Morgunblaðið - 19.11.1976, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 19.11.1976, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. NÖVEMBER 1976 HörkudeUur um „litasjónvarp”: Svart og hvítt eru líka litir Forneskja menningar- skömmtunar er tímaskekkja ER rétt að leyfa innflutning á áfengi og tóbaki, en setja litasjónvarp á bannlista með hassi, var spurning, sem fram kom f umræðum á Alþingi tslendinga f gær, er rædd var tillaga Ellerts B. Schram til þingsályktunar um litasjónvarp. Tillagan er áskorun á ríkisstjórn tslands að stuðla að þvf, að fslenzka sjónvarpið geti hafið reglulegar litaútsendingar, með því að: 1) samþykkja áætlun sjónvarpsins sem kveður á um hvernig að því skuli staðið í áföngum. 2) gefa frjálsan innflutning á litasjónvarpstækjum. 3) ákveða að tolltekjum af innflutningi slfkra tækja skuli varið til endurbóta á tækjum og dreifikerfi sjónvarps. Eliert B. Schram. Jónas Árnason. Karvel Ólafur Pálmason. Þórðarson. Sigurlaug Einar Rjarnadótlir. Ágflstsson. Stefán Halldór Jónsson. Blöndal. Sjónvarpið 10 ára. Ellert B. Schram (S), sem sæti á í útvarpsráði, ræddi fyrstur um Sjónvarpið 10 ára (í framsögu- ræðu sinni) og þau verkefni, sem helzt væru framundan í byrjun annars áratugar í starfsemi þess. Efnisatriði í ræðu hans voru m.a.: Fyrir liggur eftir áratugs- notkun að ekki verður lengur hjá því komist að sjónvarpið endur- nýi gagngert allan sinn tækja- búnað. Flest sjónvarpstæki lands- manna munu vera 7—8 ára gömul, en það er talinn eðlilegur endingartími. Öll þessi tæki þarf almenningur að endurnýja á næstu mánuðum eða missirum. Hvað sjónvarpið sjálft snertir reynist æ erfiðara að fá nauðsyn- lega varahluti, þar sem tæki eru vart framleidd lengur fyrir svart- hvítt sjórivarp. ÖIl tæknileg fram- þróun á þessu sviði er á þann veg, að ekki er reiknað með svart- hvítu sjónvarpi, og hefur oftar en einu sinni komið fyrir að sjón- varpið hefur þurft að láta sér- smíða varahluti. Þá er þess einnig að geta, að sjónvarpsefni er nú í vaxandi mæli gert fyrir litasjónvarp. Nær allt sjónvarpsefni, sem framleitt er á vesturlöndum, er nú fáanlegt í lit, án þess að nokkurt aukagjald komi fyrir. 1 þessu sambandi er vert að vekja athygli á því að útflutningur íslensks sjónvarps- efnis verður stöðugt erfiðari þar sem íslenskt efni er gert í svart- hvítu, en það þykir ekki eftir- sóknarvert eða sýnanlegt er- lendis. Enginn vafi er þó á því, að íslenskt sjónvarpsefni hefur margoft stuðlað að landkynningu og aukið skilning á vandamálum þjóðarinnar. Dreifikerfið hér á iandi hefur ekki verið fullkomið og enn eru nokkrir staðir á landinu, þar sem ekki sést til sjónvarps. Það er allra mál, að sjónvarpið skuli ná til alira landsmanna og að mjög þurfi að bæta móttökuskilyrði víða um hinar dreifðu byggðir. Vegna fjárhagserfiðleika hefur dreifing og endurbót ekki gengið sem skyldi. Sjónvarpið hefur fengið hluta af aðflutningsgjöld- um til uppbyggingar sjónvarps- ins. Þessar tekjur voru verulegar fyrstu árin, meðan innflutningur sjónvarpstækja var hvað mestur, en á síðustu tveim- þrem árum hefur