Morgunblaðið - 23.11.1976, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. NÖVEMBER 1976
33
Islenzkur lampi
á sýningu 1 Höfn
Handlampi Jóhannesar Páls-
sonar, sem að hluta til er fram-
leiddur hjá Bjallaplasti á Hvols-
velli og að hluta i Danmörku, var
nýlega sýndur á alþjóðlegri vöru-
sýningu i Bella Center i Kaup-
mannahöfn. Vakti lampinn, sem
er úr plasti mikla athygli á sýn-
ingunni og sýndu margir hugsan-
legir kaupendur honum áhuga.
Að sögn Jóhannesar hefur lamp-
inn hlotið viðurkenningu raf-
magnseftirlits i Danmörku og
Noregi, en unnið er að því að fá
viðurkenningu í öðrum löndum,
sem nauðsynlegar eru þó að al-
þjóðleg viðurkenning hafi þegar
fengist. Á næstu mánuðum verða
framleiddir um 10 þúsund lampar
á mánuði, sem aðallega verða
seldir i Danmörku og Noregi. En
séð er fram á mikla eftirspurnar-
aukningu. Kúpull lampans er
gerður hjá Bjallaplasti en aðrir
hlutar hjá Belysnings agenturet i
Kaupmannahöfn. Myndin er úr
sýningarbásnum i Bella Center,
en litla myndin sýnir auglýsingu,
sem gerð hefur verið um lamp-
ann.
Atvinnuleysi
og samdráttur
auka verdbólgu
I skýrslu, sem unnin var fyrir
efnahagsmálanefnd bandarisku
fulltrúadeildarinnar og birt var í
gær, er komist að þeirri niður-
stöðu að atvinnuleysi og sam-
dráttarstefna ali á verðbólgu i
stað þess að lækna hana. Það eru
prófessorarnir Howard Wachtel
og Peter D. Adelsheim við Ameri-
can University, sem komast að
þessari niðurstöðu eftir athuganir
sínar á verðhækkunum á fimm
samdráttartimabilum á árunum
1947 til 1970. Segja höfundarnir
að sér í lagi i iðngreinum, þar sem
eru fáir eða stórir framleiðendur
sé tilhneiging til að hækka verð
þegar dregur úr sölu til að við-
halda hagnaði. Þetta brýtur í
bága við þær hagfræðikenningar,
sem nú er mest flaggað, sem segja
að til að vinna bug á verðbólgu
verði að draga úr atvinnu til að
minnka eftirspurn. Mæla tvi-
menningarnir með eftirliti á verð-
lagningu atvinnugreina, sem hafa
mikil áhrif á almennt verðlag.
Góð nýting
á Concorde
GÓÐ sætanýting hefur verið i flugi
Air France og British Airways me8
hljóSfráu farþegaflugvélinni Con-
corde MeSalsætanýting i Concorde
vélum Air France hefur veriS 65,3%,
sem er heldur betra en I ö8rum
flugvélum félagsins. Gjófulust félag-
inu er leiSin Paris-Washington og
öfugt þar sem meSalsætanýting hef-
ur veri8 84% boriS saman vi8 90%
hjá Birtish Airways á milli London og
Washington. Sætanýting Frakkanna
á milli Parisar og Rio de Janeiro
hefur veriS 64,1% en 34,8% til
Caracas. British Airways hefur haft
45% sætanýtingu á milli London og
Bahrain.
Málningarverksmidja
Slippfélagsins 25 ára
UM þessar mundir eru 25 ár sfðan
Slippfélagið I Reykjavfk h.f. hðf
málningarframleiðslu. Á þessum
tíma hefur málningarverksmiðja
Slippfélagsins framleitt máln-
ingarvörur með einkaleyfi frá
dönsku HEMPELS-verksmiðj-
unum og síðar einnig ensku
VITRATEX-verksmiðjunum og
framleiðslan aukist jafnt og þétt
ár frá ári.
Slippfélagið hafði haft einka-
umboð fyrir HEMPELS-
málningavörur allt frá árinu
1932, en það var ekki fyrr en í
nóvembermánuði 1951 að fyrir-
tækið hóf sjálft framleiðslu og
var verksmiðjan upphaflega til
húsa f gamalli byggingu á at-
hafnasvæði Slippfélagsins við
Mýrargötu, þar sem eitt sinn var
SkipasmíðasttSð Magnúsar Guð-
mundssonar.
