Morgunblaðið - 25.04.1976, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1976
Kosningar í
Portúgal í dag:
eftir Jóhönnu
Kristjónsdóttur
Sófáalistum og
alþýðudemó-
krötum spáð
mestu fylgi
en talið að CDS fylgi fast á eftir
Cunhal formaður P(!P.
Carneiro, formaður PPD
Soares formaður PS.
Amaral, formaður CDS
MARGIR eru þeirrar skoðunar að
aðalbaráttan í þeim fyrstu þingkosn-
ingum í röska hálfa öld, sem fram
fara i Portúgal i dag, standi milli
tveggja manna og flokka þeirra Það
eru þeir Mario Soares, formaður
Sósialistaflokksins PS, og Fransisco
Carneiro, formaður Alþýðu-
demókrataflokksins Alls bjóða fram
sextán flokkar og flokksbrot og við-
búið er að kosningaþátttaka verði
mjög mikil Það er og augljóst að
stjórnarmyndun að kosningum lokn-
um getur orðið flókið starf, svo
fremi Mario Soares standi við þá
yfirlýsingu sína að taka alls ekki þátt
i samsteypustjórn Að öllum likind-
um er þetta þó aðeins kosninga-
bragð til að reyna að sópa atkvæð-
um til sósíalista, þar sem mikill fjöldi
óbreyttra og óákveðinna kjósenda
hyggur það óhugsandi að stjórn
verði mynduð sem sósíalistar sætu
ekki i
Sú stjórn sem mynduð verður er
sekki öfundsverð Efnahagsvandi
landsins hefur vaxið stöðugt, verð-
bólgan færist i aukana með hverri
vikunni sem líður Vandamál flótta-
fólksins frá Angola og Mósambik
eru leyst til bráðabirgða, með því að
flóttafólkið hefur m a fengið inni á
velflestum gistihúsum i landinu og
nýtur ótakmarkaðra atvinnuleysis-
bóta, en slíkt er vitanlega engin
framtiðarlausn
En þótt forystumenn PS og PPD
séu mest i sviðsljósinu nú eru þó
fleiri sem við sögu koma, þar er
Diego Freitas do Amaral, formaður
Miðdemókrataflokksins, CDS, og
einn bíður enn átekta, hinn fráneygi
foringi kommúnista Alvaro Cunhal
og er hann langelztur þessara
fjögurra flokksleiðtoga Milli flokka
þessara manna mun baráttan standa
og flestir gera sér grein fyrir að aðrir
flokkar sem bjóða fram munu hljóta
sáralítið fylgi og naumast svo að
nokkrum sköpum skipti
Soares: Föðurlegurog klók-
ur atkvæðaveiðari
Mario Soares, formaður
Sósíalistaflokksins þykir þeirra
slyngastur kosningamaður. föður-
legur ásýndum og hefur sýnt að
honum er einstaklega lagin sú list að
sannfæra kjósendur sína Ekki leikur
heldur neinn vafi á að Soares er sá
sem persónulega nýtur langmests
og almenns trausts meðal landa
sinna Hann er maður alþýðlegur í
framkomu, og kann einnig vel að
vera með höfðingjum. Hann er
frábær mælskumaður, hugdjarfur
og snjall. Hann ríkir yfir flokki sínum
af fágætri lagni, þar sem hann glím-
ir við þá erfiðleika að innan vébanda
sósíalistaflokksins er marglitari hóp-
ur en innan hinna flokkanna þriggja
Þegar Soares sneri heim úr útlegð
inni í París eftir byltinguna fyrir
tveimur árum, bjuggust fæstir við
því að hann væri nægilega harð-
skeyttur til að ganga á hólm við
hin þrautskipulögðu samtök
kommúnista í landinu. Engu að
síður tókst honum með harðfylgi og
seiglulegri þrjósku að draga smám
saman úr framsókn kommúnista á
