Morgunblaðið - 23.11.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NOVEMBER 1976
Fundur NA-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar:
Reyna A-Evrópuríkin
að spoma við 200 mílna
fiskveiðilögsögu EBE?
Takmarkið: Engin slysaalda 1 ár
Ekkert lát á óhöppum í
umferðinni en slys eru fá
SlÐASTLIÐNA helgi bárust
samtals 52 tilkynningar um .
árekstra til lögreglunnar í
Reykjavík, en það hefur aðeins
einu sinni átt sér stað fyrr að
útköll vegna árekstra voru yfir
50, en það var helgina á undan.
Að vísu voru 20 þessa árekstra
mjög smávægilegir, en meðal
hinna urðu 3 minni háttar slys.
Þessa sömu helgi í fyrra urðu
útköllin 26 og þótti okkur samt
nóg um. Þá slösuðust líka 3, en
einn þeirra alvarlega.
Ef þetta ástand verður áfram
næstu helgar má vart búast við
góðu þegar færð á vegum fer að
spillast fyrir alvöru þegar
snjórinn og hálkan koma, ef
ekki er hægt að gera betur
þegar skyggni og færð eru jafn-
góð og undanfarið. Ég er líka á
þeirri skoðun að í jólamánuðin-
um er hægt að verja tíma og
fjármunum á betri veg en að
þurfa að láta gera við bifreiðina
eða greiða sjálfsábyrgð, eftir að
hafa verið -valdur að
umferðaróhappi, eða það sem
mun verra er að liggja á sjúkra-
húsi eða vera óvinnufær vegna
meiðsla, sem væru afleiðing
augnabliks óaðgæzlu þinnar.
(FGG — slysadeild lögregl-
unnar).
Raforkuverð hækkar
um 25% vegna Sigöldu
STJÖRN Landsvirkjunar hefur
undanfarið fjallað um rekstrar-
áætlun fyrirtækisins fyrir árið
1977 með tilliti til aukins kostn-
aðar vegna verðbólgu og gengis-
sigs á þessu ári og aukinna út-
gjalda á næsta ári við að Sigöldu-
virkjun verður þá tekin í rekstur.
Áætlanir Landsvirkjunar sýna
að, að til þess að standa straum af
þessum viðbótarútgjöldum næsta
árs, þurfi að hækka rafmagnsverð
Landsvirkjunar til almennings-
rafveitna um minnst 25% frá og
með 1. janúar 1977.
Til rökstuðnings þessu, sendi
Landsvirkjun frá sér fréttatil-
kynningu með yfirliti um þann
viðbótarkostnað, sem hér um ræð-
ir, en auk þess er dregin saman
áætluð tekjuaukning til mótvæg-
is. Aukning útgjalda í rekstri
1977 miðað við 1970 áætlast alls
1.661 milljón krónur, sem sundur-
liðast þannig, að aukning vegna
núverandi kerfis án Sigöldu, þ.e.
rekstrar- og viðhaldskostnaður,
afskriftir og frádregnir vextir
nema 69 milljónum króna. Aukn-
Kjarvalsstaðir:
„Líflegt að
líta inn” til
Veturliða
Sýningu hans
lýkur í kvöld
MALVERKASYNING Vetur-
liða Gunnarssonar listmálara
lýkur á Kjarvalsstöðum i
kvöld, en Vesturliði sýnir tals-
vert á annað hundrað myndir í
Framhald á bls. 31
ing vegna Sigölduvirkjunar, sem
kemur í rekstur 1977, rejcstrar- og
viðhaldskostnaður, vextir og
afskriftir nema 1.592 milljónum
eða samtals 1.661 milljón.