Eftir því sem framleiðslan hlóð
utan á sig og fjöldi og fjölbreytni
tegunda jókst, varð húsnæði verk-
smiðjunnar ófullnægjandi og árið
1970 flyzt starfssemin í nýja verk-
smiðjubyggingu við Dugguvog. Er
verksmiðjan 2000 fermetrar að
flatarmáli og 9100 rúmmetrar.
Nýjar vélar hafa verið keyptar og
aðstaðan öll hin bezta.
Fyrsta árið voru aðeins fram-
leiddar tvær tegundir af máln-
ingu, en nú eru framleiðsluteg-
undirnar orðnar um 50 talsins,
þar á meðal 7 tegundir af botn-
málningu og 7 tegundir, af ryð-
varnargrunnum, -klórkársjúk- og
epoxytegundir, alkyd- og olíu-
málning, skipaiökk og þakmáln-
ing, plastmálning utan húss og
innan o.fl. o.fl. Á siðastliðnu ári
hóf verksmiðjan framleiðslu á
CUPRINOL-fúavarnarefnum í
ýmsum litum. Velta verksmiðj-
unnar er 300. milljónir á ári. Yfir
sumarmánuðina starfa um 17
manns hjá verksmiðjunni en yfir
vetrarmánuðina 10 manns.
Hártoppar
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá fyrirtækinu Mandeville
of London:
Það olli furðu okkar að lesa í
Morgunblaðinu 18. september
1976 ásakanir Vilhelms Ingólfs-
sonar í garð þessa fyrirtækis. Við
förum því fram á að þér leiðréttið
okkar hlut, með þvi að birta svar
okkar við þessum óréttmætu
ásökunum.
Stefna okkar hefur ávallt verið
sú að selja góða vöru á góðu verði,
en umfram allt að veita góða þjón-
ustu.
Að selja hártoppa án slíkrar
þjónustu er eins og að selja bil án
viðgerðarþjónustu.
Þess vegna fara (sérfræðingar)
fulltrúar fyrirtækisins til Islands
fjórum sinnum á ári og leiðbeina
viðskiptavinum okkar. Þessir
menn eru sérfræðingar á sinu
sviði.
I laugardagsblaði Morgunblaðsins
20. þ.m. birtist ágæt grein
Braga Ásgeirssonar listmálara
um hina stóru sýningu Veturliða
Gunnarssonar að Kjarvalsstöðum,
þar sem listamaðurinn sýnir um
140 myndir.
Það er ánægjulegt að lesa slíka
jákvæða umsögn um myndlist.
Ég er sammála Braga þegar
hann fer hógværum ásökunarorð-
um um þá ákvörðun listráðs
Kjarvalsstaða að neita Veturliða
um báða sali Kjarvalsstaða vegna
yfirlitssýningar í tilefni af
fimmtugsafmæli listamannsins.
Þarna var bæði illa og heimsku-
lega að verki staðið. En við herju
má ekki búast af hinni furðulegu
nýskipan um stjón Kjarvalsstaða?
Veturliði er óumdeildur sem
einn allra athafnamesti mynd-
listarmaður landsins. Hann er sí-
vinnandi og sköpunargleði hans
er ótrúlega mikil og fádæma frjó.
Ásamt Jóhannesi Geir er Vetur-
liði tvimælalaust einn af okkar
allra beztu pastelmálurum. Ég
nefni sem dæmi hárfinar myndir
Þetta er eina fyrirtækið sem
veitir slíka þjónustu.
Vilhelm Ingólfsson segir að
þurft hafi að senda út til viðgerða
50% af Mandeville hártoppum
innan 6 mánaða og 90% innan
árs. Þetta er ósatt. Skrár okkar
sýna að aðeins 9% voru endur-
sendar innan 6 mánaða og 34%
innan árs. Þetta er þrátt fyrir það
að við mælum með að allir hár-
toppar séu sendir út til athugunar
og eftirlits fyrsta árið til að
tryggja að þeir séu I fullkomnu
lagi (árs ábyrgð er á þeim).
