Morgunblaðið - 10.10.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1976
23
LÆKNAMÁL
Fjölmargar læknamiðstöðvarn-
ar eru ekkert nema f járplðgsmið-
stöðvar. Má telja það dæmigert,
að eigendur sumra þeirra kepptu
við klámbókakaupmenn um hús-
næði á góðum stöðum! Það reynd-
ist sameiginlegt öllum fjárplógs-
miðstöðvunum, að læknisþjónust-
an þar var verri en gengur og
gerist annars staðar. Oft og vfða
þóttist hjúkrunarfólk taka
röntgenmyndir af sjúklingum án
þess, að filmur væru f myndavél-
unum. Þá kom fyrir, að röntgen-
myndir væru teknar af brjóst- og
kviðarholi með vélum, sem ætlað-
ar voru til að mynda tennur. Enn
fremur urðu læknar uppvfsir að
þvf, að hlusta fólk f gegnum fatn-
að; og mætti svo lengi telja. Fólk-
ið, sem rannsóknarnefndin sendi
út af örkinni að leita lækninga
eignaðist smám saman dágott rit-
safn gagnslausra lyfseðla. Það lét
alls marga Iftra af blóðsýnum og
tugi lftra af þvagsýnum. En oft
virtist læknum sama hvaða sull
þeir fengu til „rannsóknar".
Konu einni f Los Angeles var
sagt, að þvagsýni hennar hefði
verið eðlilegt. En það, sem einn
telur eðlilegt kann öðrum að virð-
ast óeðlilegt. Og þannig fór þess-
ari konu. Hún hafði nefnilega
blandað saman sápulegi og
hreinsivökva f glasinu, sem hún
átti að nota undir þvagsýnið.
Rannsóknarnefnd þingsins hafði
sex manns til að leita lækna og
gengu þessir „sjúklingar" milli
læknamiðstöðva f fjóra mánuði
samfleytt. Allan þann tfma kom
það aðeins einu sinni fyrir, að
læknir dæmdi „sjúkling“ heil-
brigðan og gæfi honum ekkert við
„veikindum".
Rannsóknarmenn komu f eina
læknamiðstöð, sem auglýst var til
sölu. Eigandinn kvað fyrirtækið
blómlegt; hefðl „afkastamesti"
læknir h.u.b. 100 þúsund dollara
árslaun (18.700.000 kr.). Leikur
væri að „röntgenmynda fyrir
9000 dollara (1.700.000 kr.) á
viku“ — „ef menn nenntu að
leggja eitthvað á sig“ — en auð-
vitað yrði til þess að vinna. Aðal-
atriðið væri að hafa góða starfs-
menn. En það eru læknar, sem
plata sjúklinga f ónauðsynlegar
rannsóknir og selja þeim gagn-
laus lyf. Enn fremur tfðkast það
að greiða ýmsum rfkisstarfs-
mönnum hóflega þóknun fyrir
það að „beina" sjúklingum til
ákveðinna læknastöðva. Áhættan
er vitanlega einhver. Það, sem af
er þessu ári, hafa 74 læknar f New
York verið dæmdir til að greiða
sektir og tveir nuddlæknar f
fimm ára fangelsi. Vonandi
munu þeir hafa fyrir sfgarettum
með læknisþjónustu við sam-
fanga sfna gegn vægri þóknum.
—JONATHANSTEELE
líffræðingum, að svo langt vatna-
skrímsl hljóti að vera miklum
mun þyngra en 550 kíló. M.a.
komst dr. Humphrey Greenwood i
Náttúrusögusafninu í London svo
að orði: „16 metra löng og hálfrar
lestar þung skepna væri ekkert
skrímsli, hún væri bara holdlaus
ormur. Enda getur dýrið ekki ver-
ið svona í laginu.“ Desmond hefur
og bætt þvi við, að beinin ein í
svona skepnu hlytu að vega meira
en 500 kíló. Þegar hér er komið
mun lesendum væntanlega Ijóst,
að Desmond hefur ekki einlægan
áhuga á stærð og lögun Nessie;
hann er hreinlega að reyna að
sanna, að Nessie sé alls ekki til!
Sem betur fer hafa flestir
tryggustu fylgjendur Nessie
reynzt staðfastir í trúnni. Reikn-
ingskúnstir Desmonds hafa ekki
haggað þeim. Hann er líka að gef-
ast upp á þvi að sanna mál sitt
með rökum. „Það þýðir víst ekk-
ert annað en dæla öllu vatninu
upp,“ sagði hann örvæntingarfull-
ur siðast, er hann var spurður um
hitamál þetta...—JOHN EZARD
Ríkið - þvi
getur sko
blætt...
RlKISSTJÓRNIN f Bandarfkjun-
um og stjórnir einstakra fylkja
leggja fram fé til læknishjálpar
og lyfjakaupa handa fátækum.
Nemur þetta u.þ.b. 15 þúsundum
milljóna dollara á ári. Nú er kom-
ið á daginn, að fjórðungur þessa
fjár að minnsta kosti og jafnvel
helmingur hefur ekki nýtzt eins
og ætlað var. Sumt hafa óheiðar-
legir læknar dregið sér, annað
hefur runnið til manna, sem ekki
áttu kost á ódýrri læknishjálp lög-
um samkvæmt og svo hefur tals-
vert eyðst vegna óstjórnar. Mest
mun þó hafa farið til óvandaðra
lækna.
Bandarfkjaþing skipaði nefnd
til að athuga þetta. Frank Moss,
öldungadeildarþingmaður frá
Utah, er formaður hennar. Hann
hafði þann hátt á, að fá fflhraust
fólk til að fara f læknisskoðun f
heilsugæzlustöðvum, sem grun-
samlegar þóttu. Kom þá margt
skrftið f Ijós. Lögregluþjónn einn
leitaði til læknamiðstöðvar f New
York og vildi fá eitthvað við
kvefi. Hann var röngtenmyndað-
ur nokkrum sinnum, fékk fjögur
lyf og f þokkabót var honum sagt,
að hann væri með afleitan
asthma. Læknirinn, sem skoðaði
hann var f jórar mlnútur að þvf og
tók 30 dollara (5600 krónur) fyr-
ir. Einkaritari rannsóknarnefnd-
arinnar fór f þessa sömu lækna-
miðstöð. Var hún skoðuð f þrjár
mfnútur, látin borga 46 dollara
(8600 kr.) og henni sagt, að
brjóstkrampi gengi að henni.
VESTFR0ST
FRTSTIKISTUR
VESTFROST ER
DÖNSK
GÆÐAVARA
VESTFROST frystikisturnar eru bún-
ar hinum viðurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1—2 geymslukörfur. Aukakörfur fá-
anlegar á mjög hagstæðu verði.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum.
VESTFROST verksmiðjurnar í Es-
bjerg eru stærstu útflytjendur ( Dan-
mörku á frystitækjum til heimilisnota.
litrar 200 270 385 500
breidd cm 72 92 126 156
dýpt cm (án handfangs) 65 65 65 65
hæð cm 85 85 85 85
Frystiafköst pr. sólarhring kg 18 25 34 42
200 Ktra kr. 87.518.- 270 lítra kr. 104.815.- 385 Iftra kr. 118.217.- 500 Iftra kr. 125.968,-
6»PÍÍKil Laugavegi 178 Sími 38000