Morgunblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 23.11.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NOVEMBER 1976 ptagtttiirlaMfe Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraidur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson Samneyzla og skattheimta, tvœr hliðar sama hlutar Aldursskipting tslend- inga, sem eru fámenn þjóð í harðbýlu landi, sýnir, að sá hluti hennar, sem er á starfsaldri, er ekki fjölmennur. Nokkur hluti þessa fólks sinnir og námi drjúg- an part úr ári. Sé miðað við aðrar þjóðir, jafnvel hinar fámennari, má því ljóst vera, að hún er ekki fjölmenn sú sveit, er stendur und- ir verðmætasköpun í þjóðfélaginu og skattabyrðinni til ríkisins. Auk þessa sérkennis kemur annað til, sem er mjög afgerandi í efnahagslífi þjóðarinnar, hvað hún er háð utanríkisviðskiptum. Sennilega býr engin Evrópuþjóð við jafn einhæft atvinnulíf eða er jafn háð verðlagi einnar út- flutningsvöru og við — eða verð- lagi jafn margra innfluttra nauð- synja. Svipull er sjávarafli segir máltæki, sem til varð með þjóð- inni löngu áður en rányrkja rýrði fiskstofna okkar, og sveiflur í verði sjávarafurða hafa löngum sett mark sitt á lifskjör ís- lendinga. Þjóóarbúið lýtur sömu efna- hagslögmálum um tekjur og fram- færslu og hvert heimili í landinu. Þjóðartekjurnar, eins og þær verða hverju sinni, setja þjóðinni sem heild mörk um þjóðareyðslu og framkvæmdir. Safni þjóðar- búið skuldum vegna þess að þjóð- in hafi lifað um efni fram, eða ráðizt í fjárfestingu fyrir lánsfé, dragast afborganir og vextir af því aflafé, sem fæst fyrir fram- leiðslu þjóðarinnar. Þeim mun hærri sem skuldirnar eru þeim mun minna verður eftir af afla- fénu sem ráðstöfunartekjur i höndum heimila og einstaklinga. Þetta eru einföld en áþreifanleg sannindi. Slæm viðskiptakjör þjóðarinnar út á við á árunum 1974 og 1975 leiddu til verulegs viðskiptahalla, sem raunar enn er umtalsverður, þó viðskiptakjör hafi mikið batn- að. Þessi viðskiptahalli stafaði að hluta til af fjárfestingu í landinu en einnig að hluta til af því, að þjóðin skammtaði sér ekki fé til ráðstöfunar í samræmi við rýrðar þjóðartekjur, heldur lifði á skuldasöfnun, sem hún hafði og raunar gert undanfarin ár. Sam- hliða þessu rauk verðbólguvöxtur upp í 53% á ársgrundvelli, eins og hann komst hæst í endaðan feril vinstri stjórnarinnar. 111 nauðsyn knúði því landsfeð- ur til aðhalds í efnahags- og peningamálum þjóðarinnar. Þar hefur nokkuð miðað í rétta átt, þó að enn þurfi betur að gera. Við- skiptahalli hefur lækkað um 12% í 5 til 6% og stefnt er að því að hann hverfi á allra næstu árum. Verðbólgan hefur hjaðnað niður í um 30% á þessu ári en er þó enn tvö- til þreföld við það, sem gerist í viðskiptalöndum okkar. Þessi árangur hefur náðst af fjórum meginástæðum: verulega minnk- aðri þjóðareyðslu, sem sagt hefur til sín í svokallaðri einkaneyzlu en síður í samneyzlu, aðhaldi í ríkisútgjöldum og samdrætti í ríkisframkvæmdum, hóflegum kjarasamningum og samræmdri stjórnun peningamála. Þessi bati er þó ekki meiri en svo, að lítið þarf út af að bera til þess að öfugþróunin hefjist á ný. Samdráttur þjóðareyðslunnar hefur nær einvörðungu komið fram í