innflutningur og þá um leið tekjur sjónvarpsins mjög dregist saman. Er nú svo komið að þessi tekjustofn hrekkur ekki lengur til að standa straum af greiðslum vaxta og afborgana af lánum vegna dreifikerfisins. Um nýjar framkvæmdir er því ekki að ræða meðan svo er. Yrði litasjónvarp tekið upp, má gera ráð fyrir að nýtt líf færðist í innflutning sjónvarpstækja. Erfitt er að gera sér grein fyrir tækjasölu, en ef miðað er við 2000—2500 tæki á ári, þá gætu tekjur sjónvarpsins af slíkri sölu orðið á bilinu 150—200 millj. kr. Rikisstjórnin setti fyrr á þessu ári bann við innflutningi litasjón- varpstækja, en hefur nú leyft tak- markaðan innflutning. Afleiðingin af þessum tálmunum hefur orðið sú, að gerðar eru al- varlegar tilraunir til smygls á sjónvarpstækjum. Tregða ríkis- stjórnarinnar á að heimila frjáls- an innflutning á sjónvarps- tækjum mun stafa af ótta um of mikla gjaldeyriseyðslu. Innflutningur 2500 tækja mundi þó aðeins kosta um 200 millj. kr. i gjaldeyri. Gjaldeyris- salan fram til 1. ágúst s.l. nam um 60 milljörðum króna og sést vel af þessum tölum hversu óveruleg upphæð hér er í húfi. Þessu til viðbótar er rétt að benda á, að í skjóli smygls tapast ríkissjóði tekjur af innflutningsgjöldum. Af því, sem að framan er rakið, mæla tæknileg, dagskrárleg og fjárhagsleg rök eindregið með því, að rétt sé að ráðast strax í endurnýjun á tækjabúnaði sjón- varpsins og að hafnar verði reglu- legar litaútsendingar. Sjónvarpið hefur þegar gert áætlun um, hvernig þessu megi hrinda í fram- kvæmd í áföngum. Sú áætlun hef- ur verið kynnt fyrir menntamála- ráðherra og sýnist skynsamleg í öllum aðalatriðum. Er lagt til að þeirri áætlun verði fylgt að meginefni til. Hégómi og fordild Jónas Árnason (Abl) sagði til- lögu þá, sem hér væri til umræðu, hégóma og fordild. Sjónvarp væri víða um heim hrein plága og óþarfi væri að apa þá plágu eftir útlendingum. Kostir sjónvarps hér væru m.a.: það sendi ekki út nema á síðkvöldum, ekki alla daga vikunnar, og ekki alla mánuði ársins. Hégómi og fordild væri að verða sterkasta aflið í þessu þjóðfélagi. Litir í sjónvarpi erlendis væru bjagaðir og af- skræmdir — og til stórra leiðinda. T.d. hefði hann, staddur erlendis, séð Bandarikjaforseta í sjónvarpi með grænt nef. Við hefðum margt þarfara að gera með gjaldeyri okkar en kaup á litasjónvörpum. Tekjumöguleiki til að bæta dreifikerfið. Sigurlaug Bjarnadóttir (S) sagðist að sumu leyti sammála Jónasi um sjónvarpsliti. Hins vegar styddi hún framkomna til- lögu, fyrst og fremst af þeim sökum, að hún byði upp á tekju- möguleika (í innflutningsgjöld- um), er gerðu kleift að bæta sjón- varpskerfið í landinu og koma því til þeirra, er enn væru án þess, þ. á m. 400—500 sveitabýla og sjó- Framhald á bls. 27 Án verulegs undirbúnings: Bundið slitlag á 830 km Þjódvegir eru 8.485 km, sýsluvegir 3.208 km, vegakerfíd samtals 11.693 km Miklar umræður urðu á Alþingi í gær um tillögu Ólafs G. Einarssonar (S) og Jóns Helgasonar (F) um bundið slitlag á þjóðvegi. Þar sem ástand þjóðvega tekur til áhugasviðs þorra landsmanna, þykir rétt að