Um afgreiðslu hártoppanna til
Vilhelms Ingólfssonar er þetta að
segja. 94% þeirra voru afgreiddir
innan 3 mánaða og lengsti af-
greiðslufrestur var 3 mánuðir og
18 dagar.
Á þessum tima var afgreiðslu-
frestur fyrirtækisins í Bretlandi
10 — 14 vikur og íslenskir við-
af beituskúrunum undir bakkan-
um á Húsavík, nr. 5, 6, 7, 15 og 27,
Móskarðshnjúka nr. 13 auk fjöl-
margra stærri pastelmynda,
magnaðar i krafti og uppbygg-
ingu. Frábærar vatnslitamyndir
eru einnig á þessari miklu sýn-
ingu. Oliumálverkin eiga þó
stærsta hluta sýningarinnar, ým-
ist kyngimagnaðar, hyldjúpar og
þó oft mildar og nærgætnislegar.
Þannig lýsa þær fjölskrúðugri
skapgerð þessa þessa hrifnæma
listamanns.
Leitt er til þess að vita hvað hin
umhleypingasama veðrátta síð-
ustu viku mun hafa haft áhrif á
aðsóknina að sýningu Veturliða,
þó fjölmenni hafi oft verið á sýn-
ingunni.
Nú eru siðustu forvöð að skoða
þessa sérstæðu sýningu, og vil ég
hvetja alla til þess, sem enn hafa
ekki séð sýningu Veturliða, því að
varla er hægt að búast við því að
„einvaldarnir" að Kjarvalsstöðum
leyfi Veturliða að framlengja
sýningartimann, þótt slikt væri
bæði skynsamlegt og vel þegið.
J.V. Hafstein.
skiptavinir okkar nutu þvi oft
skjótari fyrirgreiðslu en breskir.
Þessi afgreiðslufrestur getur
ekki talist langur á algerlega
handunninni vöru eins og hár-
toppar okkar eru.
Okkur er þvi óskiljanlegt
hvernig Vilhelm Ingólfsson getur
haldið þvi fram að pöntun hafi
tekið 14 mánuði.
Við seljum margar gerðir hár-
toppa. Þær ódýrustu kosta svipað
og þær sem Vilhelm selur.
Við erum algerlega sammála
þvi sem fulltrúi okkar Ian Fyfe
sagði i grein i Morgunblaðinu 14.
september 1976. Við viljum samt
ítreka stuttlega tækniatriði sem
þar var rætt um.
I fyrsta lagi skal bent á það að
hártoppur endist aðeins jafnlengi
og botninn sem hann er gerður á.
Netbotnar þurfa ekki að hlaupa
né hárið að losna við þvott. Þetta
má fyrirbyggja með þvi að þvo úr
sérstökum efnum.
I öðru lagi upplitast allt hár i
sólskini. Þetta á einkum við um
skollitað hár, sér I lagi ljós skollit-
að og veldur þetta því sérstökum
erfiðleikum við hárlitun á
Norðurlöndum. Að sjálfsögðu er
þetta til lítilla vandræða i lifandi
hári þar sem upplitaða hárið er
jafnóðum klippt burt. Við stað-
hæfum að Mandeville hártoppar
haldi lit sinum jafnlengi og hverj-
ir aðrir hártoppar gerðir úr ekta
hári.
Toppar úr nælonhári halda ef
til vill lit sinum lengur en gallinn
á þeim er sá að þeir lita ekki
eðlilega út. Þurfi að lita hár hafa i
rannsóknarstofum okkar verið
prófaðar aðferðir sem gefa i engu
eftir því sem best gerist i heimin-
um.
Að siðustu, við erum algerlega
sammála Vilhelm Ingólfssyni um
að það sé áriðandi að leiða is-
lenska kaupendur i allan sann-
leikann. Við verðum samt að láta
lesendum yóar eftir að ákveða
hvaða ástæður hann hafi fyrir að
ráðast á okkur.
Við metum viðskipti okkar við
Islendinga mikils og höfum góð
samskipti við viðskiptavini okkar
og umboðsmenn þar. Við þökkum
því fyrir tækifærið sem þér hafið
gefið okkur til að svara fyrir okk-
ur.
Virðingarfyllst.
John D. Clifton
Alþjóðlegur sölustjóri.
Sýning Veturliða