Morgunblaðið - 19.11.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1976
3
Vélbátur tók niðri
og varð lekur
VÉLBATURINN J6n Agúst GK
60 frá Garði tók niðri I gærmorg-
un um klukkan 06, þar sem hann
var á línuveiðum undir Hafnar-
bergi á Reykjanesi. Skipverjum
tókst að losa bátinn af strandstað
með eigin vélarafli bátsins, en
mikill leki kom að honum en
þetta er stálbátur, 125 tonn að
stærð og smfðaður 1960. Komst
fljótlega mikili sjór (lestar skips-
ins.
Listahátið 1976:
Listamenn
gáfu
vinnu sína
NOKKRIR tónlistarmenn hafa
komið að máli við Morgun-
blaðið vegna fréttar þess i gær
um 8 milljóna króna hagnað af
Listahátfð 1976.
Tónlistarmennirnir vildu
taka það fram, að þeir, og aðrir
listamenn, hefðu gefið vinnu
sína til þess að af Listahátið
1976 gæti orðið, en ákveðið
hafði verið að fella hana niður
af fjárhagsástæðum.
Listamennirnir töldu
hugsanlegt, að hagnaður hefði
orðið af Listahátfð m.a. vegna
þessa.
Ahöfnin tilkynnti þetta um
Reykjavíkurradfó, sem aftur til-
kynnti Slysavarnafélagi Islands.
Samkvæmt upplýsingum Hannes-
ar Hafstein, framkvæmdastjóra
SVFl, hafði félagið þegar sam-
band við forsvarsmenn slysa-
varnadeildarinnar Sigurvonar í
Sandgerði og samnefndrar björg-
unarsveitar þar. Fengu björgun-
arsveitarmenn þegar f stað vélbát-
inn Dagfara ÞH til þess að fara á
móti Jóni Ágústi, sem þegar hélt
af stað áleiðis til Sandgerðis.
Höfðu dælur um borð rétt undan
lekanum.
Sem betur fer héldu skilrúm
milli lestar og vélar og lestar og
lúkars, þótt mikill sjór væri f lest-
inni. Þá var mikill viðbúnaður
hafður á bryggjunni í Sandgerði
og var slökkvilið staðarins þar
viðbúið með dælur, er skipið
kæmi að bryggju. Er Jón Ágúst
kom til Sandgerðis var báturinn
orðinn mjög djúpsigldur, en þang-
að komu skipin klukkan 07.45.
Þar sem Jón Ágúst tók niðri var
suövestan bræla og þungur sjór.
Engin slys urðu á mönnum.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Júlfussonar, fréttaritara Morgun-
blaðsins í Sandgerði, var báturinn
í gær fluttur upp með bryggjunni,
þar sem hann mun verða á þurru
á fjöru. Er ætlunin að þétta hartn
þar, svo að unnt verði að sigla
honum að dráttarbraut til við-
gerðar. Froskmaður sem skoðaði
kjöl bátsins í gær kvað hann mik-
ið skemmdan.
Skipt um flokkafulltrúa
hjá Sameinuðu þjóðunum
NÝLEGA var skipt um fulltrúa
stjórnmálaflokkanna í sendi-
nefnd Islands á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna. Þeir
fulltrúar, sem nú sitja fundi
þingsins eru Kjartan Jóhannsson
fyrir Alþýðuflokk, Geirþrúður
Hildur Bernhöft fyrir Sjálfstæðis-
flokk, Jón Abraham Ólafsson fyr-
ir Framsóknarflokk, Hjörtur
Hjartarson fyrir Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna og
Svavar Gestsson fyrir Alþýðu-
bandalag.
Um leið og ofangreindir fulltrú-
ar fóru vestur um haf, komu heim
eftirtaldir fulltrúar: Ásgeir
Jóhannesson fyrir Alþýðuflokk,
Oddur Ólafsson fyrir Sjálfstæðis-
flokk, Daníel Ágústfnusson fyrir
Framsóknarflokk, Soffía Guð-
mundsdóttir fyrir Alþýðubandlag
og Halldór S. Magnússon fyrir
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna.
S júklingur flutt
ur með þyrlu
ÖLDRUÐ kona, sem fengið hafði
aivarlega heilablæðingu var i gær
flutt með þyrlu frá Borgarnesi til
Reykjavlkur, þar sem hún var
lögð 1 gjörgæzludeild Borgar-
spftalans. Þyrlan var kvödd út um
þrjúleytið ( gær og rúmlega
fjögur var konan komin I sjúkra-
húsið.
Slysavarnafélagi Islands barst
hjálparbeiðni frá Borgarnesi í
gær klukkan 14.30 og var þá
óskað eftir þvf að félagið annaðist
flutning á aldraðri konu, sem var
alvarlega veik, á sjúkrahús í
Reykjavfk. Félagið hafði þegar í
stað samband við Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli og um
klukkan 15 lagði þyrla af stað til
Borgarness til þess að sækja
gömlu konuna. Er þangað kom
var þar austsuðaustan 6 til 7 vind-
stig og lenti þyrlan á íþrótta-
vellinum, sem lýstur var upp með
bifreiðum. Um klukkan 16 eða
rúmlega það var konan' sfðan
komin f gjörgæzludeild Borgar-
spftalans.
