Morgunblaðið - 25.04.1976, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
88. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1976
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Bergman til
Þýzkalands
Berlin, 24. apríl. NTB
LEIKSTJÓRINN Ingmar
Bergman, sem nú hefur flutt
frá Svíþjóð vegna skatta-
hneykslis, mun vinna að gerð
nýrrar kvikmyndar i Vestur-
Þýzkalandi, að því er talsmað-
ur kvikmyndafélagsins Tobis
sagði í dag. A upptakan að
hefjast í Miinchen 19. ágúst.
Handritið skrifar Bergman
sjálfur og Liv Ullman leikur
aðalkvenhlutverkið.
Barn úr til-
raunaglasi?
London, 24. apríl.
Reuter.
í BREZKA læknatímaritinu
Lancet i gær skýra tveir kunn-
ir brezkir sérfræðingar, dr.
Bob Edwards og Patrick
Steptoe, frá því að í fyrsta sinn
svo vitað sé óyggjandi hefur
kona orðið þunguð með svo-
kallaðri „tilraunaglasaðferð'V
P’óstrið lézt eftir 10 vikur. Að-
ferð þessi felst i þvi að taka
egg konunnar og frjóvga það á
tilraunastofu með sæði manns
hennar. Eftir nokkurn vaxtar-
tíma i tilraunaglasi er hið
frjóvgaða egg sett upp í legið
að nýju i þeirri von að eðlileg
þungun takizt. í þessu tilviki
var hið frjóvgaða egg sett upp í
legið eftir fjóra daga. Talið er
að þetta bendi til þess að von
sé til að aðferð þessi megi
heppnast í framtiðinni.
Kosningar á
Npani í jum
Madrid 24. apríl AP
JUAN Carlos konungur hefur
neytt Carlos Arias Navarro
forsætisráðherra og aðra
íhaldssama ráðherra til að
fallast á að þjóðaratkvæði
verði haldið i júní og hefur þar
með unnið mesta stjórnmála-
sigur sinn síðan hann tók við
völdum fyrir fimm mánuðum.
I'.onungur fékk samþykki
Arias á einkafundi, en hingað
til hefur forsætisráðherrann
viljað biða með þjóðarat-
kvæðagreiðsluna i sjónvarps-
ávarpi til þjóðarinnar 28. apríl
og hún fer sennilega fram 26.
júní samkvæmt áreiðanlegum
heimildum.
Spánverjar verða að þvi
Framhald á bls, 47
Víetnamar
kjðsa sameig-
inlegt þing
Saigon, 24. apríl. Reuter.
NORÐUR- og Suður-
Víetnamar munu á morgun,
sunnudag, ganga til kosninga
um kjör fulltrúa á sameigin-
legt þjóðþing sjálfstæðis
Víetnams í fyrsta sinn í meir
en öld, — eða frá því er fransk-
ar hersveitir náðu á sitt vald
höfninni Danang árið 1858.
243 fulltrúar verða kjörnir frá
Suður-Víetnam og 249 frá
Framhald á bls, 47
Franjieh fellst á
kjör nýs forseta
Beirút, 24. apríl. Reuter.
SULEIMAN Franjieh forseti undirritaði i dag
mikilvæg lög sem gera þinginu I Líbanon kleift að
kjósa nýjan forseta nú þegar f stað þess að bíða
fram f júlf, tveimur mánuðum áður en kjörtfmabil
hans rennur út I september. Þar með hafa aukizt
horfur á að endi verði bundinn á borgarastríðið.
Lögin eru I formi brevtingar á stjðrnarskránni.
(Jtvarpsstöð, sem styður Franjieh, skýrði frá þvl að
skrifstofa forsetans hefði gefið út tilkynningu um
undirritunina.
Líbanska þingið samþykkti
stjórnarskrárbreytinguna ein-
róma fyrir hálfum mánuði. Nú
mun þingið koma saman og kjósa
eftirmann Franjiehs, sem siðan
mun líklega segja af sér, en
ástandið er svo ótryggt að auðveit
er að tefja fyrir lausn.