síðasta ári Hann tefldi í mikla tví-
sýnu í fyrrasumar, þegar hann tók
þá ákvörðun að fara með flokk sinn
úr ríkisstjórn og sumir spáðu að
pólitískum ferli hans væri lokið
Síðar hefur komið í Ijós að sú
ákvörðun varð býsna drjúg til
árangurs
Þeir sem gagnrýna Soares segja
að hann hagi seglum um of eftir
vindi og hann búi ekki yfir pólitískri
dýpt. En þar kemur aftur til sögunn-
ar sá margþætti skoðanamunur sem
er á flokksmönnum hans sem
spanna allt frá marxistum til hæg
fara sósíaldemókrata og þarf þvi
ótrúlega leikni og festu til að halda
flokknum saman. Sjálfur á Soares
sjálfsagt meira samleið með stefnu
jafnaðarmannaflokka í Vestur
Evrópu og hefur enda sýnt það, þó
svo að slíkt hafi einnig verið gagn
rýnt heima fyrir
Svo kann að fara að Soares bjóði
sig fram við forsetakosningarnar i
landinu síðari hluta júnímánaðar. Er
þá talið að við forystu flokksins taki
Fransisco Salgado Zenha, núverandi
fjármálaráðherra og" náinn sam
starfsmaður Soares Zenha nýtur
mikils álits meðal portúgalskra
sósíalista, enda þótt hann standi
enn í skugga hinna persónulegu
ástsælda Soaresar
Carneiro: Harkaleg afstaða
til kommúnista og þykir
ekki alltaf samvinnuþýður
Fransisco Carneiro, formaður
Alþýðudemókrataflokksins PPD, er
fertugur að aldri, grannvaxinn mað-
ur með skarpa andlitsdrætti og
magnaðan og alvörugefinn persónu-
leika Hann hefur ákaflega ein-
dregna og harkalega afstöðu til
kommúnista og segir fráleitt að PPD
fari í stjórn með þeim eða hafi
nokkuð saman við þá að sælda
Innan PPD á Carneiro einnig við sitt
að glíma Þegar stjórnlagaþingið sat
að störfum var hann sjúkur og við
forystu flokksins tók þá varafor-
maður hans, maður sem var vinstri-
sinnaðri og talið að töluverður
ágreiningur hafi komið upp innan
forystunnar, vegna þess að Carneiro
mun hafa þótt sem flokkur hans
hneigðist um of í áttina til
kommúnista
En þegar áhrif °g ítök
kommúnista voru í hámarki að
haustnóttum kom Carneiro fram á
sjónarsvið á ný, hleypti nýju lifi í
flokkinn, boðaði til fjöldafunda,
ferðaðist vítt um landið og gaf kjarn-
yrtar yfirlýsingar sem allar miðuðu
að því að draga úr hugsanlegum
vinstriáhrifum á flokkinn. Með
þessu vakti Carneiro gremju MFA-
hreyfingar hersins, en stuðnings-
menn flokksins þjöppuðu sér saman
og Carneiro hafði vissulega ekki tal-
að fyrir daufum eyrum Enda þótt
hann sætti ámæli innan flokksins,
skeytti hann því engu og á flokks-
þingi PPD um áramótin í Aveiro,
treysti Carneiro sig enn í sessi og þá
var lýðum Ijóst að flokkurinn átti
ekki annan traustari leiðtoga
Carneiro er ættaður frá Oporto
Hann segist vona að ,,hinn þögli
meirihluti" greiði flokki sinum at-
kvæði. En vegna þess hve Carneiro
er harðskeyttur og óvæginn hafa
persónuleg samskipti hans við aðra
flokksleiðtoga verið mjög kuldaleg
Carneiro hefur sagt að hann geti
mæta vel sætt sig við að fara í
stjórnarsamstarf með PS og CDS, en
alls ekki kommúnistum Hann telur
flokk sinn vera hinn eina sanna
sósíaldemókrataflokk landsins og
