Morgunblaðið - 19.11.1976, Page 16

Morgunblaðið - 19.11.1976, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1976 HINN 19. nóvember 1946, fyrir réttum 30 árum, I tóku íslendingar sæti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, en þann dag var tsland formlega tekið f samtökin. í septembermánuði | hafði öryggisráðið samþykkt inntökubeiðnina, sem lögð var fram 3. ágúst það ár, og þegar þing kom saman í New York, var samþykktin staðfest. Utanríkisráðherra skipaði fjóra fulltrúa tii að sitja alisherjarþingið, þá Thor Thors sendiherra í Washington, Bjarna Benediktsson, þáverandi borgarstjóra, Finn Jónsson dómsmálaráðherra og Ólaf Jóhannesson lögfræðing. 19. nóvember tóku þeir sæti á þinginu. Thor Thors flutti þar ræðu og var tslandi fagnað með dynjandi lófa- klappi, að því er segir daginn eftir í Morgunblað- inu. íslenzki fáninn var samtímis dreginn að húni meðal fána aðildarríkjanna. 1 ræðu sinni benti Thor á það m.a., að íslendingar hefðu eng- an her og íslenzka þjóðin vildi engrí annarri þjóð segja stríð á hendur, þótt hún vildi hindra eld ófriðarins í framtfðinni með þátttöku sinni. 1 því sambandi minntist hann á stofnfund Sameinuðu þjóðanna í San Fransisco vorið 1945, er Island taldi sig ekki geta fallist á að segja möndulveldunum stríð á hendur, til að öðlast rétt til inngöngu í Sameinuðu þjóð- irnar þá þegar. En nú, 19. nóvember 1946, var þeim á fyrsta þinginu veitt viðtaka ásamt tveimur öðrum þjóðum, Svfþjóð og Afganistan. Voru þátttökuþjóðirnar þá orðnar 54 að tölu. I ræðu sinni á allsherjarþing- inu komst Thor Thors m.a. svo að orði, að með upptöku Islands hefði runnið upp iangþráð stund fyrir íslenzku þjóðina, og þakkaði öllum þeim þjóðum, sem höfðu greitt atkvæði með inntökubeiðninni. Tók hann fram, að Island væri smæsta þjóðin innan þessara samtaka, en benti á að öryggi jafnvei minnstu þjóðar veraldar þýddi sama og öryggi alls heimsins. Áður en Thor Thors tók til máls, hafði Spaak, forseti ísland sæti Þrjár þjóðir tóku sæti á allsherjarþingi S.Þ. 19. nóvember 1946. Myndin er tekin við það tækifæri. Frá vinstri við háborð sitja Tryggve Lie, framkvæmdastjóri samtakanna, Spaak, forseti AUsherjarþings- ins, og Andrew Cordier. Sitjandi eru Osten Unden, utanrfkisráðherra Svfa, Thor Thors sendiherra tslands og fulltrúi Afganistan. Fáni Islands dreginn 1 fyrstasinn að húni fyrir utan byggingu S.þ. tslensk stúlka, Kristín Björnsdóttir, var þá þegar f starfsliði sam- takanna og var fengin til að draga upp fánann. nafnið Sameinaðar þjóðir, sem Roosewlt forseti hafði fyrstur stundið upp á. En fyrsta fræið, sem sáttmálinn óx upp af, var Bandamannayfirlýsingin, sem fulltrúar þessara þjóða undir- rituðu I St. James höll 1 London 12. júnf 1941, þar sem lýst var yfir, að eina raunverulega und- irstaða trausts friðar væru frjáls samtök frjálsra þjóða heims, sem losaðar hefðu verið undan ógnum ófriðar og ynnu saman að efnahagslegu og fé- lagslegu öryggi. Danmörk og Frakkland voru strax talin meðal upphafsþjóða Sam- einuðu þjóðanna, þar sem þess- ar þjóðir höfðu barist við nas- ista, þótt stjórnir þeirra gætu ekki formlega tekið þátt í und- irbúningnum. Danmörk var ekki frelsuð fyrr en eftir að San Francisco-ráðstefnan hófst, en var þá með samþykki tekin inn. Af þessu sést að Island gat ekki orðið stofnfélagi, eins og fram kom i ræðu Thors Thors. En hjá Sameinuðu þjóðunum þingsins, boðið nýju þjóðirnar velkomnar. Kvaðst hann ekki efast um að upptaka Islands, Svfþjóðar og Afganistans markaði tfmamót. Og hann lauk máli sínu á þennan veg: Við vitum öll um lýðræðis- og rétt- lætishugsjónir hinna nýju meðlima. Við, meðlimir sameinuðu