Morgunblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1976
5
Tapið 10
á þremur
SfÐASTLIÐINN föstudag birtist
f Morgunbalðinu viðtal við
sveitarstjórann á Bfldudal, og f
viðtalinu sagði hann, að hreppur-
inn hefði rekið frystihúsið og út-
gerð til 1970, en þá hafði farið að
veiðast rækja, sem gaf skjótan
gróða en ennfremur hafði þá far-
ið að halla undan fæti fyrir ann-
arri útgerð. Páll Hannesson á
Bfldudal vill láta þess getið, að
rækjuveiði hafi hafizt árið 1938.
Frá þeim tfma og fram til 1970
unnu við rækjuvinnslu 30 til 60
og 70 manns I landi. 1970 koma
sfðan véfar til skjalanna og nú
vinna aðeins 14 menn f landi við
rækjuiðnaðinn á Bfldudal.
Páll sagði að 1970 hefði verið
stofnað almenningshlutafélag um
frystihúsið, Arnfirðingur h.f. Það
félag var stofnað til þess að
bjarga, ef svo mætti segja,
hreppsfélaginu frá gjaldþroti, en
hins vegar var félagið fjárvana
frá upphafi og í raun stofnað að-
eins til þess að unnt væri að
ganga að því en ekki hreppnum
— sagði Páll. Hann sagði ennig,
að ástæðan fyrir því að hallað
hefði undan fæti fyrir frystihús-
inu væri að á sfðastliðnum 20 til
25 árum hefði ekki farið fram á
þvi nein endurbót, sem gagn
hefði verið að. Hefði frystihúsið
ekki uppfyllt þær kröfur, sem
gera þyrfti til slfkra húsa, svo að
unnt væri að reka þau með sæmi-
legum árangri.
Páll sagði að byggðasjóður
hefði rekið frystihúsið í 3 mánuði
í fyrra einmitt á blómatima, þegar
nægur fiskur var. Þrátt fyrir það
mun tap frystihússins þessa þrjá
mánuði hafa numið um 10 mill-
jónum króna. Er þó ekki reiknað
Stúdentar
kjósa til
Háskólaráðs
SU BREYTING var gerð á lögum
um Háskóla Islands á sfðastliðn-
um vetri að fulftrúum stúdenta f
Háskólaráði var fjöfgað úr tveim-
ur f f jóra, jafnframt þvf sem full-
trúum stúdenta f deildarráðum
var einnig fjölgað. Á morgun,
miðvikudag, fer fram kjör þess-
ara tveggja viðbótarfufltrúa stú-
denta og fer kosningin fram f
anddyri Háskólans frá kl. 9 til 18.
Tveir listar eru í kjöri A-listi
Vöku, félags lýðræðissinnaðra
stúdenta og B-listi vinstri manna.
Á lista Vöku er Berglind Ás-
geirsdóttir, Dögg Palsdóttir,
Jónas Ingi Ketilsson og Kristín
Jónsdóttir. Þau, sem skipa lista
vinstri manna eru Gylfi Arnason,
Kristín Astgeirsdóttir, Lárus
Guðjónsson og Hörður Þorgilsson.
Sá listinn, sem fær fleiri atkvæði
fær mann kjörinn til tveggja ára
en sá, sem færri atkvæði hlýtur
mann kjörinn til vors. Fái annar
listinn 67% greiddra atkvæða fær
hann báða fulltrúana.
Æskulýðsfélag
Bústaðasóknar
fær heimsókn
úr Keflavík
Á FUNDI I Æskulýðsfélagi
Bústaðasóknar á miðvikudags-
kvöldið kl. 8:30 verða gestir úr
Keflavík. Er hér um að ræða ungt
fólk, sem vakið hefur mikla at-
hygli með söng sfnum, hljóðfæra-
leik og kristilegum boðskap. 1
fylgd með þeim verður prestur
Keflvíkinga, séra Ólafur Oddur
Jónsson. Er vakin sérstök athygli
á þessum fundi Æskulýðsfélags-
ins, af því að hann er ekki aðeins
ætlaður félagsbundnum ung-
mennum f þeim samtökum, held-
ur öllu ungu fólki, og það, sem
ekki telur sig lengur i hópi ung-
linga, er hjartanlega velkomið
líka. Frá Bústaðasókn.
milljónir
mánuðum
með leigu til Fiskveiðasjóðs fyrir
frystihúsið eins og gert var, þegar
Boði var gerður gjaldþrota og var
það gjaldþrot af stærðargráðunni
20 milljónir króna.