hefur hamrað á því í kosningabarátt
unni að PS berjist til atkvæða á
röngum forsendum
Amaral: Uppgangur CDS
ævintýri líkastur
Þriðja aflið er Miðdemókrata
flokkurinn, CDS Leiðtogi hans er
Diego Freitas do Amaral, 34 ára
háskólaprófessor og utan Portúgal
lítt þekktur Hann var persónulegur
vinur Caetanos forsætisráðherra
sem steypt var í byltingunni. Hann
gaf upp á bátinn feril sem háskóla-
kennari árið 1974 við stofnun CDS
og nú spá því allir að CDS verði
þriðji stærsti flokkur landsins eftir
kosningarnar Það í sjálfu sér er
ævintýri líkast í kosningunum til
stjórnlagaþingsins í fyrra var CDS
harkalega leikinn, stimplaður
fasistaflokkur og starfsemi hans tor-
velduð á alla lund, svo að hann gekk
í raun hálflamaður til kosninga CDS
kallar sig miðflokk, þar sem
óhugsandi væri fyrir land eins og
Portúgal að þar kæmi fram á sjónar-
sviðið stjórnmálaflokkur sem teldi
sig hægriflokk
í fyrrasumar, eftir að kosningar
voru um garð gengnar var ofsókn-
um á hendur stuðningsmönnum
CDS haldið áfram og þingmenn
hans sættu afls kyns ásóknum, var
sagt upp vinnu og flest gert til að
torvelda óbreyttum fylgismönnum
CDS að standa við sannfæringu
sína
Einn þingmanna CDS Victor
Samachado er kvæntur íslenzkri
konu, Kirsten Thorberg, og er hann
nú efstur á lista flokks síns í Aveiro.
í samtali við Kirsten á dögunum
sagði hún að birting allra kosninga-
spáa og skoðanakannana hefði verið
bönnuð og þar af leiðandi væri erfitt
að gera sér grein fyrir styrkleikahlut-
föllum flokkanna. Þó mætti ætla að
fylgi CDS myndi vaxa geysilega,
sérstaklega í Norður- og Mið-
Portúgal en í suðri eru kommúnistar
sterkastir. í Lissabon, sem löngum
hefur þó verið talin nokkuð rauðlit-
uð, er búizt við fylgisaukningu CDS
frá því að hafa þrjá þingmenn og allt
upp í sextán Kirsten sagði að svo
virtist sem fólk hefði verið lengur að
gera upp hug sinn nú en í
kosningunum í fyrra og í samtölum
sínum við fólk hefði hún heyrt mun
meiri óákveðni hvað kjósa skyldi.
Ýmsir hafa talið að hin nýja
stjórnarskrá landsins, sem er
marxistisk í grundvallarskoðun, gæti
orðið til að torvelda flokkum eins og
CDS og PPD að taka þátt í stjórnar-
samstarfi En forystumenn CDS hafa
lagt sig fram um að sannfæra fólk
um að stjórnarskráin verði engin
umtalsverð hindrun, enda eðlilegt
að henni verði smám saman breytt í
samræmi við vilja þann sem birtast
mun í kosningunum í dag Hins
vegar voru fulltrúar CDS á stjórn-
lagaþinginu þeir einu sem greiddu
atkvæði gegn nýju stjórnarskránni
þegar hún var borin upp
Diego Freitas de Amaral þykir ein-
hver mestur gáfumaður í röðum
portúgalskra stjórnmálamanna
Hann talar opinskátt og hiklaust um
vinfengi sitt við Caetano, en hann
var fyrrverandi rektor við háskólann
í Lissabon þar sem Amaral var
prófessor Amaral segir og að
Caetano hafi aldrei farið eftir þeim
ráðleggingum, sem hann hafi leyft
sér að gefa honum. Amaral er
..prestlegur" í útliti og hefur verið
dálæti skopteiknara Hann hefur
haldið flokki sínum saman á þessu