einkaneyzlunni sem fyrr segir. Vöxtur samneyzlunnar hef- ur að visu hægt á sér en naumast meir. Samneyzla er samheiti á út- gjöldum rlkis og sveitarfélaga. Hún er það sem fæst fyrir skatt- heimtu þjóðfélagsins. Samneyzla og skattheimta eru því tvær hlið- ar sama hlutar. Hækki eða vaxi samneyzlan fylgir skattheimtan í kjölfarið. Það er jafn öruggt og að nótt fylgir degi. Flestir þættir samneyzlu eru bæði æskilegir og óhjákvæmileg- ir. Þar má nefna málaflokka eins og heilbrigðismál, fræðslumál, tryggingamál, samgöngumál og löggæzlumál. Hins vegar veldur hver á heldur í fjármálalegri stjórnun þessara og annarra málaflokka samneyzlunnar. Sífelld endurskipulagning, jafn- vel hinna þörfustu samneyzlu- flokka, getur leitt til sparnaðar — eða í öllu falli til þess, að fjár- magnið, skattpeningurinn, nýtist betur. Dæmi um öfugsnúna samneyzlu er gröftur fyrir endurhæfingar- sundlaug við sjúkrahús A, sem fylgt er eftir 14 árum síðar með tillögugerð um byggingu sund- laugar við sjúkrahús B. 1 millitíð eru 3 húsbóndaár flutningsmanns í heilbrigðisráðuneyti, án frum- kvæðis á þessum vettvangi. Mark- viss vinnubrögð, þar sem gagn- semi og arðsemi framkvæmda sitja í fyrirrúmi, eru forsenda hyggilegrar fjárfestingar og fjarmagnsstjórnunar — og vissu- lega er endurhæfing gagnsöm, hverp veg sem á er litið, en vinnu- brögðin sem hér eru nefnd segja sina sögu sjálf. Nauðsynlegt er að sýna vaxandi aðhald og festu i rikisbúskapnum við ríkjandi efnahagsaðstæður. Það hefur og verið gert. Og fram- kvæmdum, sem geta beðið betri tíma, þarf hiklaust að slá á frest, fremur á þeim vettvangi, en að stofna til frekari erlendrar skuldasöfnunar. I stuttu máli sagt: við verðum að sniða okkur stakk eftir vexti í ríkisútgjöldum á hverri tíð. Þar af leiðir að setja þarf ákveðið þak á fjárlög hverju sinni, þann veg, að samneyzlan fari aldrei.yfir ákveð- ið hlutfall af þjóðartekjum. Þjóð- artekjur, að frádreginni sam- neyzlu eru ráðstöfunarfé almenn- ings, það sem verður eftir í hönd- um hans að skattheimtu frádreg- inni. Aukin skattheimta myndi því þrengja ráðstöfunarfé heimil- anna i landinu. En aðgæzla í ríkis- fjármálum er ekki einungis nauð- synleg til að koma í veg fyrir hugsanlega skattpiningu, heldur ekki siur sem samverkandi aðferð til að ná þeim efnahagslegu mark- miðum, í viðnámi gegn verðbólgu og viðskiptahalla, sem rikisstjórn- in hefur sett sér. Núverandi fjár- lagafrumvarp er miðað við ríkis- útgjöld sem svarar 29.5% af áætl- uðum þjóðartekjum árið 1977. Það hlutfall má undir engum kringumstæðum hækka. Það er prófraun Alþingis hvern veg tekst til i þessu efni. Orð verða til Baldur Jónsson: Mályrkja Guðmundar Finnbogasonar. 150 bls. Bókaútg. Mennsj. Rvik 1976. „Þetta rit átti upphaflega að verða timaritsgrein um nýyrða- smíð Guðmundar Finnboga- sonar i tilefni aldarafmælis hans 6. júní 1973." segir höf- undur í formála þessarar bókar. Betur að svo hefði orðið. En ritgerðin hefur sem sagt þanist út og orðið að bók. Guðmundur Finnbogason sinnti mörgu um ævina. Ný- yrðasmið eða „mályrkja" var aðeins einn þátturinn í marg- þættu ævistarfi hans. Hann var höfundur og þýðandi margra bóka, eftirsóttur fyrirlesari og áhrifamaður í