Morgunblaðið - 23.11.1976, Side 14

Morgunblaðið - 23.11.1976, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NÓVEMBER 1976 Samdóma álit í héradi og fyrir Hæstarétti: Sterkar líkur á því að skipinu hafi verið sökkt Rif jaðir upp málavextir og úrslit fyrir dómstólum SAMANTEKT SS. Leitað var umsagnar Siglingamála- stofnunar ríkisins vegna sprengingar- innar i Hamranesinu 18. júní 1972 og kom álít stofnunarinnar fram í eftirfar- andi bréfi til saksóknara ríkisins: Með bréfi dagsettu 4. maí 1973 óskið þér herra saksóknari, að athuguð verði endurrit dómsrannsóknar ásamt fylgi- skjölum, svo og rekstrar- og efnahags- reikningar, dags. 4. desember s.l., allt varðandi rannsókn á því er b/v Hamra- nes sökk um 50 sm, suðvestur af Malar- rifi hinn 18. júní s.l. og umsögn látin í té um málið í heild og tillögur um frekari meðferð þess. Útilokað má telja, að skipið hafi sokkið af völdum tundurdufls. Ræð ég þetta einkum af framburði sprengjusérfræð- inganna Helga Hallvarðssonar og Rudólfs Axelssonar, ennfremur af lýs- ingu Auðuns Auðunssonar skipstjóra, er skip hans M/S Fylkir fórst sennilega af völdum tundurdufls árið 1956. 1 dagbókarskýrslu skipstjórans á Hamranesinu kemur greinilega fram til- raun til að láta svo líta út, að um mikla kröftugri sprenginu hafi verið að ræða en raun ber vitni: „Kvað við mikil sprenging svo að skipið hristist stafna á milli. Gaus upp vatnssúla stjórnborðs- megin við svelg. Var aflið svo mikið að menn hentust til í kojum.“ Við nánari rannsókn kom í ljós, að sprengingin var ekki kröftugri en svo, að sumir skipverja, sem voru í kojum, rumskuðu ekki, aðrir heyrðu skruðning eða dynk, sem þeir ekki settu í samband við neina sprengingu. Reykur sá, sem myndaðirt i forlest skipsins, bendir eindregið til að spreng- ingin hafi átt sér stað í lestinni og að sprengjan hafi ekki verið stór, þar sem gatið, sm kom á skipið, var ekki stærra en svo, að það hélzt á floti nálega 5 klukkustundir, enda þótt dæling hæfist ekki fyrr en um þrem stundarfjórðung- um eftir sprenginguna. Að þessu athuguðu er vart hægt að hugsa sér annað en að sprengju hafi verið komið fyrir í iest skipsins. Varla gat sprengingin komið fyrir á hentugri stað eða tíma, miðað við það, að því hafi verið sökkt viljandi. Hamranesið var einskipa 50 sm frá landi, á miklu dýpi og aðeins einn maður á þilfari og enginn í lest og bezta veður. Hitt er svo annað mál, að ekki verður ráðið af rannsókninni með vissu, hver eða hverjir hafa komið fyrir sprengju í skipinu. Mögulegt er að þaó hafi skeð áður en veiðiferðin hófst og þannig að hún væri tilbúin til sprengingar, þegar hentugt tækifæri gæfist. Sé gengið út frá því að skipinu hafi verið sökkt er vart hægt að hugsa sér að það hafi verið gert i öðrum tilgangi en að hagnast á því. Nú skortir mig nauðsynlega þekkingu á bókhaldi að ég treysti mér til að fjalla um reksturs- og efnahagsreikninga þá, sem fram koma í málinu, en vera má að þeir geti gefið vísbendingu um það, hver eða hverjir mættu hagnast á tapi skips- ins og ef slikum aðilum væri til að