Morgunblaðið - 10.10.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1976
19
bera áframhaldandi heimsbyltingar
Lok þeirrar baráttu urðu ekki fyrr en 1 1
árum síðan þegar útsendarar Stalfns
myrtu Trotsky í Mexico.
Upphaf ágreiningsins var á blaði
sem Bajanov sýndi Skrine. Á blaðinu
var rakin dagskrá fundarins, athuga-
semdir fundarmanna og fjallað um
ágreining sem hafði brotizt út í maí
1923, þess efnis hvort tveir ritarar
stjórnmálaráðsins hefðu fengið rétt
verkefni og farið rétt með umræður á
fyrri fundum. Þessi tveir ritarar,
Nasretian og Tovstuka, voru báðir sér-
staklega skipaðir til starfans af Stalíns.
Mátti þvi lita á þetta sem beina árás á
hann og hinn skapbráði einræðisherra
brást vitanlega hinn versti við.
Bajanov útskýrði þetta siðan nánar
fyrir Skrine og enda þótt þetta hefði að
hluta farið fyrir ofan garð og neðan hjá
Skrine skildi hann þó vissulega að
Bajanov var bersýnilega mjög mikil-
vægur flóttamaður, æðstur þeirra sem
komið höfðu til Persiu hvað þá heldur
rekið á fjörur hans.
Þann 4. apríl skrifar ræðismaðurinn
til Teheran og Delhi: „Eftir að hafa
yfirheyrt Bajanov komst ég að þeirri
niðurstöðu að hann segði satt frá og að
flótti hans og Maximovs frá Rússlandi
og ákefð þeirra að komast til Evrópu
byði upp á gullvægt tækifæri fyrir
stjórn hans hátignar til að tryggja sér
upplýsingar frá fyrstu hendi um at-
burði sem eru að gerast og snerta innri
mál Sovétrikjanna. hernaðarmál þeirra
og almennar áætlanir."
Skrine sem var reiðubúinn að annast
málið færðist þar ekki lítið i fang. Hann
sendi skeyti til Steveni, majórs, her-
málaráðunauts Breta í Meshed, og bað
hann að koma á vettvang og aðstoða
sig En Rússarnir nálguðust einnig.
Flélagi Platte, sovézki aðalræðismaður-
inn sem hafði mistekizt launmorðin við
Meshed þremur mánuðum áður,
stjórnaði undirbúningi.
Hrikalegast var þó að Bajanov
hafði séð OGPU-morðinqja og meðal
þeirra hinn alræmda Osipov snuðra í
kringum húsið sem þeir höfðust við í.
Að kvöldi hins 7. apríl héldu þrír
brezkir embættismenn, Skrine,
Maccann og Steveni, eins konar réttar-
höld yfir mönnunum tveimur. Þar eð
flóttamennirnir gátu ekki verið öruggir
þar sem þeir voru og erfitt var að leyna
þeim á ræðismannsskrifstofunni í Duz-
dap varð að flytja þá úr bænum og yfir
landamærin til Indlands. En hvernig
„Engin lest," segir Skrine síðar, „átti að
fara frá Duzdap fyrr en 1 1. apríl og auk
þess hefði verið áhættusamt að smygla
flóttamönnunum út úr Duzdap með
lest um hábjartan dag."
Erfið för
yfir Indland
Þegar hér er komið sögu kemur
maður með þvi hljómmikla nafni
Jammuladdin Mullick til skjalanna.
Mullick var virtur kaupmaður i bæn-
um. Hann átti líka eina bílinn á staðn-
um. Bauðst hann nú til að aka flótta-
mönnunum tveimur um nóttina —
endurgjaldslaust — til Kacha sem var
36 mílur austur af Duzdap.
Um ólýsanlegar vegleysur var að
fara. En engu að síður komust þeir til
Kacha og þar afhenti Mullick mennina
ásamt kynningarbréfi frá Skrine. Þeir
voru komnir til Baluchistan í indlandi
og enda þótt enn væri nokkur vegur
ófarinn til varanlegs öryggis hafði þeim
nokkuð orðið ágengt. Skrine varð nú
að afklæðast gervi Rauðu akurliljunnar
og verða á ný ábyrgur diplómati. Áður
en hann lagði af stað sagði hann
vararæðismanninum hvað hann skyldi
gera ef formlegar fyrirspurnir yrðu
bornar fram um mennina tvo. Átti
Maccann þá að svara þvi til, að stjórn
Baluchistan yrði sagt frá því að komizt
hefðu undan á flótta tveir Rússar
Framhald á bls. 20
Beosystem
901
Útvarp með FM og
miðbylgju. Magnari
2 X 20 sín. vött.
Plötuspilari í sér-
flokki. 2 Uni Phase S
30 hátalarar, sem eru
algjör bylting. Kynnið
yður muninn. Verð
216.905 -
Beosystem
1800
Útvarp með FM
stereo, 4 stöðvar fast-
stillanlegar. Mjög
hagkvæmt þegar jarð
stöð kemur. Magnari
2x22 sín vött. Bjög-
un minni en 0,5%.
Plötuspilarinn er með
Magnesium armi,
sem er léttari, en
aluminum, og gæðin
eru einstök, með létt-
asta tónhaus í heimi.
2 Uni-Phase hátalarar
fylgja. Kynnið yður
hvað Uni-Pase er.
Verð 219.965 -
Beosystem 1600
FM stereo útvarp og magnari 2x22 sín
vött. Stereosegulband með sjálfvirku stoppi
og 2 Uni-Phase, S 30 hátalarar, gera þetta
sett einstakt. Verð 21 9.965.-
BUÐIRNAR
Skipholti 19 við Nóatún,
simi 23800
Klapparstíg 26, sími 19800.