Morgunblaðið - 04.12.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976
3
Takmarkið: Engin slysaalda i ár:
Á ferð með lögreglunni 1 Reykjavík:
Götur lokast
vegna bifreiða, sem
lagt er ólöglega
TVEIR lögreglumenn ( lög-
reglubifreið nr. 41 voru á ferð
um Reykjavfk f gær og litu
eftir hvernig ökumenn höfðu
lagt bifreiðum sínum. Þeir
höfðu verið f þessu verkefni frá
þvf um morguninn og þegar
Morgunblaðsmenn fengu að
fara með þeim f eftirmiðdaginn
höfðu þeir sektað yfir 30 bfla
sem hafði verið lagt ólöglega
víðs vegar um borgina. Það
voru sem sagt ekki færri en 30
ökumenn sem urðu minnst
3.000 krónum fátækari vegna
þess að þeir höfðu ekki hirt um
að leggja bifreiðum sfnum lög-
lega, hvort sem það var af
þeir'ri ástæðu, að „þeir voru að
flýta sér“, eða „voru bara hálfa
mfnútu inni f búð“ eins og lög-
reglumennirnir sögðu að menn
bæru við sem afsökun.
Eftir þessa stuttu ökuferð f
gær um nokkrar götur í Reykja-
vfk verðu ekki hægt að segja að
ökumenn séu mjög tillitssamir
við aðra vegfarendur þegar
þeir t.d. skilja bíla sína eftir
alveg uppi á gangstétt. Það
gerir það að verkum að flestir
gangandi vegfarendur verða að
skjótast út á götu til að komast
framhjá bilum sem lokaGANG-
STÉTTUM. Hvað mega þá þeir
segja sem eru á ferð með barna-
vagna eða kerrur? Gangandi
vegfarendur eru beinlfnis
hraktir út á götur.
Mjög vfða er bifreiðum þann-
ig lagt að þær tefja stórlega
fyrir allri umferð annarra bif-
reiða. Sú var t d. raunin á horni
Grundarstfgs og Hellusunds.
Þar var 8 bifreiðum ólöglega
lagt á örstuttum kafla við
hornið, sem gerði það að verk-
um að bifreiðar á leið um
Grundarstíg gátu ekki mætzt
þar og sífelldar tafir urðu. Lög-
reglumennirnir sögðu líka að
fyrr um daginn hefðu þeir sekt-
að á þessum sama stað nokkrar
bifreiðar. Nú voru bara aðrir
komnir í staðinn.
A Hellusundi hafði einhver
ökumaður yfirgefið sína bifreið
og var hvergi nálægur, en bif-
reiðin stóð nánast á miðri göt-
unni. Hún var ólæst en ekki var
unnt að færa hana frá því stýri
hennar var læst. Kallað var á
lögreglustöðina og hún beðin að
finna út hver eigandi væri og
hafa upp á honum. Það tókst
ekki og þvi lét lögreglan gera
ráðstafanir til þess að hún yrði
tekin með kranabil og flutt í
port lögreglunnar. Þangað
getur eigandinn vitjað hennar
og verður hann að greiða allan
kostnað við þessar aðgerðir.
Það skal tekið fram að ekki var
vitað hvort hún var biluð en
þessar ráðstafanir voru nauð-
synlegar þar sem hún lokaði
alveg öðrum helmingi göt-
unnar.
Lögreglumennirnir sögðu að
það væru nánast engin takmörk
fyrir því hvernig fólki dytti i
hug að skilja bifreiðar sínar
eftir, bæði gæti það oft valdið
stórkostlegri hættu og truflað
mjög alla umferð, bæði gang-
andi og akandi vegfarenda.
Þvf verður brýnt fyrir öku-
mönnum f Reykjavík að þeir
taki sig stórlega á f þessum
efnum, ekki sfzt þegar það er
haft í huga, að nú fer í hönd
einn mesti umferðarmánuður
ársins og þvf mjög nauðsynlegt
að umferð gangi vel og greið-
lega fyrir sig.
Skráð óhöpp
fleiri en í fyrra
SKRÁÐ óhöpp f umferðinna
f Reykjavfk voru 84 að tölu
frá föstudeginum f fyrri
viku til og með s.l. fimmtu-
degi. I þessum óhöppum
slösuðust 9 manns, þar af 3
mikið. Sömu daga f fyrra
voru skráð óhöpp 68. 1 þeim
slösuðust 7 manns þar af 5
mikið. Af þessu má sjá, að
ástandið er langt frá þvf að
vera gott og full ástæða er til
þess að brýna fyrir vegfar-
endum að taka sig á.
