Morgunblaðið - 04.12.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976
19
ERLENT
Kosningarnar í Japan:
London 3. desember — AP
BREZKA blaðið The Guardian
birti í dag leiðara um fiskveiði-
lögsöguna við tsland og samskipti
Breta og tslendinga vegna henn-
ar. Segir blaðið meðal annars, að I
engri baráttu um verðmæti og I
engum deilum við erlendar rfkis-
stjórnir gangi Bretum jafn illa og
þegar um fisk er að ræða.
„Tvisvar með stuttu millibili
Sjónvarpsmadur
flýr Rúmeníu
Los Angeles 3. desember — Reuter.
HÁTTSKRIFAÐUR rúmenskur
sjónvarpsmyndagerðarmaður og
handritahöfundur, Dumitru
Undrescu, hefur ákveðið að leita
pólitisks hælis í Bandarfkjunum
og segir hann vilja „sópa götur
fyrir frelsið“.
Undrescu, sem er 47 ára, er
yfirmaður kvikmynda- og heim-
ildamyndadeildar rúmenska sjón-
varpsins. Hann lauk nýlega við
verkefni i Bandaríkjunum, sem
unnið var I samvinnu rúmenska
og bandarísks sjónvarps um
olympiumeistarann Nadiu
Comaneci.
Los Angeles Times hafði það
eftir honum að hann færi ekki
aftur heim þvi hann væri orðinn
þreyttur á þvi að þurfa alltaf að
láta verk sín samræmast hug-
myndafræði rúmensku stjórnar-
innar.
Hann sagði, að hann hefði lent í
deilum við stjórnvöld 1958 og var
honum þá sagt upp sem frétta-
manni við útvarpið. Kvaðst hann
hafa unnið sem götusópari og dag-
launamaður þar til hann var tek-
inn I sátt 1963.
Undrescu er fráskilinn. For-
eldrar hans, 18 ára gömul dóttir
og bróðir búa i Rúmeniu.
Hinn íhaldssami Frjálslyndi
flokkur hefur nú 265 sæti í neðri
deild, af 491 sæti, sem þar er nú.
Sósíalistar hafa 112 sæti,
kommúnistar 39, Komeito, sem er
búddistaflokkur, 29, og lýðræðis-
legir sósialistar 19 sæti.
Samkvæmt nýlegum skoðana-
könnunum mun Frjálslyndi
flokkurinn ekki fá hreinan meiri-
hluta í þingdeildinni, en miklir
erfiðleikar hafa steðjað að flokkn-
um. Hörð valdabarátta fer fram
innan hans og fyrrverandi for-
sætisráðherra flokksins, Kakuei
Tanaka, er viðriðinn í Lockheed-
hneykslið og hefur verið kærður
fyrir að hafa þegið mútur.
Japanski forsætisráðherr-
ann, Takeo Miki, og erki-
keppinautur hans um for-
mannsembættið í Frjáls-
lyndaflokknum, Takeo
Fukuda, tóku höndum
saman á óvenjulegum
kosningafundi og hvöttu
menn til að flykkja sér um
flokk þeirra í kosning-
unum á sunnudag.
Geysimikill mannfjöldi fylgdist
með þeim á Shinjuku- járn-
brautarstöðinni í Tokyo, þegar
þeir tókust í hendur og brostu.
Báðir vísuðu þeir þvi á bug sem
hreinni firru að flokkur þeirra
væri klofinn.
Þetta er I fyrsta og siðasta
skipti, sem þeir halda sameigin-
legan kosningafund fyrir kosn-
ingarnar á sunnudag. Kosið
verður um 511 sæti I neðri deild
þingsins. Háttsettur maður innan
Frjálslyndaflokksins, Kenzo
Kono, spáði því I gær, að ef kjör-
sókn yrði dræm mundi flokkur-
inn klofna í tvennt.
Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, með franska utanríkisráðherranum Louis de
Guiringaud eftir fund í Quai d’Orsay í gær. - simamynd ap.
