áðalsteins-
son, hefur nú fest kaup á notuð-
um strætisvagni frá Strætisvögn-
um Reykjavfkur og hyggst gera
tilraun með fastar strætisvagna-
ferðir um Vestmannaeyjabæ.
Stefnir hann að þvf að hefja
aksturinn á þjóðhátfðinni f Eyj-
um um verzlunarmannahelgina.
flóadýpi og yzt í dýpiskantinum
höfðu fundist daufar kolmunna-
lóðningar. Innar fundust klesstar
kolmunnalóðningar niður við
botn, og því auðvelt fyrir togar-
ana að ná þessu upp í botnvörp-
una, en öðru máli gegnir um nót
eða flotvörpu.
Sagði Jakob að þeir myndu nú
síga suður með Austfjörðum og
athuga kolmunnann betur þar,
áður en þeir héldu á ný norður i
loðnuleitina.
Gunnar Hermannsson, skip-
stjóri á Eldborgu, sagði að þeir
ætluðu sér að fara af stað á laug-
ardagskvöld og Guðmundur færi
líklega á svipuðum tíma. Þá er
búizt við að Árni Sigurður frá
Akranesi haldi til loðnuveiða á
næstu dögum og jafnvel fleiri
skip.
Að sögn Gunnars kemur það
allt eins til greina, að veiða kol-
munnann ef hann gefur sig, en sá
fiskur er ekki siðra hráefni en
loðnan og þykir ákaflega ljúffeng-
ur fiskur.
en þá eru að venju geysimiklir
fólksflutningar.
Vagninn, sem Georg keypti, er
af Volvo-gerð, 15 ára gamall, og
fékkst hann á það hagstæðu verði,
að Georg sá sér færst að gera
þessa tilraun. Nú er bæjartækni-
fræðingurinn f Vestmannaeyjum
að hanna leiðakerfi fyrir Georg og
Framhald á bls. 47.
Eyjar:
Kalda
vatnið
60-70
heitt!
HJÓNIN Eyvindur Ólafsson
og Sólveig Kristjánsdóttir hafa
átt við sérstætt vandamál að
glfma sfðan þau fluttu inn í
húsið Suðurgerði 2 f Vest-
mannaeyjum í byrjun júnf sl.
Svo mikill hiti er f jarðvegin-
um við húsið að kalda vatnið
hefur verið 60—70° heitt
þegar það kemur úr krönun-
um. Hefur orðið að setja upp
sérstakan kæliútbúnað svo
vatnið sé nothæft.
Húsið Suðurgerði 2 er efsta
og austasta húsið i Vestmanna-
eyjakaupstað, upp við rætur
Helgafells. Það grófst í ösku í
gosinu en var grafið upp.
Keyptu þau Eyvindur og
Sólveig húsið og fluttu inn í
byrjun júní. Kalda vatnið var
vandamál alveg frá byrjun.
Það var 60—70 gráður fyrst en
hefur síðan kólnað nokkuð en
langt frá þvi nægilega. Hefur
orðið að setja upp sérstakan
tank til að kæla það. Að þessu
sérstæða vandamáli frátöldu
kunna þau hjón hið bezta við
að búa í húsinu.
Hvalveiðin álíka og í
— hófst nú 14 dögum
fyrra
síðar
HVALVEIÓIN hefur gengið
óvenjuvel, það sem af er sumrinu
og f gærmorgun voru 168 hvalir
komnir f land og hvalbátar voru
þá á leið til lands með 6 hvali. Á
sama degi f fyrra höfðu veiðst 176
hvalir, þannig að þá hafði borizt 2
hvölum meira til hvalstöðvarinn-
ar f Hvalfirði, en þá hófst hval-
vertfð 14 dögum fyrr en nú.
Að sögn Magnúsar T. Ólafsson-
ar verkstjóra í hvalstöðinni, er
skipting hvalanna nú þannig, að
24 sandreyðar hafa veiðst, 4 búr-
hvalir og 146 langreyðar. Allur er
hvalurinn vænn og hefur nýting
hráefnis verið með betra móti.
Magnús sagði, að þótt veiðin
hefði gengið mjög vel fram að
þessu, væri ekki víst að það yrði
út allt sumarið. Árið 1968 hefði
hvalveiðin verið mjög góð til loka
júlímánaðar, en eftir það hvarf
hvalurinn af miðunum að miklu
leyti, auk þess sem náttmyrkur og
þokur töfðu fyrir veiðunum. Þá
fengust ekki nema 70 hvalir í
ágúst og september.