Morgunblaðið - 10.10.1976, Blaðsíða 22
22
VEROLD
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1976
SVARTIR SAUÐIR í SOVÉT
Að gera
sætt og
skemma
ekkert...
hafa verið drukkinn og mundi
hann aldrei hafa gert þetta ella.
Manngarmurinn fékk fimm ára
fangelsi fyrirvikið.
Til er sérstakt tlmarit gegn af-
brotum. Heitir það „Menn og lög“
og koma út 3.3. milljónir eintaka
af þvl. Þá er I sjónvarpinu reglu-
legur þáttur með sama nafni og
markmiði. Þar man ég, að eitt
sinn komu fram bankaræningjar
frá Rostov. Höfðu þeir verið
dæmdir til dauða. I viðtali lýsti
foringi þeirra yfir því, að yrði
þeim gefið líf og frelsi mundu
þeir undir eins taka til við sömu
yðju og frá var horfið. Ætti þetta
að hafa friðað samvizku
dómarans.
Verkalýðsfélög hafa jafnan á
dagskrám sfnum fyrirlestra og
almennar umræður um glæpi.
Sama er að segja um kommúnista-
flokkinn og mörg samtök önnur.
Yfirleitt er glæpum gefinn svo
mikill gaumur í Sovétríkjunum
að ætla mætti, að þeim fjölgaði
heldur en hitt. Vont er þó að átta
sig á þessu, því að staðtölur eru
mjög af skornum skammti og
óræðar þær, sem fást.
Drykkjuskapur hefur aukizt
mjög I Sovétríkjunum á undan-
förnum árum. En drykkjuskapur
er talinn ein meginorsök glæpa.
Áfengisneyzla f Sovét jókst um
nærri 100% á árunum
1970—1973. Og í fyrra reyndust
50% allra dæmdra afbrotamanna
hafa verið undir áhrifum áfengis,
er þeir brutu af sér. Voru það
tvöfalt fleiri en árið 1920, þegar
svipuð könnun var gerð. Stingur
þetta allmjög í stúf við yfir-
Framhald á bls. 47
NÚ er loksins búið að finna áhrifaríkt
meðal við tannskemmdum. Er þegar
farið að setja það I sætindi, tyggigúm
og tannkrem I stðrum stll.
Þetta er nýtt efni, heitir xylitol og er
unnið úr birkiberki. Það hefur flestar
sömu eigindir og sykur — en veldur
aftur á móti ekki tannskemmdum.
Xylitol er eins konar sykuralkóhól Það
er áþekkt sykri bæði að bragði og I
útliti Það er lika jafn orkurikt og sykur.
Það væri þvi óneitanlega hollt mönn-
um, ef þeir gætu hætt að borða sykur
en tekið upp xylitol I staðinn. Þvi miður
eru ýmsir meinbugir á þvi. Xylitol er
m.a dýrara en sykur og r un svo verða
framveigis. Það getur þvr ekki komið i
stað sykurs i allri fæðu.
Það voru Finnar, sem fundu upp á
þvi að nota xylitol Hafa þeir prófað
efnið mjög og virðist efalaust, að það
sé hentugra og öruggara en önnur
varnarefni, sem upp hafa verið fundin
við tannskemmdum. Tveir hópar
stúdenta I Turkuháskóla tóku þátt I
rannsóknum á áhrifum xylitolsins. Var
báðum gert að tyggja gúm i eitt ár;
fengu aðrir venjulegt algengt tyggigúm
en hinir gúm með xylitoli Að ári liðnu
kom I Ijós, að þeir, sem tuggðu sykur-
gúmið höfðu að jafnaði fengið af þvi
þrjár tannskemmdir — en þeir, sem
tuggðu xylitolgúmið höfðu engar tann-
skemmdir hlotið Bandarikjamenn eru
nú að prófa xylitolið fyrir sitt leyti.