Guardian:
Gengur illa þegar
fiskur er annars vegar
höfum við beðið ósigur með þeim
árangri, að ein af meginuppistöð-
um mataræðis okkar verður
dýrari. Vera má að spurningin sé
landfræðilegt réttlætismál. Bret-
ar fengu aðeins fyrir landfræði-
lega tilviljun og án þess að að-
hafast nokkuð geysimikið af oliu
og jarðgasi upp í hendurnar og
öðrum löndum, sem ekki þurfa
þess minna við, er meinaður hlut-
ur í þvi. Hitt stendur þó eftir að
fiskiðnaðurinn átti og á enn skilið
betri frammistöðu frá samninga-
mönnum landsins. Sama dag og
síðustu brezku togararnir fóru af
Islandsmiðum þar sem ekkert
langtímasamkomulag hafði náðst,
þá felldi framkvæmdanefnd
Efnahagsbandalagsins kröfur
Breta og íra um stærri hlut i
fiskveiðilögsögunni með strönd-
um sínum en gert var ráð fyrir í
bókuninni, sem gerð var áður en
þeir gerðust aðilar. Bæði atriðin
er skyld, vegna almennrar út-
færslu í 200 mílur, en það hefði
komið Bretum til góða að halda
þeim aðskildum.
Staða Bretlands í Briissel hefur
alltaf verið veik. I fyrsta lagi var
fiskveiðilögsaga ekki eitt þeirra
atriða, sem tekið var til endur-
skoðunar þegar stjórn Harolds
Wilson samdi upp á nýtt um sum
inngönguskilyrði. Burtséð frá öll-
um deilum, sem urðu þá og siðan,
þá féllust Bretar á að landhelgi
þeirra yrði landhelgi bandalags-
ins. Um tima leit út fyrir að Roy
Hattersley, þegar hann stóð I
stappinu, hefði fengið framgengt
breytilegri einkalögsögu á milli
12 og 50 mílna. En Belgar og
Frakkar stunda ekki fiskveiðar til
að gefa eftir mið, sem þeir álíta að
tilheyri þeim.
Bretar urðu því að berjast til að
fá einkalögsögu utan við 12 mil-
urnar og til þess voru þeir í
erfiðri aðstöðu og stóðu einir.
Þeir höfðu helgað sér alla oliuna,
en sóttu samt um fátækrastyrk til
hinna höfuðborganna. Þannig er
komið að fjöldi manna i Húll,
Grimsby og Fleetwood er að missa
atvinnuna. Þrir fjórðu hlutar
„mare nostrum" Efnahagsbanda-
lagsins eru mið Bretlands og Ir-
lands. Auk þess eru til fleiri mið
að fiska á en þau eru langt út af
Falklandseyjum. Þegar Bretar
komast þangað verða Rússar og
Pólverjar einnig mættir. Það eru
líka til aðrir fiskar en ýsa og
þorskur. Og það eru enn vonir um
að Islendingar og Efnahagsbanda-
lagið muni semja. En falleg orð
græða ekki sárin þannig að næst
þegar ágreiningsmál koma upp,
sem varða Breta og íra, ættu þeir
að vera eins ákveðnir og Belgar
og Frakkar að verja þjóðhags-
muni sina.“
Bandaríska vidskiptaráduneytid:
Hagvöxtur minnk-
ar á íslandi
EINS og fram kom I Morgun-
blaðinu f gær hefur bandariska
viðskiplaráðuneytið birt skýrslu
um fslenzk efnahagsmál f
„Commerce America" og segir
meðal annars í henni að verð á
fiski muni verða hátt á næsta ári
og að dregið hafi úr innflutningi
tsiendinga.
Fr jálslyndir setja
upp einingarsvip
Cyrus V ance—fyrsta
flokks samningamaður
Washington 3. desember —
Reuter
CYRUS Vance 59 ára
gamall lögfræðingur,
sem Jimmy Carter
hefur skipað utanrfkis-
ráðherra sinn, hefur
sýnt góða hæfileika sem
samningamaður á
löngum ferli sfnum f
þjónustu rfkisins.
Cyrus hefur einnig sýnt
að hann kann bezt við
sig f skugga yfirmanns
sfns, og að beita áhrif-
um sfnum án þess að
mikið beri á og sumir
segja að hann fram-
kvæmi frekar skipanir
annarra en að móta
sjálfur stefnuna.
Þessir eiginleikar
njóta sfn vel við hlið
sterks forseta, sem
Carter segist ætla að
verða, sérstaklega
varðandi utanrfkismál.
Cyrus mun vart verða
jafn aðsópsmikill og
Henry Kissinger, sem
hann verður óhjá-
kvæmilega borinn
saman við.