harðindatímabili af aðdáunarverðri
stillingu í fyrra þótti hann standa
sig bezt stjórnmálaforingja er þeir
komu fram í sjónvarpi einmitt þegar
vinstri menn höfðu styrkasta stöð-
una og CDS átti mjög í vök að
verjast og varð það honum mjög til
framdráttar
Flokkur Amarals hefur tengsl við
kaþólsku samtökin Opus Dei gegn-
um varaformann sinn Amaro da
Costa, sem aftur hefur svo ákveðin
tengsl við fyrrverandi stjórnvöld, þar
sem hann var aðalráðgjafi hins til-
tölulega frjálslynda menntamálaráð-
herra Jose Veiga Simao. Aftur á
móti er Ijóst að Spinolamálið hefur
ekki haft nein veikjandi áhrif á stöðu
CDS í kosningabaráttunni, þrátt fyrir
ásakanir hins þýzka blaðamanns að
CDS og Spinola væru í bandalagi
um að koma á hægribyltingu. CDS-
menn hafa þá skoðun að Spinola sé
pólitískt dauður og það sé fráleitt að
hugsa sér'að hann eigi einhver ítök í
Portúgal Áhrif hans væru engin nú
og almenningur í landinu teldi hann
gersamlega úr leik og óskaði ekki
eftir honúm
Cunhal: Beiskur maður
sem berst fyrir tilveru sinni
innan flokksins
Kommúnistaflokkurinn hefur átt
erfitt uppdráttar í kosningarbarátt-
unni. Alvaro Cunhal formaður hans
er elztur flokksleiðtoganna, 64 ára
gamall. Hann er þrautreyndur
pólitíkus, hörkutól hið mesta og
beiskur eftir áralangar ofsóknir
fasista og fangelsanir í stjórnartíð
þeirra Hugrekki hans á þeim tímum
aflaði honum óumdeilanlegrar
virðingar en óánægja með forystu
hans síðan byltingin var gerð í land-
inu fer vaxandi. Ekki hvað sízt þegar
haft er í huga hverjar voru hrakfarir
flokksins í kosningunum í fyrra og
bent er á að enn hafi líkur flokksins
til að treysta sig í sessi nú minnkað
stórlega Það veiki enn stöðu hans
hve hann hafi gloprað niður þeirri
óhemju sterku stöðu sem
kommúnistar höfðu komið sér upp í
fyrrasumar og fram eftir haustinu
Þá þykir mörgum sem portúgalski
kommúnistaflokkurinn sé steinrunn-
inn Moskvuflokkur og hafi lítt gert til
að afla sér ákveðins sjálfstæðis eins
og bróðurflokkar hans i Vestur-
Evrópu hafa gert á síðustu árum
Cunhal er agaður maður og hæfari
til að leysa ýmis fræðileg vandamál
en afla sér hylli hins óbreytta
almúga. Verði ófarir kommúnista nú
ótviræðar er ákaflega trúlegt að
flokkurinn telji ekki stætt á því
lengur að Cunhal sé þar í forsæti og
munu flokksbræður hans þá litt hika
við að leita eftirmanns hans og
varpa honum fyrir róða.
Cunhal hefur reynt að sannfæra
almenning um að stjórnarstarf i
Portúgal sé óhugsandi án þátttöku
kommúnista Þessar yfirlýsingar
hans hafa ekki þótt sérlega sann-
færandi og það verður æ Ijósara eftir
að meðbyr CDS fór að aukast að
langlíklegast er að kommúnista-
flokkurinn PCP verði að vera utan
ríkisstjórnar og það er heldur ekki
óhugsandi að slíkt gæti gert
væntanlegri stjórn verulega erfitt
fyrir, þrátt fyrir allt.
Hvað sem öllu þessu líður mun
svo MFA áfram fylgjast vökulum
augum með framvindu mála. Þó er
víst að þeir fjórir flokksleiðtogar eru
þeir sem halda framtíð Portúgals í
hendi sér.