birta fram- söguræðu Ólafs hér á eftir f heild. Umræður um hana verða að öðru leyti raktar sfðar: TILGANGUR OG MARKMIÐ Eins og fram kemur í grg. með tillögunni er tilgangurinn með flutningi hennar tvíþættur: I fyrsta lagi að fá fram vilja Alþing- is um það, hvernig staðið skuli að framkvæmdum við lagningu slit- lags á þjóðvegi næstu árin; í öðru lagi, að Alþingi lýsi yfir þeim vilja sínum, að fjár verði aflað til þessara framkvæmda, þannig að meginverkefninu verði lokið á næstu 10—15 árum. Ef Alþingi fellst á tillöguna er skýr og ákveðin stefna mótuð, stefna, sem við flm. teljum nauð- synlegt að mörkuð verði nú þegar, til þess að hafist verði handa þeg- ar á næsta ári um hinar sjálfsögðu úrbætur á vegakerfinu. Tvö eru meginatriði málsins: ef við ætlum okkur að gera hið nauð- synlega átak í lagningu bundins slitlags á þjóðvegina, verður ákvörðun um það, með hvaða hætti það verði gert, að koma frá Alþingi, og: Alþingi verður að ákveða, að til þessa verkefnis verði varið meira fé en áður og fjárveitingar haldist út fram- kvæmdatímabilið. Hér yrði um vissa stefnubreytingu að ræða, að því er tekur til undirbúnings að lagningu slitlagsins, þar sem til- lagan gerir ráð fyrir, að slitlagið verði lagt á vegina án sérstakrar endurbyggingar þeirra, þ.e. þá vegakafla, sem taldir eru á annað borð það góðir að slíkt sé hægt. Til þessa hefur slitlag ekki verið lagt á þjóðvegi án vandaðrar end- urbyggingar þeirra og að undan- gengnum ítarlegum burðarþols- mælingum. Segja má, að hinn vandaði undirbúningúr við vega- lagninguna út frá Reykjavík, þ.e. Reykjanesbraut, Vesturlandsveg í Kollafjörð og Suðurlandsveg að Þjórsá, hafi verið réttlætanlegur þótt fjármagnsfrekur væri, vegna hinnar miklu umferðar, sem um þessa vegi fer. Þeir vegir, sem hafa innan við 1.000 bifreiða umferð að meðal- tali á sólarhring, þurfa ekki þá vandlegu undirbyggingu sem hin- ir, er meiri umferðarþunga hafa. En ákvörðun um önnur vinnu- brögð en þau, sem til þessa hafa verið viðhöfð, verður að koma frá Alþingi. Þetta er pólitfsk ákvörð- un, en ekki verkfræðileg. Þetta er spurning um bestu nýtingu á því takmarkaða fjármagni, sem er til umráða. En þótt ákvörðunin sé pólitísk, er ekki þar með sagt að hún þurfi í sjálfu sér að stangast á við skoðanir verkfræðinga. Þeim er að sjálfsögðu ljóst að leggja má bundið slitlag, þ.e. olíu- möl, á vegi sem ekki eru undir- byggðir á hinn fullkomnasta hátt. Það er hins vegar eðlilegt að tæknimenn vilji fá fram yfirlýs- ingu Alþingis um það að stefnt Olafur G. Einarsson skuli að lagningu slitlags á þá kafla þjóðveganna, sem hafa t.d. innan við 1.000 — 1.500 bíla um- ferð á sólarhring, án þess að til sérstakrar undirbyggingar komi. Af viðtölum við forsvarsmenn Vegagerðar ríkisins, og ekki síst Sigurð heitinn Jóhannsson, vega- málastjóra, tel ég mig vita að þeir eru þessari stefnu fylgjandi. Menn athugi i þessu sambandi, að innan við 300 km af þjóðvegakerf- inu hefur meira en 1.000 bíla um- ferð á sólarhring. Þetta er sem sagt annar höfuð- tilgangurinn með flutningi tillög- unnar, að fá fram þann vilja