Morgunblaðið - 04.12.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976
39
BARIST Á BOTNINUM OG TOPPNUM
NtJ UM helgina verða leiknir þrír
leikir ( fyrstu deild karla i körfu-
knattleik, á laugardag leika IS og
lR og hefst leikurinn klukkan
15.00 og verður hann ((þróttahúsi
kennaraskólans, strax að þeim
leik loknum hefst leikur Vals og
KR og verður hann á sama stað. Á
sunnudag leika svo botnlið fyrstu
deildar, UBK og Fram og verður
sá leikur ( Garabæ, heimavelli
UBK og hefst klukkan 17.30.
Um úrslit þessara leikja er
fremur erfitt að spá, og þó að
líklegt megi teljast að IR, KR og
Fram vinni leiki sína verður að
taka allt með i reikninginn og
eins og allir vita geta bæði IS og
Valur verið erfiðir andstæðingar.
Þó að Framarar séu taldir sig-
urstranglegri er aldrei að vita
nema Breiðabliki takist vel upp
og veiti Fram harða keppni þvi að
ef þeir vinna ekki nú verður það
Kklega aldrei, svo að UBK hefur
allt að vinna, en litlu að tapa.
En vonandi verður um
spennandi og skemmtilega leiki
að ræða og gaman gæti verið að fá
óvænt úrslit til að auka spennuna
og gera mótið tvlsýnna og
skemmtilegra.
Um þessa helgi verða einnig
leiknir fjölmargir leikir i yngri
flokkunum og annarri og þriðju
deild karla, en kvenfólkið hvílir
um þessa helgi. HG
Staðan í fyrstu deildinni I
körfuknattleik er nú þessi:
Armann 4 4 0 335—302 8
UMFN 3 2 1 233—164 4
IS 3 2 1 273—243 4
tR 3 2 1 231—212 4
KR 3 2 1 236—232 4
Valur 4 1 3 299—309 2
Fram 3 0 2 215—256 0
UBK 3 0 3 164—268 0
Framhald á bls. 22
Danir í erfiðleikum
erfiður leikur fyrir Fram, þar
sem Randnici hefur á að skipa
frábæru liði og munu t.d. sjö af
leikmönnum liðsins hafa verið í
landsliði Júgóslavíu sem vann
heimsmeistaratitil kvenna síðast
er sú keppni fór fram. En
Framstúlkurnar láta örugglega
ekki hlut sinn baráttulaust, og ef
liðið nær jafngóðum leik og það
náði alloft í fyrra má ætla að það
geti forðazt stórtap i leiknum.
Dómarar í Evrópuleiknum
verða sænskir.
3 leikir í 1.
deild í blaki
UM helgina verða leiknir þrír
leikir ( fyrstu deild karla í blaki,
aðalleikurinn verður á milli
Þróttar og UMFL og verður hann
í Vogaskóla og hefst klukkan
13.30 á laugardag. Þetta ætti að
geta orðið talsvert skemmtilegur
og spennandi leikur, en þó verður
að telja Þróttara heldur sigur-
stranglegri þar sem þeir munu
væntanlega hafa bæði Guðmund
Böðvarsson og Anton Bjarnason
með ( þessum leik og munar vissu-
lega um minna, en ef
Laugvetningum tekst vel upp og
þeir Tómas Jónsson og Haraldur
Geir Hlöðversson verða I ham
verður róðurinn ábyggilega
þungur fyrir Þróttara. Hinir
leikirnir verða á milli UMSE og
Víkings, og fer sá leikur fram I
íþróttaskemmunni á Akureyri og
hefst hann klukkan 15.30 á
laugardag. Víkingar verða að
teljast sigurstranglegri í þeim
leik þó að UMSE geti verið hvaða
liði sem er nokkuð skeinuhætt, og
á milli Stiganda og IS. Er ólíklegt
að Stígandamenn vinni þar eina
einustu hrinu, en leikurinn
verður á Laugarvatni og hefst kl.
14.00 á sunnudag. Enginn leikur
verður ( kvenna flokknum, en í
annari deild leika b-lið Þróttar og
Vlkings og verður hann leikinn I
Vogaskólanum og hefst hann
klukkan 15.00 á laugardag.
HG
nú að mestu verið valið. Tók
landsliðseinvaldurinn Leif
Mikkelsen þann kostinn að velja
kjarna liðsins frá einu og sama
félaginu, Fredericia KFUM, og
hefur verið gagnrýndur fyrir það
af dönsku blöðunum, sem segja að
leikmenn Frederica séu ekki það
góðir um þessar mundir að rétt sé
að stilla svo mörgum upp I lands-
liðið. Segja blöðin að Frederica-
liðið hafi mjög skemmtilegu sókn-
arliði á að skipa, sem skori mörg
mörk, en hins vegar sé vörn liðs-
ins slök, og þurfi þar umbætur.
Danski landsliðsþjálfarinn er
nú að þreyfa sig áfram, áður en
hann velur endanlega hóp til æf-
inga fyrir A-
heimsmeistarakeppnina sem
fram mun fara í Danmörku 1978.
Hefur hann látið hafa það eftir
sér, að hann ætli að nota lands-
leikina við Island til þess að prófa
sig áfram. Vitað er að þrlr fasta-
menn ( danska landsliðinu geta
ekki komið með því hingað, þeir
Thor Munkager sem ekki fær
leyfi úr vinnu sinni og Thomas
Patzy og Lars Bock sem leika með
sænska liðinu Olympfa og fá ekki
leyfi þess til Islandsferðarinnar.