Af þessu er ljóst, að 96% af
kostnaðaraukningu Landsvirkj-
unarkerfisins á næsta ári stafar
af því, að Sigölduvirkjun er tekin
i rekstur á árinu, en aðeins 4%
stafa af kostnaðaraukningu nú-
verandi kerfis. Þessari miklu út-
gjaldaaukningu getur Landsvirkj-
un mætt með fernu móti. I fyrsta
lagi með fé úr eigin rekstri að
óbreyttu verði og rafmagnssölu, í
öðru lagi koma til auknar tekjur
vegna aukinnar raforkusölu til al-
menningsrafveitna og stóriðju á
næsta ári, í þriðja lagi koma til
auknar tekjur vegna endurskoð-
unar samninga við ÍSAL og
Áburðarverksmiðju ríkisins og í
fjórða lagi auknar tekjur vegna
áhrifa frá 25% hækkun á verði til
Framhald á bls. 31
FUNDUR Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinn-
ar hófst I London I gærmorgun og
eitt helzta mál fyrstu daga fund-
arins verður framtfð nefndarinn-
ar og þá hlutverk hennar eftir að
Efnahagsbandalagslöndin hafa
fært fiskveiðilögsögu sfna I 200
mflur 1. janúar n.k. Þá verður
einnig mikið rætt um framtfð
sfldveiðanna f Norðursjó, en lagt
hefur verið til að þær verði bann-
aðar með öllu á næsta ári, sem
reyndar hefur verið gert áður.
Morgunblaðið hafði samband
við Þórð Ásgeirsson, formann ís-
lenzku sendinefndarinnar i Lond-
on í gærkvöldi. Sagði hann að lítið
hefði gerzt á fundinum í gær,
nema hvað fulltrúar EBE-rikja
hefðu verið á sérfundum og rætt
Bildudalur:
200 bíl-
hlöss
af aur-
skridu
Bíldudal, 22. nóv.
AURSKRIÐAN sem féll hér í
roki og rigningu s.l. föstudags-
kvöld stórskemmdi tvær lóðir
húsa i bænum, en þegar skrið-
an kom niður fjallshlíðina
rann hún fyrst yfir lóð Dal-
brautar 18, siðan yfir götuna
og á lóð hússins handan við
götuna, Dalbrautar 17. Tjónið
af völdum aurskriðunnar nem-
ur hundruðum þúsunda króna.
Búið er að hreinsa helming
aurleðjunnar, eða tæplega 100
bílhlöss og annað eins er eftir.
Páll.
SAMVINNUNEFND banka og
sparisjóða auglýsti um helgina að
frá og með 20. nóvember gengju f
gildi nýjar reglur er varða
hlaupareikninga. Nú er hætt að
senda ávfsanir á hlaupareikninga
til innheimtu hjá Seðlabanka Is-
lands, en f stað þess annast við-
komandi viðskiptabanki sjálfur
sín vandamál og fundarmenn
rætt síðan framtíð nefndarinnar
Framhald á bls. 31
72% kjörsókn í Laug-
arnesprestakalli:
Metkjörsókn
í Reykjavík
um árabil
72% kjörsókn var i prests-
kosningunni í Laugarnespresta-
kalli um helgina, en þar voru i
kjöri séra Jón Dalbú Hróbjarts-
son og Pjétur Þ. Maack. Kjörsókn-
in er með því mesta sem hefur
verið í Reykjavik um langt árabil,
en alls kusu 2155 manns af 3018
sem voru á kjörskrá. Fólk beið við
kjörstaði þegar þeir voru opnaðir
á sunnudagsmorgun og var jöfn
kjörsókn allan daginn að sögn
séra Ólafs Skúlasonar
dómprófasts. Kvað hann mjög
ánægjulegt hve kjörsókn hefði
verið mikil. Kosningin er lögmæt,
en atkvæði verða talin á
skrifstofu biskups n.k. fimmtu-
dag.
Allt í lagi
hjá Fær-
eyingunum
LANDHELGISGÆZLAN kannaði
í fyrradag veiðarfæri færeyskra
togara við landið og reyndust þau
vera í stakasta lagi og samkvæmt
settum reglum. AIls eru um 5
Færeyingar við landið á veiðum
um þessar mundir.
innheimtu innstæðulausra tékka
og tekur 2,5% dráttarvexti á
mánuði og fyrir hvern byrjaðan
mánuð af upphæðinni.