Standa vonir Finna til þess, að banda-
riskir tyggigúmsframleiðendur skipti á
sykri og xylitoli I framleiðslu sinni áður
en langt liður. En það er ekki furða,
þótt Finnar séu áfram um það að finna
öflugt ráð við tannskemmdum. 23%
allra Finna eldri en 1 5 ára eru búnir að
missa allar sinar upprunalegu tennur!
Finnskir visindamenn halda þvi
fram, að 10 milligramma xylitol-
skammtur á dag nægi til þess að fírra
menn tannskemmdum alveg Kveða
þeir svo fast að orði, að xylitolið sé ekki
Framhald á bls. 38
NESSIE, hið góðkunna, sögu-
fræga og hlédræga skrfmsli í
Loch Ness f Skotlandi, var móðg-
uð gróflega um daginn. Adrian
nokkur Desmond, steingjörvinga-
fræðingur í Harvardháskóla kom
fram á sjónarsviðið og fullyrti, að
Nessie gæti ekki verið almenni-
legt skrímsl; hún gæti f bezta lagi
verið ógnarlangur áll.
Loch Ness luktist inni f landi
fyrir einum 12 þúsundum ára.
Desmond steingjörvingafræðing-
ur heldur því fram, að ekki hafi
verið nógur fiskur f vatninu til að
kviðfylla heila fjölskyldu
skrfmsla skrímsl fram af skrímsli
i öll þessi ár. Desmond reit um
þetta grein í lært rit, „Vatna- og
haffræði". Eru þar ýmsir útreikn-
ingar varðandi fóðrun skrfmsla.
Telst Desmond svo til, að fiskur-
inn f Loch Ness dugi 3.5—17 tonn-
Skrímsl-
ið er þó
aldrei áll!
um skrfmsla til viðurværis. Des-
mond reiknar síðan með hærri
tölunni af lofsverðri sanngirni og
kemst að þeirri niðurstöðu, að
hvert skrfmsl (þau verða að vera
30 alls til að halda stofninum við)
vegi að jafnaði 550 kíló.
En þessi kenning fellur ekki að
vitnisburði þeirra óljúgfróðra
manna, sem séð hafa Nessie fyrr
og sfðar. Að þeirra sögn er skepn-
an 15—16 metra löng. Desmond
hefur það aftur á móti eftir vatna-
Kapphlaupið
um kvik-
myndaréttinn
HINN fjórSa júll I sumar lentu israels-
menn sem snöggvast á Entebbeflug
velli i Uganda og höfðu burt með sér
100 gtsla. ísraelsmenn voru varia
komnir á loft með gislana, þegar marg-
ir séðir fjáraflamenn sáu samtimis. að
þarna bar vel i veiði. Eins og þá var
sagt frá hér I „Veröld" voru rithöf undar
viða um lönd settir við skriftir að semja
hvellbækur um atburðinn og kvik-
myndafélög fóru að leggja á ráðin um
stórmyndir hverja annarri æsilegri. Er
þetta nú orðinn heilmikill iðnaður og
svo mikill, að Israelsmönnum þykir
nóg um. Það varpaði á þá talsverðum
Ijóma, er þeir bjórguðu gislunum af
flugvellinum, en nú eru þeir farnir að
halda, að óvöndum mönnum takist að
gera úr þessu ómerkilegan hasar. Bæk-
urnar og kvikmyndirnar um björgunina
eru nefnilega ærið sundurieitar.
Israelsmenn sáu fljótlega þann kost
vænstan að tryggja það, að sagan yrðu
„rétt" sögð i einu verki að minnsta
kosti Völdu þeir Warner Brothers úr
stórum hópi umsækjenda, er vildu
gera kvikmynd um björgunina og tók-
ust samningar ekki alls fyrir löngu.
Warner Brothers hétu þvi að verja
mestu kvikmyndagerðarfénu I Israel,
láta nokkuð af gróðanum I Israelska
sjóði til góðgerða og almenningsheilla
og gera auk þess sex kvikmyndir aðrar
en þessa i Israel fyrir árið 1 980. Aftur
á móti fær kvikmyndafélagið góð ráð
hjá ísraelsku leyniþjónustunni, alla þá
aukaleikara, sem þarf (ósvikna her-
menn m.a.s.) og ýmsa dýra leikmuni
svo sem risaflugvélar. Og allt þetta á
kvikmyndafélagið þvi að þakka, að
stjc' rnarformaður þess, Ted Ashley, er
góðkunningi Yitzhak Rabins, forsætis-
ráðherra Israels.
