Morgunblaðið - 23.11.1976, Page 29

Morgunblaðið - 23.11.1976, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1976 37 HVERFAFÉLÖG sjálfstæðismanna efna aðallega til funda um málefní, sem varða viðkomandi hverfi, auk þess sem undirbúningur kosninga hvílir verulega á herðum hverfafélag- anna- , i i MALFUNDAFÉLAGIÐ ÖÐINN MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn er félag sjálfstæðismanna í launþegasamtökum. Málfundafélagið Óðinn hefur náð því markmiði að efla samhug sjálfstæðismanna innan launþegasamtakanna í þeim tilgangi að þroska þá í almennri félagsstarfsemi, svo sem málflutningi á mannafundum, fundarstjórn og fundarreglum og öðru því, sem að gagni má koma i þeirri viðleitni að vinna að bættum lífskjörum launþega. Málfundafélaið Óðinn beitir sér fyrir því að vinna að öllum þeim málum í hinum ýmsu stéttarfélögum, sem stuðla að varanlegum kjarabótum og jafnrétti meðlimanna. Málfundafelagið Óðinn vill efla samvinnu og skilning milli launþega og vinnuveitenda. Málfundafélagið Óðinn berst gegn hvers konar pólitískri misnotkun á verkalýðsfélögum. Málfundafélagið Óðinn leggur áherzlu á: 1) Að tryggja lýðræði og skoðanafrelsi innan launþegasam- takanna í landinu. 2) Faglega hagsmunabaráttu launþegum til heilla og koma í veg fyrir pólitíska misnotkun launþegasamtakanna. 3) Að hafa þau áhrif á stefnu og störf Sjálfstæðisflokksins, að hagsmunir launþega séu ávallt í hávegum hafðir, svo flokkurinn eigi í raun fylgi allra stétta skilið. Helztu baráttumál Málfundafélagsins Óðins í dag eru: 1) Atvinnuöryggi^fyrir hvern vinnufæran mann. 2) Trygging kaupmáttar launa. 3) Bætt vinnulöggjöf. 4) Vinnuhagræðing til framleiðniaukningar og hagsbóta fyrir almenning. 5) Arðshlutdeild og afkastabónus. 6) Auknir möguleikar á heilbrigðri nýtingu frístunda, sem leiðiraf styttingu vinnutímans. 7) Verðtryggður lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. 8) Atvinnulýðræði, þ.e. þátttaka launþega í stjórnun fyrir- tækja. 9) íbúðabyggingar á félagslegum grundvelli. Norðurland — nýtt blað NÝTT blað hefur byrjað göngu sína á Norðurlandi. Heitir blaðið Norðurland og er málgagn Alþýðu- bandalagsins í Norður- landskjördæmi eystra. Tekur blaðið við af Alþýðu- bandalagsblaðinu, sem sami stjórnmálaflokkur gaf áður út. Norðurland er gefið út á Akureyri. Ritstjóri hefur verið ráðinn Vilborg Harðardóttir, sem áður var blaðamaður á Þjóðviljanum. 1 ritnefnd eru Helgi Guðmundsson, Þórir Steingrímsson, Böðvar Guð- Vilborg Harðardóttir. mundsson, Sofffa Guðmundsdótt- ir og Þröstur Ásmundsson. Isadora — ný bók ÆGIStlTGAFAN hefur sent frá sér bókina „Isadora" eftir Ericu Jong, en bókin heitir ð frum- mfilinu Fear of Flying. t fslenzku hefur bókin verið nefnd eftir aðalsögupersónunni Isadóru Wing. Á bókarkápu segir að aðalsögu- persónan sé einhver skemmti- legasta og viðkvæmasta and- hetja, sem fram hefur komið í nýrri skáldsögu. „Altekin fælni, sem veldur þvf að hún þorir ekki að fljúga, en leyfir sér þó ekki að forðast flugvélar. Isadora segir frá ævintýrum sínum og skakka- föllum með þeirri algeru hren- skilni, sem um aldir hefur aðeins karlmönnum leyfst." Blásarakvintett í Norræna húsinu 1 dag, þriðjudaginn 23. nóvember kl. 20.30, verða haldnir tónleikar í Norræna húsinu. Þar kemur fram blásarakvint- ett sem skipaður er þeim Manuelu Wiesler, Kristjáni Þ. Stephensen, Sigurði Snorrasyni, Stefáni Þ. Stephensen og Hafsteini Guðmundssyni. Á efnisskrá tónleikanna eru kvintettar eftir Leif Þórarinsson, Franz Danzi og Paul Hindemith, trfó eftir Jacques Ibert og Duett eftir Hector Villa-Lobos. Aðgöngumiðar fást við inn- ganginn. AUGLÝSINGASÍMtNN ER: 22480 JHorQunblabib FYRIR DÖMUR: Rúlliikraga- peysur, jakkapeysur. Hvítar og mislitar blússur. Kjólar. Regnkápur frá Gordon King. FYRIR HERRA: Terelín föt m/vesti. Rifluð flauels föt. Rlflaðir og finflauels jakkar. Stakar terelín buxur. Úrval af alls konar peysum. Skyrtur frá Men's Club. Mao skyrtur. Mittis kuldajakkar, mittis leðurjakkar. Gallabuxur frá Levi's, Inega og Kobi. HERRA KÚREKASTÍGVÉL. laugavegi 37 laugavegi 89 hafnarstr. 17 12861 13008 13303

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.