Það er með naumindum að gangandi vegfarendur geti komizt
framhjá þessum bfl. Þeir sem eru á ferð með barnavagna verða að
fara út á götu. Ljósm. Friðþjófur.
Það kostar minnst kr. 3.000 að leggja bfl ólöglega. Lögreglumenn-
irnir sögðu að ökumenn bæru við allskyns ástæðum, „þeir væru svo
stutt f burtu“. Hér er greiniiega truflun að þessari bifreið.
A horni Grundarstfgs og Hellusunds.
Nýtt gallerí í hjarta Reykjavíkur
HONUM Sölva Helgasyni myndi
Ifklega hlýna um hjartaræturnar
ef hann gengi Aðalstrætið f dag.
Þvf nú er nafnið, sem hann gaf
sér sjálfur, komið á flennistórt
skilti og umvafið blómunum, sem
hann málaði og teiknaði svo
gjarnan. GALLERf SOLON
ISLANDUS. Nafni hans er haldið
á loft — f orðanna fyllstu merk-
ingu — af 11 listamönnum og
listaáhugamönnum, sem hafa
unnið baki brotnu við að gera við
og smfða, mála og leggja hita og
rafmagn f tæpt ár. I dag opna þau
dyr sfnar fyrir bæjarbúum.
1 fyrstu sýningarskrá segir m.a.
að tilgangurinn sé að „gefa þvf
listafólki, sem vinnur við
smágerva eða seinunna list, tæki-
færi til að koma verkum sínum á
framfæri með reglulegu millibili,
í stað þess að þurfa að bíða i mörg
ár eftir að geta fyllt stærri
sýningarsali borgarinnar. Á þetta
við m.a. um grafíklistamenn, leir-
kerasmiði, gullsmiði, glersmiði,
vefara, textílhönnuði og fleiri.“
„En aðstandendur þessa
gallerís hyggjast einnig efna til
yfirlitssýniga á litt þekktum lista-
mönnum, lífs eða liðnum, svo og
sýninga, sem grundvallast á
ákveðnu viðfangsefni eða afstöðu.
Einnig er fyrirhugað að halda
tónleika og fyrirlestra og standa
Þau voru að leggja sfðustu hönd á skiltið
fyrir öðrum listviðburðum, sem
stuðla myndu að lífi i gamla mið-
bænum."
Gallerí Solon Islandus er ekki
gróðafyrirtæki og verður reynt að
reka það með þeim ágóða, sem
fæst af hverri sýningu. Þau 11,
sem standa að baki Solon
Islandus, eru Aðalsteinn Ingólfs-
son, Gunnar örn Gunnarsson,
Kolbrún Björgúlfsdóttir, Kristján
Kristjánsson, Leifur Breiðfjörð,
Magnús Kjartansson, Sigurður
örlygsson, Steinunn Bergsteins-
dóttir, Steingrimur Kristmunds-
son, Þorbjörg Þórðardóttir og örn
Þorsteinsson. Galleriið opnar með
sýningu á verkum eftir þau öll í
dag kl. 3. Fyrirhugað er að hafa
opið til kl. 10 annað kvöld, annars
er ætlunin að hafa opið frá 2 til 10
um helgar og frá 2 til sex virka
daga nema mánudaga, þá verður
lokað.
Að sögn nokkurra aðstandenda
gallerisins hefur það verið basl að
koma þessum gömlu húsakynnum
í gott lag, enda tóku þau við þeim
sem brunarústum í upphafi árs-
ins. Þau hafa notið stuðnings
bæði frá Menntamálaráði og
menntamálaráðuneytinu og
einnig Valdimars Þórðarsonar
(Valda) en Silli og Valdi leigjá
þeim húsnæðið á vægu verði.
Fleiri hafa lagt peningalega hönd
á plóginn, t.d. verður málning
greidd með listaverkum og lýsing-
in er fengin að láni enn sem
komið er. „En vonandi eiga
Reykvikingar eftir að vera okkur
mestur styrkur, með því að koma i
heimsókn og sýna starfseminni
áhuga.“