dreifa, sýnist mér að tilefni væri til að rannsaka, hvort þeir gætu átt þátt í málinu. Viðbrögðbrögð skipstjóra vart skiljanleg Viðbrögð skipstjóra við atburðinn eru vart skiljanleg hafi hann haft hug á að skipinu yrði bjargað. Þrátt fyrir það, að hann sér 3—4 feta sjó í forlestinni, þeg- ar hann lítur ofan i hana rétt eftir sprenginguna, er það hans fyrsta verk að láta hífa inn trollið. Að þvi loknu, eða um þrem stundarfjórðungum síðar, dett- ur honum í hug að ræsa 1. vélstjóra og fara að lensa og siðan hafa samband við önnur skip. Alvarlegasta yfirsjón hans tel ég vera þá, að hann vanrækir að beiðast allrar tiltækrar aðstoðar strax og honum var ljóst hvilíkur leki var kominn að skip- inu. Eðlilegast hefði verið að slík hjálparbeiðni hefði verið send út á neyðarbylgju, þannig að hún hefði á svipstundu náð til flestra skipa inn- lendra sem útlendra i nágrenninu auk næstu strandstöðva. Hugsanlegt er að hann hafi gerst brot- legur við 42. gr. siglingalaganna með hegðan sinni, tel ég þvi rétt að mál hans verði látið ganga til dóms. Einnig virðist hann hafa vanrækt að láta skipshöfnina ganga i að bjarga per- sónulegum eignum sinum, þar sem tími virðist hafa verið nógur til þess og báta- kostur nógur. I. vélstjóri skýrir svo frá að honum hafi verið ljóst í mörg ár, að sjór gat runnið úr lestum í vélarúm. Nú á slikt ekki að geta átt sér stað, þar sem þil milli lestar og vélar á að vera vatnsþétt sam- kvæmt reglum. Ef vitað hefði verið um þennan óþéttleika, hefði skipið ekki fengið haffærisskírteini. Vélstjóri virðist hafa gerst brotlegur við 47. gr. sjómannalaganna með því að vanrækja að tilkynna skipstjóra um þennan galla á skipinu, sýnist mér því einnig að dómur ætti að fjalla um þetta atriði. Fylgisskjölin endursendast hér með og skal tekió fram að dskj. nr 14 barst okkur ekki, en það mun vera segulband. F.h.siglingamálast jóra Páll Ragnarsson (sign) Ekki höfðað opinbert refsimál Ennfremur ritaði saksOknaraembættið samgönguráðuneytinu bréf og óskaði álits ráðuneytisins á málinu. Svarbréf ráðuneytisins er dagsett 9. júli 1973 og segir þar: „Ráðuneytinu hefur borizt bréf yðar, herra saksóknari, dagsett 15. júni s.I„ þar sem óskað er umsagnar ráðuneytis- ins um dómsrannsókn á því, er bv. Hamranes sökk um 50 sjómílur suðvest- ur af Malarrifi, sunnudagskvöldið 18. júní 1972. Ráðuneytið telur ástæðu til, að mál þetta verði lagt til úrlausnar dómstóla. Fylgiskjölin endursendast. F.h.r. e.u. Kristinn Gunnarsson (sign). Þrátt fyrir þá skoðun þessara tveggja aðila, sem saksóknari leitar til, um að rétt sé að málið verði lagt í dóm, tók saksóknaraembættið þá ákvörðun að ekki væri af ákæruvaldsins hálfu krafizt frekari aðgerða, þ.e. ekki ætti að höfða opinbert refsimál á hendur eiganda skipsins. 