Þá sagði Páll, að það væri eins-
dæmi hvernig staðið hefði verið
að uppbyggingu á Bildudal, Hann
kvað það ekki hafa verið Bíldæl-
ingum að kenna hvernig komið
væri, heldur ýmsum ráðamönn-
um.
Síðan í fyrra hafa verið greidd-
ar 20 til 25 milljónir króna í at-
vinnuleysisbætur á Bildudal.
Siðastliðinn föstudag voru þær
greiddar fyrir september og októ-
ber og var upphæðin 1.800
þúsund krónur.
Jóladagatöl
Lionsmanna
ÁRLEG sala Lionsklúbbsins
Freys á jóladagatölum er ný-
lega hafin, en öllum ágóða verð-
ur varið til liknarmála. Verð
hvers dagatals er 450 krónur og
verða þau seld i fjölmörgum
verzlunum í Reykjavfk, t.d.
Heimilistækjum, Tízkuskemm-
unni, Tómstundahúsinu, Gunn-
ari Ásgeirssyni, Helenu og
Garðsapóteki. Einnig má eiga
von á Lionsmönnum fyrir utan
stærri verzlanir borgarinnar
eða að þeir banki upp á.
Meðal þeirra málefna, sem
Liorisklúbburinn Freyr hefur
styrkt á árinu eru innréttingar
í Skálatúni, fjölfatlaðir og með-
limir i iþróttafélagi fatlaðra
hafa verið styrktir til utan-
ferða, lestæki hafa verið gefin
blindum og Heyrnleysingja-
skólanum svo eitthvað sé nefnt.
Á meðfylgjandi mynd sést
ungur snáði með jóladagatalið
sitt.
MICROMA úr með fljótandi
kristöllum, mesta tækniund-
ur nútímans, getur sýnt yð-
ur það nákvæmlega upp á
sekúndu.
Missið ekki álit, sem þér
hafið aflað yður með hæfi-
leikum og dugnaði, með því
að koma of seint, bara
vegna þess að úrið yðar
gengur ekki nægilega rétt.
Hafið þér efni á því?
MICROMA úr Geimaldar-
innar fyrir nútímamann,
sem veit hversu dýrmætur
tíminn er.
Maðurinn hefur notað úr frá
ómunatlð. Úr hafa þróast og orðið
sífellt nákvæmari, til þess að upp-
fylla kröfur slns tíma. Allir kann-
ast við sól úr, tímaglös, dendul-
klukkur, trekktar klukkur, sjálf-
trekktar klukkur, elektróniskar
klukkur með díoðum, sem lýstu
með rauðum stöfum og sýndu
timann einungis þegar ýtt var á
hnapp. Þær eyddu of miklu raf-
magni. Þess vegna eru nú notaðir
fljótandi kristallar, sem eyða svo
litlu rafmagni að úrið getur sýnt
yður tímann. Stöðugt með ná-
kvæmni sem skeikar nokkrum
sekúndum á ári.
HVAÐ GETUR MICROMA ÚRIÐ GERT?
1. Sýnt yður stöðugt klukkustundir, mlnútur, sakúndur og dagsetningu.
2. Mikil nákvæmni skeikar e.t.v. nokkrum sekúndum á ári. Rafhlöður endast 11. ár.
3. Innbyggt Ijós, haegt er að sjá á úrið I algeru myrkri.
4. 100% fastbyggt. Engir hreyfifletir. ekkert slit, þarf aldrei að smyrja né hreinsa.
SVONA NOTIÐ ÞÉR MICROMA ÚRIÐ
1. Úrið I venjulegri stillingu og sýnir klst. og mlnútur stöðugt.
2. Þér ýtið á takka og sekúndurnar birtast.
3. Aftur getið þér ýtt á sama takka og þá kemur dagsetningin.
4. Ýtið I þriðja sinn og úrið sýnir klst. og mln.
5. Tveir punktar eru milli klst. og mlnútna og blikka þeir með einnar sek. bili.
6 Microma úrið hefur innbyggt Ijós, sem lýsir I myrkri.
Verð frá 29.980 — 55.000
Vbúðirnar Skipholti 19 við Nóatún,
simi 23800
oc. . .. . ... Klapparstfg 26. slmi 19800
25 ar i fararbroddi.