þjóðanna, verðum að kappkosta að sýna jafnan skilning og umburðarlyndi. Okkur er ljóst hvað þessar þrjár þjóðir hafa gert í þeim efnum til þessa. Og það af þeim orsökum að við bjóðum þær svo hjartanlega velkomnar í þjóða- fjölskyldu okkar. Sameinuðu þjóðirnar tóku til starfa 24. október 1946 og var sá dagur skömmu síðar ákveð- inn árlegur hátíðisdagur sam- takanna. Aðalstöðvarnar voru til bráðabirgða í gamalli her- gagnaverksmiðju f Lake Success á Long Island við New York, en fundir allsherjar- þingsins voru í Flushing þar skammt frá, þar sem heims- sýningin í New York hafði ver- ið til húsa. Það var ekki fyrr en fjórum árum seinna að hægt var að flytja inn f nýja byggingu, sem reist hafði verið inni f borginni, á landi, sem Rockefellerstofnunin hafði gef- ið i þvi skyni við Hudson ána. Þar eru aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna enn í dag, þegar meðlimaþjóðunum hefur fjölgað úr 51 í 144. Stofnfélagar Sameinuðu þjóðanna voru þær þjóðir, sem þátt tóku í ráðstefnunni f San Francisco vorið 1945 eða höfðu áður undirritað sáttmála S.þ. Stofnfundurinn hafði verið ákveðinn í Dunbarton Oaks í Washington síðsumars 1944, þar sem stórveldin komu sam- an. Bandaríkjamenn, Rússár, Bretar og Kínverjar náðu þar samkomulagi um ýmis atriði, sem voru undirstaða þess að hægt væri að efna til starfhæfr- ar samvinnu þjóðanna. Þar komu þeir sér m.a. saman um fyrirkomulag öryggisráðsins, þar sem þessi 4 lönd skyldu ásamt Frakklandi eiga fast sæti. En neitunarvald þeirra við atkvæðagreiðslur ákváðu þeir Churchill, Stalfn og Roosewelt á Yaltaráðstefnunni í febrúar 1945. Þar var loks endanlega ákveðið að kalla saman ráðstefnu í San Franscisco 25. april 1945, til að ganga frá sáttmála fyrir stofn- unina eftir þeim línum, sem lagðar höfðu verið óformlega í Dumbarton Oaks. Skyldu stór- veldin fimm bjóða til ráðstefn- unnar. Var formlegt boð sent 5. marz 1945 þeim þjóðum, sem höfðu sagt Þýskalandi eða Japan strfð á hendur fyrir fyrsta marz það ár eða undirrit- að sáttmála S.þ. Með boðinu var skýrt frá bráðabirgðaákvörðun um fyrirkomulag atkvæða- greiðslu í Öryggisráðinu, sem sfðan var samþykkt f San Francisco. Stofnþjóðirnar voru 51 talsins. Þar af höfðu 26 þjóð- ir, sem barist höfðu gegn möndulveldunum, þegar skrif- að undir sáttmálauppkast á nýjársdag 1942 I Washington. En þar var í fyrsta skiptið notað löndin þrjú, sem tekin voru inn í samtökin á þinginu 19. nóvem- ber 1946, Island, Afganistan og Svíþjóð, voru fyrstu ríkin sem veitt var viðtaka eftir að stofn- unin tók til starfa. fljótlega varð það að reglu, að meðlima- þjóðirnar stofnuðu til fasta- nefnda, sem ættu sæti hjá stofnuninni. En sendinefndir koma á allsherjarþingið á hverju hausti. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar f þeim tilgangi að bjarga komandi kynslóðum frá hörmungum og kveða niður nær allt misrétti í þjóðfélaginu, eins og sést á sáttmálanum, sem hefst svo: Vér, hinar sam- einuðu þjóðir, erum staðráðnar i að bjarga komandi kynslóðum undan hörmungum ófriðar, sem tvisvar á einum manns- aldri hafa leitt ósegjanlegar þjáningar yfir mannkynið. Og í næstu setningu á eftir er talað um að staðfesta virðingu og gildi mannsins, um' jafnrétti karla og kvenna og allra þjóða og að stuðla skuli að félagsleg- um framförum og bættum lífs- kjörum við aukið frelsi. 1 30 ár hafa Sameinuðu þjóð- irnar unnið að þessu verkefni. Og í rétt 30 ár hafa Islendingar nú~ verið í hópi þeirra þjóða, sem þar leggja hönd að. Fulltrúar Islands á fyrsta þingi Sameinuðu þjóðanna voru Thor Thors, Finnur Jónsson, Ölafur Jóhannesson og Bjarni Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.