1 bréfi til bæjarfógetaembætt- isins i Hafnarfirði 27. nóvember 1973 segir saksóknaraembættið: Eftir viðtöku bréfa yðar, herra bæjar- fógeti, dagsettra 29. nóvember og 19. desember s.l„ sem með fylgdi endurrit dómsrannsókna, ásamt fylgiskjölum, út af því er togarinn Hamranes RE 165 sökk um 50 sjómílur suðvestur af Hala- rifi sunnudagskvöldið 18. júni 1972, og að fengnum umsögnum siglingamála- stjóra og samgönguráðuneytisins, dag- settum 1. júni og 9. júli s.l., skal yður tjáð, að af ákæruvaldsins hálfu er eigi, að svo stöddu, krafist frekari aðgerða I máli þessu, en komi hins vegar eitthvað það fram, er teldist geta orðið til frekari upplýsinga um afdrif skipsins og önnur atvik i því sambandi er fyrir liggur nú í málinu, ber að halda rannsókninni áfram svo sem tilefni þætti þá gefast til. F.h.s. Bragi Steinarsson (sign). Grunsamleg samtöl Eins og áður hefur verið rakið, voru við réttarhöldin lagðar fram segulbands- spólur af fjarskiptum milli Hamraness og lands. Birtur hefur verið útdráttur úr samtölum milli loftskeytamanns Hamra- ness og loftskeytamanns i Gufunesi, eft- ir að sprengingin varð í skipinu. Hér á eftir verður birtur útdráttur ú samtölum skipstjóra Hamraness og aðila í landi, dagana fyrir atburðinn, en fram kemur í dómsskjölum, að samtölin þóttu æði grunsamleg. Fyrst birtist útdráttur úr samtali Bjarna skipstjóra við Harald Júliusson í landi: Þriðjudagur 13/6 1972 kl. 12.03. Skipstj. Hamraness við Harald í sima 92-6571. „... ef að þið kæmuð um borð... og afskrifa þetta drasl sko“ Haraldur: „Ha“. Skipstj.: „Afskrifa bara þetta.“ Skipstj.: „Ef að þetta (damprörið við spilið ) kemst ekki í lag i dag, þá held ég bara áfram." Haraldur: „Heyrðu, viltu þá nokkuð vera að spá í þetta meira Bjarni og bara drífa í þessu.“ Skipstj.: „Ha.“ Haraldur: „Viltu þá ekki bara drífa i þessu helvíti?" Skipstj.: „Ég sé til sko — ég er á leíðinni hérna f áttina. En þið verðið þá bara að ganga frá þessu i dag, þannig, að það sé hægt að ganga í þetta á morgun, ef að til kemur.“ Haraldur: „Það er nefnilegaþað." Skipstj.: „Þannig að ég fái oliuna og þið komið.“ Skipstj.: „Ef hann kemur ekki rörinu saman — þá held ég bara áfram." Haraldur: „Já, það er nefnilega það.“ Skipstj.: „Það gerir ekkert til þó að þið gangið frá þessu, þó að verði ekkert úr þvi — þú athugar það.“ Haraldur: „Nei, nei, þetta vantar hvort eð er, — ég bara næ í þetta.“ Skipstj.: „Þá getur þú, ef að til kemur komið með þetta vestur." Föstudagur 16. júni ki. 17.37. Skipstj. Hamranes reynir að ná til Haralds, fyrst í sima 92-6572, en siðan hjá H„ forráðamanni Vesturhúsa hf. Skipstj. telur að Haraldur komi i sim- ann, en það er H. Skipstj. byrjar samtalið: „Halló Haddi?“ „Er þetta ekki ákveðið?" H. „Þetta er H.“ Skipstj.: „Nú“ — (virðist koma á hann) „heyrðu sæll“. „Hefurðu nokkuð talað við hann Hadda?“ H.: „Nei, hann hefur ekki komið siðan í morgun. Hann var að búa sig vestur.“ Skipstj.: „Þetta er þá sem sagt ákveð- ið?“ H.: ,Já.“ Skipstj.: „Jæja.“... Skipstj.: „Hann kemur ekki um borð er það?“ H.: „Ja — hann var búinn að útvega — o ; ctí Of BOMMJS s iteatiL FSMROOM to X) 30 % 40 . 00 10 ao Þverskurður af Ilamranesinu. Stóri krossinn sýnir lestina, þar sem sprengingin varð. Mestur reykur gaus upp um miðlúguna, sem merkt er á teikningunni með litlum krossi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.