En þau voru nærri 20 kvikmyndafé-
login, sem hugðust gera myndir um
Entebbe. Flest munu liklega kippa að
sé höndum. Ekki þó öll, og m.a. er
20th Century Fox að gera tveggja tima
sjónvarpsmynd og verður hún Ifklega
sýnd fyrst allra þessara mynda. Þá eru
Paramountmenn enn ótrauðir og
hyggjast þeir verða á undan Warner
HEIMKOMA GiSLANNA — Kvikmyndasmiðirnir þóttust komast I feitt.
Brothers. En allir aðrir en Warner
Brothers verða að gera sinar kvikmynd-
ir án aðstoðar fsraelsmanna.
Óvist er, að mikið verði á eftirfarandi
bókum og kvikmyndum um Entebbe
að græða nenia peninga. Fyrstu bókina
um björgunina rituðu tveir blaðamenn,
William Stevenson og Uri Dan. Var
hún samin á einni viku. Hún var rrtuð
fyrir útgáfuna Bantam Books; það for-
lag gefur einkum út svona hvellibæk-
ur. „instant books". I þessari bók er
nokkurn vegínn rétt lýsing atburða.
Ýmislegt varrtar auðvítað. En israelska
leyniþjónustan situr að þeim upplýs-
ingum og hyggst sennilega ekki láta
þær uppi. Þrátt fyrir það má áreiðan-
lega enn græða mikið fé á mörgum
bókum um efni þetta — enda þótt
ekkert verði nýtt i þeim nema höfunda
nöfnin. Og það er efalaust, að fjöl-
margir höfundar hafa þegar fengið eða
munu fá köllun til þess að rita sina
sögu af Entebbe. Það er og jafnvist, að
flestir verða þeir bandarlskir. Þetta vita
fsraelsmenn og þar eð þeir hafa þegar
fengið forsmekkinn uggir þá nú. að
bandariskum hvellbóka og skyndi-
myndahöfundum muni takast að ræna
þá hetjudáðinni og gera úr henni
ómerkilegan byssuhasar. —
CHARLESFOLEY
SOVÉZKIR embættismenn halda
þvf jafnan fram, að glæpum fari
æ fækkandi f Sovétríkjunum.
Nefna þeir oft tölur máli sínu til
stuðnings og af
þeim tölum
mætti ætla, að
lögbrot væru nærri fyrir bí þar
austur frá. Því miður munu þess-
ar staðhæfingar þó meir f ætt við
vonir en raun og veru.
Þess verður oft vart í fjölmiðl-
um, að glæpir eru alls ekki úr
sögunni f Sovétríkjunum. Árið
1974 var þess t.d. getið, að yfir-
völdin hefðu séð ástæðu til að
herða refsingar við ólöglegri skot-
vopnaeign úr þriggja f fimm ára
fangelsi. Einnig þótti einhver
ástæða til þess að ráða sjö
milljónir alóbreyttra borgara til
löggæzlustarfa með lögreglunni;
þetta eru eins konar sjálfboðalög-
regluþjónar. Þrátt fyrir það virð-
ist mér, að sovézk blöð flytji nær
daglega fregnir af einhverjum
stórglæpum. I mörgum blöðum er
jafnvel fastur dálkur undir
glæpafregnir, og eru þær jafnan
ritaðar f allströngum stfl. Bófun-
um er líka jafnan refsað strengi-
lega. Skýrt var frá þvf í blaði
einu, að maður f Biryuza hefði
brotið búðarglugga, farið inn og
haft burt með sér nokkrar perlur.
Hann kom fyrir rétt og kvaðst
PETER
OSNOS
KENGUR IKERFINU