skólamálum. Fáir munu hafa unnið meir að breytingum þeim sem gerðar voru á íslenskum skólum upp úr aldamótunum. Þó svo að hann færi mest eftir erlendum samtímafyrirmyndum var verk- ið öðru fremur hans. Baldur Jónsson gerir glögga grein fyrir „mályrkju" Guð- mundar en fjölyrðir þar að auki um önnur viðfangsefni hans án þess þó að gera þeim viðhlít- andi skil. Fyrir bragðið verður bók þessi of langdregin miðað við tilgang þann sem henni sýnist ætlaður. Sá, sem vill aðeins kynna sér efni það, sem titill hennar gefur fyrirheit um, verður víða að leita langt yfir skammt. Hinn, sem hyggst leita þarna upplýsinga um önn- ur störf Guðmundar, finnur tæpast fullnægjandi frásögn af nokkru þeirra Ef höfundur hefði aðeins samið ritgerð um kjörefni sitt eitt saman hefði hann þurft að þjappa því tals- vert saman, satt er það. En með því að breiða það yfir heila bók eins og hann hefur gert blasir við verri ókosturinn, sem sé að lopinn hefur verið teygð- ur til óhagræðis og málaleng- ingar hvergi sparaðar. Tilvitn- anir eru viða langar, allt upp í þrjár blaðsiður í einu. Ég tel að margt hvað sem í þeim er sagt hefði mátt endursegja í mun styttra máli. Og annað eftir því. Hér er ekki lýst vantrausti á kunnáttu höfundarins, Baldurs Jónssonar, sem er að sögn ágætur málfræðingur, hann hefur unnið verk sitt af nákvæmni, henni kannski of mikilli! Aðeins hefur honum láðst að skipuleggja verkið, sníða því stakk eftir vexti svo notað sé orðtak sem lýsir nokk- uð bókstaflega því sem gerst hefur. Úr því að verkið var fært út fyrir þann ramma að ein- skorða það við nýyrðasmíð Guðmundar Finnbogasonar hefði ég þó alténd kosið að betri grein hefði verið gerð fyrir endurnýjun tungunnar á sama BóKmenntlr eftir ERLEND JONSSON tíma og Guðmundur var að búa til sín nýju orð. Tími Guðmund- ar var tími málhreinsunar. Sú stefna var þá nauðsynleg en gekk út i öfgar hjá sumum. 'f'msir þoldu engin erlend orð á málinu, allt varð að nefna á íslensku, hversu klúðurslega sem það gekk. Þó Guðmundur væri maður hófsamur létu þessar öfgar hann ekki með öllu ósnortinn. Forvitnilegasti kaflinn I þessari bók Baldurs er sjálf nýyrðaskráin. Þar eru bæði orð sem fest hafa í málinu og önnur sem ekki hefur tekist að vinna sér minnstu hefð. Vita málfræðingar hvað veld- ur því að sum orð geysast inn í málið en önnur ná engri festu? Hvernig tókst „símanum" að útrýma „telephon" svo dæmi sé tekið" Hví hefur „bifreiðin" ekki enn unnið á „bilnum"? Hvers vegna hefur „dráttarvél" átt svo erfitt uppdráttar sem raun ber vitni þar sem t.d. „þotan" flaug inn í málið á einum degi? Til að orð festist í málinu hygg ég það þurfi að vera stutt og laggott — sem sagt lipurt. Ekki tjóir að ætla ferðamanni að geifla á orði eins og „áætl- unarlangferðabifreið" — hann verður þá hvarvetna stranda- glópur. Guðmundur Finnbogason mun hafa smíðað ný orð af margs konar og mismunandi tilefni. Stundum hefur það ver- ið honum tómstundagaman og þá hefur hann tæpast gert ráð fyrir að öll þau orð, sem til urðu undir þvílíkum kringumstæð- um, hlytu óskoraðan og varan- legan sess í málinu. En stund- um kom lika fyrir að hann tók að sér nýyrðasmíð sem starf og vann það þá sem slíkt, vitandi