Kírkjuþing
hefst í dag
NYKJÖRIÐ kirkjuþing verður
kallað saman til fundar f dag.
Þingin hafa verið haldin annað
hvert ár s.l. 20 ár og er þetta þvf
10. þingið. Kjörtfmabil kirkju-
þingsmanna er 6 ár og var kosið
til kirkjuþings nú f haust.
Kirkjuþingið hefst með guðs-
þjónustu i Hallgrfmskirkju kl.
16:00 f dag og er hún öllum opin.
Sr. Sigurður Guðmundsson frá
Grenjaðarstað prédikar og með
honum þjónar sr. Ragnar Fjalar
Lárusson fyrir altari. Við guðs-
þjónustuna verður altarisganga.
Að henni lokinni verður þing
sett f fundarsal Hallgrfmskirkju,
en þar verða fundir þess haldnir
að þessu sinni. Samkvæmt lögum
skal þingið standa tvær vikur en
ekki er víst að það muni standa
svo lengi.
A fundum kirkjuþings eru
málefni kirkjunnar rædd og er
það ráðgefandi fyrir f ýmsum
innri málum kirkjunnar.
Takmarkið er: Engin slysaalda í ár
A þessu sést að þótt skemmd-
ir virðist f fyrstunni ekki vera
mjög stórvægilegar getur verið
mjög kostnaðarsamt að gera við
þær. Vinna er meiri en álitið er,
varahlutir dýrir, fleira þarf að
kaupa nýtt en virðist við fyrstu
skoðun o.fl.
WV-bifreiðin, sem birt var af mynd f gær. Viðgerð hennar kostaði
rúmlega 60.000 krónur.
Hvað kosta
þessar skemmdir?
Læsið bifreið yðar
Félag fslenzkra bifreiðaeig-
enda hefur hafið samstarf við
lögregluna um útgáfu bæklings
sem varar fólk við að skilja
bifreiðir sínar eftir ólæstar. Á
1 DAG birtum við fieiri myndir
af skemmdum bifreiðum eftir
árekstra og aftur myndina frá f
gær. Lesendum til upplýsingar
verður nú sagt hvað kostaði að
gera við WV-bifreiðina og
sundurliðast það þannig:
Vinna v/réttingu 22 klst. 26.290.—
sprautun 6.500.—
efni v/viðgerðar 1.900.—
varahl. m/sölusk. 18.529.—
sölusk. af vinnu og sprautun 6.938.—
Viðgerðin á Skoda-bifreiðinni skiptist þannig:
Vinna
varahlutir
málning (sprautun)
samt.: 60.157.—
28.500,—
39.385 —
19.560,—
Framhurð og frambretti voru ónýt. Hurðastafur ílla boginn. Sjá
kostnað við viðgerð f texta.
fundi með fréttamönnum f gær
var bæklingur þessi kynntur og
mun Grétar Norðfjörð lögreglu-
varðstjóri sjá um dreifingu
hans. Hann átti hugmyndina að
þessum bæklangi en hann er að
nokkru sniðinn eftir erlendum
fyrirmyndum. Grétar leitaðatil
F.I.B. um samvinnu og tók fé-
lagið að sér að standa undir
kostnaði við útgáfuna en Grétar
sá um gerð bækiingsins. Um
það bil ein af hverjum tíu bif-
reiðum sem skildar eru eftir á
bifreiðastæðum t.d. við kvik-
myndahús eru ólæstar og sagði
Grétar að svo væri þrátt fyrir
að ýmis verðmæti lægju í þeim,
s.s. myndavélar, handtöskur og
ýmislegt sem verðmætt væri og
fólk hefði orðið fyrir miklu
fjárhagslegu tjóni vegna þess
að stolið hefði verið úr bifreið-
um þess.
Allegro. Framsvunta
stuðari ónýt.
og vélariok voru itla skemmd, „grill“ og
Augnabliks kæruleysi eða
gleymska getur boðið tækifær-
isþjófum eins og Grétar orðaði
það, upp á að grfpa ófrjálsri
hendi. Það hefur komið f ljós að
einna minnst er stolið úr bif-
reiðum t.d. f Árbæ og Breið-
holti en þar eru bifreiðastæðin
yfirleitt upplýst. I bæklingnum
eru ýmsar ráðleggingar og
áminningar til fólks, m.a. að
læsa verðmæti i hanskahólfum
bifreiða og muna eftir' að læsa
alltaf bifreiðinni og ganga
tryggilega frá öllum gluggum.
Allegro:
Vinna
varahlutir
sprautun
Forsfða bæklingsins Læslð dii-
reið yðar. 1 bæklingnum er lögð
áherzla á að fólk tilkynni lög-
reglunni strax ef það verður
vart grunsamlegra mannaferða
t.d. f nágrenni við bfla eða hús,
en bfði ekki og sjái hvað hinn
grunsamlegi aðhafist. Stutt um-
hugsun getur skipt máli.
samt.: 87.445.—
36.612,—
86.483,—
18.200,—
samt.: 141.295 —