FYLKIR
AÐEINS einn leikur fer fram í 2.
deildar keppni íslandsmótsins í
handknattleik nú um helgina.
Fylkir fer í heimsókn til Akureyr-
ar og leikur við Þór kl. 15.30 i dag.
Hins vegar verða allmargir leikir
I 3. deild, bæði fyrir norðan og
eins syðra.
Samkvæmt leikjabók HSI áttu
að fara fram þrír leikir í 1. deild
kvenna um helgina, en þeim hef-
ur öllum verið frestað vegna leiks
Fram I Evrópubikarkeppni
kvenna. Er enn ekki ákveðið
hvenær leikir þessir fara fram.
Sigurbergur Sigsteinsson — leikur nú me8 pressuliSinu
LOKAVERKEFNI (slenzka hand-
knattleikslandsliðsins fyrir
keppnisferð sfna til Austur-
Þýzkalands og Danmerkur verður
pressuleikur sem fram fer f
Laugardalshöllinni annað kvöld.
Hefst leikurinn kl. 20.00 og
verður þvf forleikur að viðureign
Fram og Randnici ( Evrópubikar-
keppni kvenna (handknattleik.
Landsliðsnefnd og landsliðs-
þjálfari völdu lið sitt eftir æfingu
hjá landsliðshópnum í fyrrakvöld,
og er liðið nær óbreytt frá því sem
það var i síðasta pressuleik, en þá
sigraði landsliðið með sex marka
mun í allfjörugum leik, 24—18.
Blaðamenn völdu svo lið sitt i
gær og gerðu þeir allmiklar
breytingar frá fyrri leiknum.
Verður pressuliðið, sem leikur
annað kvöld, þannig skipað:
Markverðir:
örn Guðmundsson, IR
Kristján Sigmundsson, Þrótti
Aðrir leikmenn:
Hörður Sigmarsson, Haukum
Árni Indriðason, Gróttu
Bjarni Jónsson, Þrótti
Jón Pétur Jónsson, Val
Steindór Gunnarsson, Val
Þorgeir Haraldsson, Haukum
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Trausti Þorgrimsson, Þrótti
Hilmar Björnsson, KR
Guðmundur Sveinsson, Fram
Stjórnandi liðsins verður
Ingólfur Oskarsson, hinn kunni
þjálfari Framliðsins.
Þeir Bjarni, Þorgeir, Sigurberg-
ur, Trausti, Hilmar og Guðmund-
ur léku ekki með pressuliðinu síð-
ast, og mun þetta vera i fyrsta
sinn sem Þorgeir og Guðmundur
morgun
Meðfylgjandi mynd er af ung-
um fimleikamönnum frá Isafirði,
sem munu taka þátt I sýningunni
i Laugardalshöllinni á morgun,
undir stjórn Guðmundur Ólafs-
sonar.
DANSKA landsliðið í handknatt-
leik sem leikur fjóra leiki við
Islendinga nú i desember hefur
Badmintonþing
ÁRSÞING Badmintonsambands
Islands verður haldið sunnudag-
inn 5. desember n.k. Þingið verð-
ur haldið að Hótel Loftleiðum og
hefst kl. 10.00 f.h. Á þinginu fer
fram kjör stjórnar sambandsins
fyrir næsta ár, auk annarra aðal-
fundarstarfa.
eru valdir i úrvalslið. Trausti hef-
ur hins vegar leikið áður með
pressuliði, og þeir Bjarni, Sigur-
bergur og Hilmar eru allir gamal-
reyndir. Verður fróðlegt að sjá
hvort liði þessu tekst að standast
landsliðinu snúning, en eftir
öllum sólarmerkjum að dæma
ætti pressuliðið nú að vera harð-
snúið I vörn, og þvi líklegt að það
geri stórskyttum landsliðsins llfið
erfitt.
Islenzka landsliðið heldur utan
í næstu viku, og mun endanlega
verða gengið frá vali þess eftir
pressuleikinn á sunnudaginn.
Hvað gera Framstúlkurnar
Strax að pressuleiknum loknum
hefst svo leikur Fram og Randnici
I Evrópubikarkeppni kvenna. Er
þetta leikur í 2. umferð keppn-
innar, en sem kunnugt er sátu
Framstúlkurnar yfir I fyrstu um-
ferð. Sennilega verður þetta
^g|jM
Jóhanna Halldórsdóttir — vonandi
takat henni og stöllum hannar I Fram
a8 veita júgóslavnasku meisturunum
srlegt viSnám.
STJARNAN
EINN leikur fer fram I bikarkeppni
Handknattleikssambands íslands !
dag. Leika þá Stjarnan og KA !
iþróttahúsinu Ásgarði ! GarSabaa og
hefst leikurinn kl. 15.00. B«a8i þessi
Ii8 eru ! 2. deild og astti að geta or8i8
um skemmtilegan leik a8 r«8a.
Harðsnúnir varnarleik-
menn í pressuliðinu
Fimleikasýning á
HIN árlega fimleikasýning sem
Iþróttakennarafélag Islands og
Fimleikasamband Islands gang-
ast fyrir verður i Laugardalshöll-
inni á morgun og hefst kl. 15.00.
Fimleikasýning þessi hefur jafn-
an verið mjög fjölbreytt og fjöl-
sótt og má ætla að svo verði
einnig nú. Munu margir flokkar
fimleikafólks bæði af
Reykjavikursvæðinu og utan af
Iandi sýna i Laugardalshöllinni,
og verða atriði sýningarinnar alls
um tuttugu.