að það yrði að bera góðan árangur. Ennfremur gátu ný orð kviknað á vörum Guðmundar eins og fyrir tilviljun og segir Baldur-eina skemmtilega sögu af því. „Dr. Finnbogi Guðmundsson hefur sagt mér sögu af því, hvernig orðið blöndungur varð til. Maður nokkur mætti Guð- mundi Finnbogasyni á förnum vegi og sagði við hann, að nú vantaði orð yfir „karbúrator" í bílnum. Guðmundur, sem var allsendis ókunnugur bílvélum, spurði, til hvers þessi „karbúra- tor" væri. „Hann blandar sam- an bensíni og lofti", svaraði maðurinn. „Nú, þá köllum við hann blöndung!" sagði Guð- mundur af bragði, og hefir ekki þurft að bæta um síðan." Sinfc tónle Efnisskrá: Karl O. Runólfsson Á krossgöt- um, Robert Schumann Pfanó- konsert op.54, Carl Nielsen Sin- fónfa nr.4, Einleikari: Critina Ortiz, Stjórnandi: Karsten Ander- sen. Karl O. Runólfsson samdi Á krossgötum á árunum 1938—39 og sé aðstaða isl. tónskálda þá athuguð má það teljast furðuleg bjartsýni af Karli að leggja vinnu í að semja hljómsveitarverk á þeim tima sem eini tónlistar- skólinn á landinu hafði aðeins átta ára starf að baki og þekking manna á tónlist og tónsmíði nærri eingöngu bundin við söng. Hljóm- sveit, eins og nokkrir sigldir is- lendingar þekktu slíkt fyrir- brigði, var fjarlægur draumur en aldamótabörnin lifðu þau tíma- skipti er allslaus þjóð reif sig upp úr snærisleysi til bjargálna og voru farin að dekra við frelsið og sáu fyrir sér framtiðina í glæsi- legum myndum. Karl O. Runólfs- son var einn af vormönnum Isl. tónlistar og sannarlega stóðu tón- skáld árið 1938 á krossgötum. Það sem vekur eftirtekt er, að i „Krossgötunum" bryddar Karl upp á ýmsum nýjungum, sem rekja má til Stravinsky og jafnvel Debussy og sýnir það hve Karl fylgdist vel með, því 1938 er tón- list þessara manna ekki orðin eins almennt þekkt og nú. Með þessu er ekki átt við að Karl stæli eða hermi eftir, heldur er hann að tileinka sér það sem nýjast gerist i tónsmíði. Á krossgötum var vel flutt og auheyrt að hljómsveit og stjórnandi vildu hlut Karls sem bestan. 1 efnisskrá tónleikanna er minnst á þá skoðun, sem mjög hefur brennt sig í vitund manna, að rómantík sé af sama toga spunnin og væmni. Ef rómantík er athuguð á þeim tima sem hún er ný og fersk, er vandséð að mannkynið hafi nokkurn tfma í gengið i gegnum voldugri bylt- ingu, þar sem frelsið, jafnréttið og ástin varð til og Guð varð full- ur umburðarlyndis og gæsku. Á þessum tíma eru sköpuð glæsileg listaverk, sem eru ríkari af til- finningum en dæmi eru til á öðr- um timum. Sá sem heldur að raungildi hluta verði mælt við hagnýti þeirra, gleymir því að tilfinning hefur líka raungildi fyrir mann- inn. Það ætti hverjum manni að vera augljóst, því dæmi nútímans sanna það svo rækilega í uppvax- andi kynslóðum, sem uppalendur, vegna lifsþægindagræðgi og með rangfærðu gildismati, hafa skilað framtíðinni börnum sínum full- um af hryllingi, sóðaskap og illsku. En þó við þykjumst þekkja ástina verða hljómbrigði ástár- játninganna margbreytileg. Það er ekki nóg að kunna þessar setn- ingar. Til að blær þeirra fái nýjan og sterkan hljóm þarf sá sem seg- ir þær fram að hafa upplifað það

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.