Um leið og yfirdráttur verður á
hlaupareikningi fram yfir það,
sem viðskiptavinur hefur skrif-
legan samning um, verður
reikningnum lokað og hann ekki
opnaður aftur fyrr en viðkomandi
hefur gert grein fyrir kröfum
bankans. Við ítrekuð brot verður
reikningi lokað fyrir fullt og allt.
Hafi viðskiptavinur t.d. gefið út
25 þúsund króna ávísun á 20
þúsund króna innstæðu, greiðir
hann aðeins vexti af þeim 5
Framhald á bls. 46
Vængir komnir
af stað aftur
FLUGFÉLAGIÐ Vængir hóf
aftur áætlunarflug s.l. sunnudag
með 9 sæta Ilander vél sinni, en
samkvæmt upplýsingum Ómars
Ólafssonar flugmanhs er ómögu-
legt að sinna eðlilegu áætlunar-
flugi og þjónustu með litlu vél-
inni einni. Ómar kvaðst vonast til
þess að stærri vélarnar kæmust í
gagnið innan tíðar jafnvel um
næstu helgi og þá ætti að fara að
rætast úr málunum, enda ekki
seinna vænna fyrir jóla-
umferðina.
„Ódýrara að kasta skít i lögregl-
una en að gleyma stöðumæli”
Lögreglumenn óánægdir med
lágar sektir eftir ólætin
á Hótel íslandsplaninu
ekki við þetta eina mál heldur Morgunblaðinu tókst ekki að
„Það er ódýrara að kasta skft
I lögregluna heldur en að
gleyma að setja pening I stöðu-
mæli,“ sagði einn af varðstjór-
um lögreglunnar í samtali við
Morgunblaðið I gær, en tölu-
verðrar óánægju gætur nú með-
al lögreglumanna vegna af-
greiðslu sakadóms á málum
ungmenna þeirra sem gerðu að-
súg að þremur lögreglumönn-
um á föstudag á Hótel tslands-
planinu eða Hallærisplaninu,
eins og það er einnig nefnt.
Munu ungmennin flest hafa
hlotið um 1000 króna sekt fyrir
þátttöku f þessum ólátum.
Fyrrgreindur varðstjóri á
miðbæjarstöð lögreglunnar
sagði ennfremur í viðtali við
Morgunblaðið, að óánægja lög-
gæzlumanna einskorðaðist þó
væri það mjög algeng skoðun
innan lögregluliðsins, að dóms-
valdið styddi ekki nægilega við
bakið á lögreglumönnum með
háum sektargreiðslum f þeim
tilfellum, er þeir yrðu fyrir að-
kasti í eða vegna starfa síns.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
Sigurjón Sigurðsson staðfesti i
samtali við Morgunblaðið að
honum hefði borizt til eyrna
óánægja lögreglumanna vegna
þessa máls og væri nú verið að
kanna það nánar af hálfu em-
bættisins, þannig að hann
kvaðst ekki vilja fjölyrða um
það frekar á þessu stigi.
ná tali af sakadómsfulltrúa
þeim, sem fékk mál ungmenn-
anna til meðferðar eftir atburð-
inn á Hótel íslandsplaninu.
Hins vegar ræddi Mbl. við Gísla
Guðmundsson, rannsóknarlög-
reglumann og formann Lög-
reglufélags Reykjavíkur. Hann
kvað - formlegar kvartanir
vegna þessa máls ekki hafa bor-
izt félaginu, en hann hefði
óneitanlega frétt af því og leit-
að nánari upplýsinga hjá full-
trúanum sem afgreiddi þessi
mál. Hefði hann gefið þær skýr-
ingar, að honum væri ekki
Breytt meðferð inn-
stæðulausra hlaupa-
reikningstékka