Morgunblaðið - 10.10.1976, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÖBER 1976
47
— Kengur
í kerfinu
Framhald af bls. 22
lýsingar embættismanna um það,
að Sovétmenn séu orðnir lög-
hlýðnari en aðrar þjóðir í sög-
unni. Fari maður í venjulegan
réttarsal í Moskvu i nokkra daga i
röð fær hann allgott yfirlit yfir
helztu tegundir glæpa. Það eru
morð, líkamsárásir á lögreglu-
þjóna, vændi og þjófnaður ýmiss
konar og allt þar á milli. Allt
kemur þetta fyrir við og við. Þó er
það án efa rétt hjá Sovétmönnum,
að þeir séu öruggari um líf sitt og
limi á götum úti en gengur og
gerist á vesturlöndum. Og að því
er bezt verður vitað þrífast ekki
glæpahringir á borð við Mafíuna í
Sovétríkjunum, né heldur er þar
eiturlyfjasala, fjárhættuspil og
okur í stórum stfl. Eitthvað er þó
um þetta t.d. fullyrti móðir myrtr-
ar stúlku í Moskvu fyrir tveimur
árum, að dóttir” sln hefði verið i
slagtogi með eiturlyfjasölum.
En Sovétmenn stunda annars
konar glæpi. Fjárdráttur,
þjófnaður „sósíalískra eigna“,
hnupl úr verzlunum og
verksmiðjum og svartamarkaðs-
brask munu algengust afbrota.
Þetta er allt mjög tfðkað og þrífst
hvarvetna í Sovétríkjunum.
Alltaf við og við kemst upp um
einhverja, sem hafa dregið sér
stórfé með ólöglegum hætti.
Krústjoff lagði dauðarefsingu við
slíkum glæpum á sinni tíð, en hún
var aflögð eftir fall hans. Nú er
aftur farið að lffláta menn fyrir
stórþjófnað. Þá er altítt, að
iðnaðarmenn, læknar og þvílíkir
stundi „aukavinnu" og stingi
laununum undan. Auk þess er
geysimikið um viðskipti á
svörtum vörumarkaði; er jafnvel
farið að ræða um „hliðarmarkað-
inn“ I Sovétríkjunum — það er
þessi stóri, ólöglegi markaður,
sem ekki var ráð fyrir gert. Alltaf
er verið að dæma menn fyrir
svona brask og svo oft, að það
mundi æra óstöðuga að fylgjast
með því öllu, enda flytja blöðin
aðeins fregnir af stórfelldustu
glæpunum. Má nefna það, er
gjaldkeri sovézka flugfélagsins
Aeroflot seldi á þremur árum
4000 farmiða undir borðið og
hafði 96000 rúblur upp úr
krafsinu.
Mér virðist rétt, að sovézkum
yfirvöldum hafi tekizt að útrýma
ofbeldi á almannafæri að mestu ,
og er það vissulega mikils vert.
En óvandaðir Sovétmenn hættu
ekki að brjóta af sér fyrir það.
Þeir breyttu bara um glæpi. Nú
stinga þeir vörum undan, draga
sér fé og braska. Og það er hætt
við þvi, að svo verði enn um sinn.
„Enn eru nokkrir þeir til, sem
ekki hafa þroskað með sér til-
hlýðilega samvizkusemi og hlýðni
við sovézk lög ... og flokkurinn
getur hvorki né mun hann þola
slíkt ástand," sagði Brésnef leið-
togi fyrir nokkrum árum. Það er
ekki heldur von, að flokkurinn
geti þolað það, að menn stela enn
I riki þar, sem búið er að „rlfa
upp félagslegar rætur glæpa“!
— Leiðréttingar
Fords
Framhald af bls. 1
blaðafrétta um rannsókn á
kosningasjóðum haris, framlögum
I þá og eyðslu úr þeim. Talsmaður
Fords sagði að þingið hefði
rannsakað tekjuskatta Fords áður
en hann var skipaður varaforseti
og ekki fundið neitt athugavert.
— Eftirlit
Framhald af bls. 48
hefði það verið orðin viðurkennd
regla að veita hlutafélögum
heimild til að eiga sjálf allt að
30% af hlutafé félagsins. Undan-
þágur af þessu tagi hefðu verið
veittar I þó nokkrum tilfellum, en
áður þyrfti að sjálfsögðu að leggja
fram reikninga félagsins, sem
væru þá athugaðir á vegum ráðu-
neytisins og ef ekkert óeðlilegt
kæmi I ljós hefðu beiðnir af þessu
tagi verið samþykktar. Heimildin
til stjórnar Vængja til að auka
eigið hlutafé félagsins hefði því I
alla staði verið eðlileg afgreiðsla.
Þórhallur var að þvl spurður
hvort eitthvert eftirlit væri með
hlutafélögum hér á landi og
svaraði hann þvl til, að slíkt eftir-
lit væri mjög ófullkomið og væri
það mjög veikur hlekkur I fram-
kvæmd hlutafélagalaganna sem
nú væri farið eftir. Hins vegar
mætti búast við að stefnt yrði að
slíku eftirliti I auknum mæli I
þeirri nýju löggjöf sem væntan-
lega yrði lögð fyrir Alþingi I
haust, en þar væri gert ráð fyrir
að hið opinbera fylgdist meira
með hlutafélögum en hingað til
hefur verið gert.
Styrkur veittur
úr minningar-
sjóði Kjartans
Sigurjónssonar
ÓLÖFU K. Harðardóttur hefur
verið veittur styrkur úr minning-
arsjóði Kjartans Sigurjónssonar
söngvara frá Vik. Styrkupphæðin
er 90.000 krónur og skal varið til
söngnáms Ólafar, en hún er nú
við söngnám I Vínarborg.
Umsjón með sjóðnum hefur
Bára Sigurjónsdóttir og eru minn-
íngarspjöld seld I verzlun hennar
á Hverfisgötu 50.
HLUTABRÉF
til sölu
Skrifstofu okkar hefir verið falið að leita tilboða
í eftirtalin hlutabréf:
1. Sjóvátryggingafélag íslands h.f. Nafnverð kr. 450.000.-
2. Togaraafgreiðslan h.f...... Nafnverð kr. 364.000.-
3. íslenzk endurtrygging ...... Nafnverð kr. 400.000.-
4. Stálumbuðir h.f...............Nafnverð kr. 54.000.-
5. Olfufélagið h.f.................Nafnverð kr. 2.656.000.-
6. Flugleiðir h.f............. Nafnverð kr. 7.688.400.-
Tilboð er greini nafn kaupanda, kaupverð og greiðsluskilmála
sendist skrifstofu okkar fyrir 22. október 1976.
Tekið skal fram, að samkvæmt lögum ofangreindra félaga
er almennt skylt að bjóða félaginu og/eða hluthöfum .
forkaupsrétt þegar tilboð liggja fyrir.
Málflutningsskrifstofa
Guðmundur Pétursson — Axel Einarsson.
Aðalstræti 6, Reykjavík.
Höfum opnað nýju stöðina við
Álfabakka. Verið velkomin.
OLÍUVERZLUN ÍSIANDS HE