Vance nam lög við
Yaleháskóla og starfaði
fyrir rfkisstjórn Johns
F. Kennedy sem
almennur ráðgjafi
hermálaráðuneytisins.
Hann hækkaði fljótlega
f tign og varð aðstoðar-
varnarmálaráðherra.
Johnson notaði hann f
erfið utanrfkismál.
Sendi hann til Panama
1964, eftir óeirðirnar
við skurðinn, til
Dóminikanska lýð-
veldisins þegar borgara-
stríðið geisaði þar 1965
og til Miðjarðarhafs
þegar Tyrkir og Grikkir
deildu um Kýpur 1967.
Hann er þó þekktastur f
Bandarfkjunum fyrir
Vietnam.
Hann var gagnrýninn
á afskipti Bandarfkja-
manna f Suðaustur-
Asíu, en var sendur til
Suður-Vietnams 1967.
Hann sagði af sér opin-
berum störfum 30. júnf
1967 vegna ofþreytu, en
var sendur til Parísar
1968 til að koma
Parlsarviðræðunum af
stað.
1968 var hann sendur
til Suður-Kóreu til að
kanna hvaða ógn stæði
af Norður-
Kóreumönnum. Mestan
hluta ársins var hann
þó ásamt Averell
Harriman aðal-
samningamaður Banda-
rfkjanna i hinum löngu
og erfiðu friðar-
viðræðum f Parfs.
Hann fór frá Parfs
1969 eftir að Nixon tók
við af Johnson. Þá hafði
loftárásunum á Norður-
Vietnam verið hætt og
strfðsaðilar setztir að
samningaborðinu. Á
milli þess sem Vance
var f Parfs vann hann að
innanlandsmálum og
var hann meðal annars
sendur til Detroit til að
kanna ástæðurnar fyrir
óeirðunum 1967.
Þegar hann var f opin-
berri þjónustu gat hann
þann orðstfr sem fram-
úrskarandi samninga-
maður og álitið er að
reynsla hans úr varnar-
málaráðuneytinu muni
verða honum mikill
styrkur i samningum
við Rússa um afvopnun.
Vance var ákafur
stuðningsmaður
Carters f baráttu hans
við að ná útnefningu
sem forsetaframbjóð-
andi demókrata eftir að
Sargent Shriver, sem
hann hafði hvatt til að
fara f framboð hætti
við.
Fólk, sem starfað
hefur með Vance, segir
að hann sé maður, sem
geti ekki gert vitleysur.
Ritari hans, Elsa
Morgan, sem var ráðin
til að aðstoða hann f
Parfsarviðræðunum og
hefur unnið fyrir hann
sfðan, segir: ,Jfann er
mjög ákafur, en getur
þó slappað af. Hann er
mjög yfirvegaður og
gengur hreint til verks.
Hann er ekki ör — það
er stórkostlegt að vinna
með honum.“
Vance er giftur Grace
Sloane og þau eiga 5
börn.
Þá segir, að dregið hafi úr verð-
bólgunni og sú þróun geti haldið
áfram, sérstaklega ef ríki og
sveitarfélög draga út útgjöldum
sínum. Skýrslan segir markmið
stjórnvalda vera að auka hagvöxt,
koma stöóugleika á Verðlag og
halda fullri atvinnu hvað sem það
kostar.
Ríkisstjórnin hafi siðan hún tók
við völdum staðið frammi fyrir
erfiðum efnahagsvandamálum.
Brúttóþjóðarframleiðslan hafi
minnkað verulega í stjórnartíð
hennar ásamt rauntekjum og
verðbólgan hefur haldið áfram.
Þrátt fyrir það hafi stjórnin getað
haldið atvinnuleysi innan við
hálft prósent.
Sú stefna að halda fullri at-
vinnu, þrátt fyrir minnkandi
framleiðslu og hækkandi kostnað,
hefur leitt til meiri lántöku er-
lendis og hafa erlendar skuldir
Islendinga vaxið verulega á
undanförnum tveim árum.
Þá segir að í ár sé þriðja árið í
röð búizt við minnkuðum hag-
vexti, og að hann minnki um 1,7%
miðað við 3,4% í fyrra. Brjóti
þetta í bága við vonir manna, sem
höfðu álitið að efnahagsbatinn er-
lendis myndi auka þjóðarfram-
leiðslu íslendinga lítillega.