Morgunblaðið - 10.10.1976, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTOBER 1976
35
Prófessor Sigurður Magnússon
var yfirlæknir Vífilsstaða, er
Helgi kom þar til starfa. Um ára-
raðir háðu þeir starfsbræðurnir
erfiða baráttu við hvita dauðann.
Baráttu er á köflum virtist röð
ósigra, en þó kom þar að það fór
að rof a til.
Þrotlaust starf, bætt löggjöf,
betri skilyrði til einangrunar
smitandi sjúklinga, ný lyf, bætt
skurðtækni og fleira olli því að
erfiðið fór að bera árangur. En
sjaldan mun starfshópur í þessu
landi hafa lagt jafnhart að sér og
starfsfólk Vífilsstaða gerði á þess-
um árum.
I þessu 100 rúma hæli voru
sjúklingarnir stundum á þriðja
hundrað. Stefnan var sú að taka
við öllum sem hjálpar þurftu
jafnvel á háaloftinu voru sjúkra-
rúm I notkun á tímabili. Þetta
lýsir betur en margt annað, við-
horfi læknanna til þess verkefnis,
sem þeir höfðu helgað lif sitt.
Starf Helga á þessum árum, er
landsfrægt. Á hverju kvöldi gekk
hann svonefndan kvöldstofugang,
til þeirra sjúklinga er hann taldi
þurfa þess með. Þessi aukaheim-
sókn læknisins, var sjúklingunum
afar mikils virði og oft örugglega
meira virði en svefnlyf. Auk þess
stundaði Helgi lækningar niðri f
Reykjavík, fyrst á eigin stofu í
Laugavegsapóteki og sfðar í
Berklavarnarstöð Reykjavíkur —
Likn.
1 byrjun starfs sfns keypti Helgi
sitt eigið gegnlýsingartæki. Það
var mikið átak á þeim tfma, en
Helgi sá að gegnlýsing var nauð-
synleg til greiningar á lungna-
berklunum og f áraraðir var
„tækið hans Helga" eina gegnlýs-
ingatækið til greiningar á lungna-
berklum f Reykjavík. Hann var
auk þess yfirlæknir Kópavogs-
hælis meðan það var notað fyrir
berklasjúka.
Árið 1939 varð Helgi yfirlæknir
Vífilstaðahælis og lét af þeim
störfum fyrir aldurssakir 1968. Á
þessu tímabili skeði undrið mikla.
Berklarnir hættu að vera þjóðar-
plága.
Árið 1938 var Samband
fslenzkra berklasjúklinga stofnað.
Helgi gerðist fljótt einlægur
stuðningsmaður SlBS. Hann leit
strax svo á að samtökin gætu
orðið liðtæk til lausnar þeim
vanda, sem við var að etja, og
hvatti þessa sjúklinga sína óspart
til dáða.
Samtök berklasjúklinga hafa
hinsvegar jafnan litið á Helga
Ingvarsson sem einn sinn mesta
velgjörðarmann, mann, sem hefir
helgað berklasjúklingum alla
starfsorku sína og f áratugi
tryggt, að berklasjúklingar nytu
þeirrar bestu aðbúðar og lækning-
ar sem völ var á. Þeir gerðu sér
grein fyrir því að Helgi Ingvars-
son yfirlæknir gaf sér jafnan tfma
f öllum sfnum önnum, til að lesa
sfn fagrit, fylgjast með nýjungum
í berklalækningum og tryggja að
við fengjum að njóta þeirra eins
fljótt og mögulegt var.
Það er ánægjulegt að geta nú
minnst þess á áttræðisafmæli
Helga að hann sá til þess, að
merkasta berklalyfið og það
mikilvirksta var fyrr tekið f
almenna notkun á Islandi en
annarsstaðar.
Það er með þetta og ótal margt
annað í huga sem samtök berkla-
sjúklinga flytja Helga innilegt
þakklæti og hamingjuóskir á
þessum merku tfmamótum f lífi
hans. Þau hafa áður sýnt honum
þann virðingar og þakklætisvott
er þau mestan mega þegar þau
árið 1956 útnefndu hann sem
heiðursfélaga samtakanna.
Helgi er sonur hjónanna Ing-
vars Nikulássonar og Júlíu
Guðmundsdóttur, hann fæddist
að Gaulverjabæ f Flóa 10/10 1896
og ólst upp í foreldrahúsum á
prestsetrinu Skeggjastöðum í
Norður-Múlasýslu. Hann varð
stúdent 1916 og lauk læknanámi
1922.
Helgi er kvæntur Guðrúnu
Lárusdóttur Pálssonar frá Sjónar-
hóli. Þau hjón eiga 4 uppkomin
börn á lífi, þau Guðrúnu P. skóla-
stjóra og rithöfund, Ingvar, stór-
kaupmann, Lárus, yfirlækni, og
Sigurð, lögfræðing.
Sem sjúklingur, nemandi og
samstarfsmaður Helga, flyt ég
honum virðingu mfna og þakklæti
og fjölskyldunni allri hamingju-
óskir f tilefni dagsins.
Oddur Ólafsson.
Lóð óskast
Óskum að kaupa 2 lóðir fyrir einbýlishús eða
raðhús, á góðum stað í Reykjavík. Tilboð send-
ist Mbl. fyrir 16. þm. merkt: „lóð—2608".
ÞÁTTTAKENDUR!
Leiðbeiningarblað fyrir prjónasamkeppnina
í Elínu fæst í flpstum garnverslunum.
Biðjið um leiðbeiningarblaðið, sem fæst
ókeypis í næstu búð.
Það auðveldar yður málsetningu flíkurinnar*
og gerð uppskriftarinnar.
Samkeppni
uni prjónaóar og heklaöar flíkur
Ullarverksmiðjan Gefjun Prjónabókin Elín
VerÖlœkkun áOpel
Rekord-Manta-Kadett Skandinavía
Kadett Economy Kynnið yður hinar fjölbreyttu stærðir og gerðir Opel-bílanna
* og þér munuð auðveldlega finna Opel við yðar hæfi.
Opel er trygging fyrir traustum og sparneytnum bíl.
Rekord
Opel Rekord er framleldd-
ur í fjórum aðalgerðum,
auk dísel-bílsins. Rekord
hefur í nokkur ár verið mest seldi bíil í sinum stærðarflokki
í Evrópu. Ástæðan er einföld: Ökumenn gera allsstaðar
sömu kröfur þegar þeir velja sér bil. Öryggi, þægindi, end-
ingu, sparneytni, orku og skerpu. Vandlátur kaupandi gerir
samanburð og velur ekki fyrr en hann er ánægður.
Kadett Skandinavía
Kadett Economy
Opel framleiðir fimm aðalgerðir af Kadett smábíl-
um, sem allsstaðar eru þekktir fyrir sparneytni og
öryggi.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla3 Reykjavík Sími 38900
Mnntn
Manta er framleidd í þremur aðalgerðum. Hann er
glæsilegur fyrir þá, sem ekki láta sér nægja draum-
inn. Hreinræktaður „Sportcoupé" með gott rými fyrir
farþegana. Byggður á áratugareynslu Opel i smíði
slíkra bíla.
GM
OPEL ' " '' '