Afsögn Franjiehs hefur verið
helzta skilyrði líbanskra vinstri
sinna fyrir pólitískri lausn deilu-
málanna I Líbanon. Þeir féllust á
vopnahlé fyrir 22 dögum til þess
að tryggja að nýr maður gæti tek-
ið við forsetaembættinu með frið-
samlegum hætti.
Þrátt fyrir vopnahléð hafa 50
menn fallið að meðaltali á dag. í
morgun særðust tveir þegar árás
var gerð á flugvöllinn í Beirút
með þeim afleiðingum að loka
varð flugvellinum um tima, lítið
tjón varð í árásinni.
Harðar árásir vinstrisinna á for-
setahöllina i síðasta mánuði urðu
til þess að Franjieh forseti flýði
og kom sér upp nýjum bækistöðv-
um á svæði kristinna manna
norður af Beirút. Hann hefur ver-
ið sakaður um að ríghalda i völdin
en sum blöð segja að krafa hans
hafi verið sú að ró ríkti áður en
hann segði af sér þótt ekkert lát
hafi orðið á bardögum.
Kínverjar
saka Rússa
um rányrkju
New York, 24. april Reuter
KÍNVERJAR hafa gagnrýnt
Rússa fyrir „gegpdarlausa“
eflingu flota sins, rányrkju á
fiskimiðum heimsins og leit að
herbækistöðvum í einhverri
harðorðustu yfirlýsingunni
sem fram hefur komið á haf-
réttarráðstefnunni.
Kinverski fulltrúinn, Lai Ya-
li, sagði að heimshöfin væru
orðin vettvangur æðisgengins
kapphlaups risaveldanna.
Hann sagði að yfirráð á heims-
höfunum hefðu alltaf verið
mikilvægur liður í baráttu
óheyrilegra metnaðargjarnra
sovézkra „sósialimperialista."
Sovézki fulltrúinn, Semyon
Kozyrev, greip tvisvar sinnum
fram í fyrir Lai og í svari sinu
gagnrýndi hann Kínverja fyrir
að rangtúlka afstöðu Sovét-
ríkjanna.
Kosningahiti
er í Portúgal
Lissabon. 24. apríl. Reuter.
— SJA GREIN IIM KOSNINGARNAR I
PORTÚGAL A BI.S. 16 —
UNGLINGUR beið bana í eldi
í aðalstöðvum hinnar vinstri
sinnuðu stjórnmálahreyfingar
MDP í bænum Coimbra, norð-
ur af Lissabon snemma í morg-
un, en lögreglan telur að hann
hafi verið flækingur sem
kveikt hafi í sér af slysni.
Kosningabaráttunni fyrir
fyrstu frjálsu kosningarnar til
löggjafarþings i Portúgal i 50
ár lauk á miðnætti og voru
slagsmál og stympingar víða i
og umhverfis höfuðborgina og
mikill hiti í mönnum. Almennt
rikti þó baráttugleði og mikill
áhugi á kosningunum
Gegn olíuborunum
við Norður-Noreg
Ösló, 24. apríl. Reuter.
SAMBAND fiskimanna* í
Noregi og nefnd visindatnanna
hafa lagt fast að stjórninni að
fresta fyrirhuguðum tilrauna-
borunum eftir olíu undan
strönd Norður-Noregs vegna
fiskverndunarsjónarmiða.
Áður hefur yfirstjórn olíu-
mála varað við því að 1.500.000
lestir af oliu gæti lekið f
Norðursjó vegna tilraunabor-
ana áður en neyðarráðstafanir
hefðu áhrif.
Nefnd visindamannanna
ræður frá oliuvinnslu ef olía
finnst við Norður-Noreg og
leggur til að ef olía finnist
verði holunni lokað þegar í
stað og borunum frestað þar til
„næg vistfræðileg vitneskja"
liggi fyrir.
Samband fiskimanna hvetur
til þess að stjórnin hætti við
fyrirhugaðar tilraunaboranir
þangað til öryggisvandamál
hafa verið leyst.
Odvar Nordli forsætisráð-
herra hefur svarað því til að
útgáfa hvítrar bókar um til-
raunaboranir verði rædd á
fundi stjórnarinnar i næstu
viku.
Þar verður tekin afstaða til
þess hvort boranir skuli
hafnar næsta sumar eða þeLn
frestað í eitt, tvö eða þrjú