Morgunblaðið - 25.04.1976, Side 17
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRlL 1976 X 7
Nýr bókaflokkur Menningarsjóðs:
Hver þessara lína býður upp á marga valkosti, í vali lita efnis og samsetningu
eininga og verðin eru líka við allra hæfi.
Spyrjið okkur útúr, hringið eða skrifið.
Við tökum málin fyrir yður, skipuleggjum, teiknum og gerum tilboð.
Hagi hf.
Óseyri 4 Akureyri Sími (96) 21488
Hagi leggur línurnar
Hagi hf.
Suðurlandsbraut 6 Reykjavík Sími (91) 84585
Kvæði Jóns Þorláks-
sonar á Bægisá
LENGI hefur verið þörf á
vandaðri útgáfu úrvalsverka
fslenskra bókmennta, jafnt fyrir
fræðimenn og skóla sem fyrir
almenning. Reyndar hlýtur það
að vera metnaðarmál að slfk út-
gáfa sé fyrir hendi, ekki aðeins að
þvf, er lýtur að fornbókmenntum,
heldur og bókmenntum sfðari
alda og nútfmans.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
hefur í samvinnu við Rannsókna-
stofnun í bókmenntafræði við Há-
skóla íslands tekist þetta hlut-
verk á hendur. Ber bókaflokkur-
inn nafnið tslensk rit, og er stefnt
að því að út komi að jafnaði tvær
bækur á ári hverju. Hefur ekki
verið til sparað, að útgáfan verði
sem hentugust lesendum og
smekkvíslega búin. Þannig verða
í hverri bók ýtarlegur formáli og
vandaðar skýringar, sem fræði-
menn á vegum Rannsóknastofn-
unar í bókmenntafræðum taka
saman.
F'yrsta ritið í hinum nýja bóka-
flokki er nú komið út. Er þar um
að ræða Kvæði, frumort og þýdd
eftir síra Jón Þorláksson á Bægis-
á. Er ekki vafi, að vandað úrval
skáldverka þjóðskáldsins verður
mörgum Aufúsugestur. Auk úr-
vals úr ljóðum Jóns Þorlákssonar
eru í bindinu valdir káflar úr
stórvirkjum hans á sviði ljóða-
þýðinga, og hefur Ileimir Páls-
son, sendikennari i íslensku í
Uppsölum annast útgáfuna
samið inngang um skáldið og verk
þess og tekið saman skýringar.
Loks er í ritinu skrá yfir helstu
útgáfur á verkum Jóns Þorláks-
sonar og yfir helstu rit og rit-
gerðir um hann og verk hans. Alls
telur ritið 311 blaðsíður, en þar af
er inngangurinn 54 blaðsíður og
skýringar og athugasemdir 3«
blaðsíður. Gegnt titilblaði er
mynd af rithöfundi Jóns Þorláks-
sonar.
Með þessari útgáfu er að þvi
stefnt að uppfylla óskir jafnl
fræðimanna og bókamanna sem
almennings. Verður unnið að því
að útgáfan geti fyllt skarð á
íslenskum bókamarkaði, sem allt
of lengi hefur verið opið.
(rróllalilkynninK frá
Bókaútnáfu Mfnninnarsjóds)
Örn Ásbjörnsson með
nokkrar mynda sinna.
60 ljösmynd-
ir á Mokka
ÖRN Asbjörnsson opnaði ljós-
myndasýningu á Mokka í gær.
Þar sýnir hann 60 myndir, sem
teknar hafa verið á sl. 6 árum.
Flestar myndanna eru frá
Singapore, Thailandi, Luxem-
borg, Grænlandi og Islandi.
Örn hefur haldið eina ljós-
myndasýningu áður, þá í félagi
við aðra.
Elísabet Þórisdóttir og Viðar Eggertsson í hlutverkum sfnum.
Mjólkurskógur á
fjölunum í kvöld
ELDHÚS
Blómalínurnar irá
Nú bjóðum við algjörlega nýja valkosti í eldhúsinnréttingum,
4 nýjar ,,Blómalínur“
Smæra______________
Ódýrar, litur á hurðum er oregon fura.
Skápastærðir eru 40 — 50 — 80 — 100 cm.
Verð 160—200 þúsund.
Depla
Hurðir plasthúðaðar með álgripum eða
höldum að vali kaupenda. Litaval á hurðum
orange, gulur eða grænn. Skápastærðir
30 — 40 — 50 — 60 — 80 — 100 cm.
Verð 250—280 þús.
Mura___________________
Hurðir spónlagðar með höldum eftir vali
kaupenda. Litir palisander, hnota, venge
(dökkt). Skápastærðir 30 — 40 — 50 — 60
80 — 100 cm. Verð 300—350 þús.
Mynta
Hurðir úr massívri furu eða eik. Skápastærðir
30 — 40 — 50 — 60 — 80 — 100 cm. og fl.
Ýmis konar sérsmíði eftir óskum kaupenda.
Margar gerðir af borðplötum.
Verð 500—700 þús.
NU FER hver að verða sfðastur að
sjá sýningu Nemendaleikhúss
Leiklistarskóla íslands á leikrit-
inu „Hjá Mjólkurskógi", sem sýnt
er l Lindarbæ.
Að sýningunni standa þeir
ellefu nemendur leiklistarskólans
sem brautskrást í vor. Nemenda-
leikhúsið er síðasti áfangi þeirra í
náminu en „Hjá Mjólkurskógi" er
fyrra verkefni þeirra og hefur
verið góð aðsókn að sýningum, en
nemendur hafa þegar hafið
æfingar af fullum krafti á seinna
verkefninu. Það er nýtt músík-
verk með leiknum atriðum og eru
höfundar þekkt tónskáld og rit-
höfundar, sem ekki hafa starfað á
þessum vettvangi áður. Semja
þeir verkið i samvinnu við
hópinn.
Síðasta sýning á leikritinu „Hjá
Mjólkurskógi" verður sunnudag-
inn 25. apríl kl. 21.