Al- þingis, að með þessum hætti verði staðið að verki. í greinargerð með tillögunni eru nefndar nokkrar ástæður, sem renna stoðum undir þá skoð- un okkar flutningsmanna, að ekki verði lengur undan því vikist að hefja framkvæmdir í stórum stíl við lagningu slitlags á hina fjöl- förnustu kafla þjóðvegakerfisins, þ.e. hringveginn og helstu tengi- vegi út frá honum. Um þessi rök vil ég fara fáeinum orðum. VIÐHALD M ALARVEGA 1 fyrsta lagi verður að telja nær því ómögulegt að halda við malar- vegum þannig að sæmandi geti talist, þegar umferðin er orðin svo þung, sem raun ber vitni. Vegakerfið er það ófullkomið, að það þolir ekki hið aukna álag, sem fylgir vaxandi bifreiðaeign lands- manna. Samræmi verður að vera í bifreiðainnflutningi og vegagerð. Svo einkennilega sem það kann að hljóma, er jafnvel enn erfiðara að halda. við hinum nýbyggðu malarv.egum, sem eru breiðari en hinir gömlu, en þó er enn ömur- legra að horfa upp á þá stór- skemmast af umferðinni, sem þeir myndu ekki gera, ef bundið slitlag væri lagt á þá. RYKMENGUN FRA MALARVEGUM I öðru lagi má nefna þá stað- reynd, að vegir, sem ekki eru með bundnu slitlagi, eru einhverjir mestu mengunarvaldar sem hugs- ast getur úti um sveitir landsins. Menn fundu ekki svo mjög fyrir þessu meðan umferð var minni. En rykmengunin í nágrenni hinna fjölfarnari þjóðvega er óþolandi með öllu, fyrst og fremst fyrir þá, sem búa í nágrenni þeirra, en einnig og ekki sfður fyrir alla vegfarendur. Ég hef ekki tölur handbærar um, hve mörg þúsund tonn af ofaníburði leggjast á ári hverju yfir tún og akra bændanna, spilla gróðrinum og hinu tæra andrúmslofti, til skaða fyrir heilsufar manna og dýra. Það eru fínustu kornin úr ofaníburðinum, hið raunverulega bindiefni, sem rýkur í burtu. Hið grófasta verður eftir á veginum þar til það sópast út fyrir kant- ana. I dag tala menn mikið um mengun sjávar og mengun í ám og vötnum af völdum iðnaðarvera, og síðast en ekki síst tala menn um mengun andrúmsloftsins af völdum ýmis konar iðjuvera, svo sem álverksmiðja, járblendiverk- smiðja, áburðarverksmiðja, fiski- mjölsverksmiðja o.fl. En á ryk- mengunina frá vegunum er varla minnst. Við flutningsmenn þess- arar tillögu leggjum áherslu á þetta atriði og bendum á það sem veigamikla röksemd fyrir lagn- ingu slitlags á vegina. ARÐBÆRAR FRAMKVÆMDIR I þriðja lagi er sú staðreynd, að vegaframkvæmdir sem þessar eru hinar arðbærustu. Þar vegur þyngst á metunum, að ending bif- reiðanna, sem um vegina fara, margfaldast, og hefur í för með sér beinan peningalegan sparnað fyrir eigendur þeirra og þjóðfé- lagið I heild. Þungbærasti skatt- urinn á bifreiðaeigendur er notk- un slæmra vega, og e.t.v. læðist að sá grunur, að ríkissjóður sé bein- línis hagur af slæmum vegum, vegna óhóflegrar skattheimtu á bifreiðir og rekstrarvörur til þeirra. Sjáanleg arðsemi ríkis- sjóðs af varanlegri vegagerð er kannske ekki heldur mikil, þar sem fé til vegaviðhalds hefur ver- ið af skornum skammti. En hér verður að miða við, að viðhald Framhald á bls. 27 AIÞinCI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.