Morgunblaðið - 04.12.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 04.12.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1976 17 Hilmar Karlsson unglinga- meistari íslands í skák 1976 í síðustu viku lauk í Reykjavík unglinga- meistaramóti íslands í skák. Þátttakendur voru 20 talsins, viðs vegar að af landinu. Meðal þeirra voru margir af efnileg- ustu skákmönnum lands- ins, en þátttökurétt höfðu allir sem ekki verða orðnir 21 árs 1. jan. 1977. Hilmar Karlsson varð sigurvegari eftir harða keppni við Jónas P. Erlingsson. Reyndar hefði ekki getað verið mjórra á mununum milli þeirra, því að þeir urðu jafnir að vinningum, en Hilmar var hálfu Monrad stigi ofar samkvæmt út- reikningum skákstjóra. Hilmar er þvi unglinga- meistari tslands 1976 og á kost á að taka þátt i alþjóðlegu ung- lingaskákmóti sem fram fer í Hallsberg í Sviþjóð um næstu áramót. Röð efstu manna varð annars þessi: 1. Hilmar Karlsson, T.R, 5i4 vinningur 2. Jónas P. Erlingsson, T.R., 5W v. 3 — 5. Einar Valdimarsson, T.R., Magnús Magnússon, Akra- nesi, og Benedikt Jónasson, T.R. 6—9. Frank Jezorski, Hafnarfirði, Heimir Guðmundsson Neskaupstað, Jóhann Hjartarson, T.R. og Guðni Sigurbjarnason, T.R. allir með 4 v. Talsverða athygli vakti ágæt frammistaða utan- bæjarmannanna, t.d. var Heimir Guðmundsson sá eini sem tókst að leggja Hilmar Karlsson að velli. Við skulum nú líta á eina dæmigerða vinningsskák frá hendi sigurvegarans. Hvttt: Hilmar Karlsson Svart: Aðalsteinn Steinþórsson 1. d4 — Rf6 2. Rf3 — d5 3. c4 — e6 4. Rc3 — a6 5. cxd5 — exd5 6. Bg5 — Be7 7. e3 — h6 8. Bh4 — Bf5? (Betra var 8 .... 0 — 0) 9. Bxf6! — Bxf6 10. Db3 — b5 11. Dxd5 — Dxd5 12. Rxd5 — Bd8 13. a3 — 0 — 0 14. Be2 — c6?! (Betri tilraun var 14 ... .Rd7 15. Hcl — Be6 16. Rxc7? — Hc8! Eftir 15. 0 — 0 hefur svartur þó lítið mótspil fyrir peðið.) 15. Rf4 — Rd7 16. Hcl — Hc8 17. Bd3 — Bxd3 18. eftir MARGEIR PÉTURSSON Rxd3 — Be7 19. b4! (Bindur enda á allt mótspil svarts á drottningarvæng) f6 20. — 0 — 0 Rb6 21. Rd2 — Hfd8 22. Hc2 — Hd7 23. Hfcl — Hdc7 24. e4 (Ekkert getur nú stöðvað fram- rás hvítu miðborðspeðanna.) Rd7 25. Rb3 — Bd6 26. f4 — Kf7 27. e5 — Be7 28. d5! Svartur gafst upp, því hann tapar a.m.k. manni. Ilandbragð nýrrar stjörnu I Minsk f Hvíta-Rússlandi er nú lokið 2. deildar keppni Skák- þings Sovétrfkjanna, en mótið var einnig undankeppni fyrir 1. deildar mótið. í mótinu tóku þátt margir þekktir stórmeist- arar og alþjóðlegir meistarar, en það lá ekki fyrir neinum þeirra að verða hlutskarpastur, heldur ungum lítt þekktum meistara I. Dorfman að nafni. Hann tefldi af miklu öryggi, tapaði engri skák. Hann gerði jafntefli við alla sterkustu keppinauta sína, en vann svo þá veikari. Röð efstu manna varð annars þessi: 1. Dorfman ll'A v. af 17 mögulegum. 2 —4. Tseshkovsky, Sveschnikov og Rashkovsky 10 v. 5 — 6. Kupreitschik og K. Grigorjan 9Ví v. 7 — 8. Dvorecki og Taimanov 9 v. 9 — 10. A. Petrosjan og Kochiev 8H v. Loks hér i 11 — 13 . sæti koma þeir Beljavsky og Kuzmin ásamt Peresipkin með 8 v., en þeir tveir fyrrnefndu þóttu efnilegustu skákmenn þar eystra að Karpov undanskild- um fyrir aðeins tveimur árum eða svo. Beljavsky varð t.d. skákmeistari Sovétríkjanna 1974, en nú temst hann ekki einu sinni í úrslit. Heims- meistari unglinga, Cehov, olli einnig talsverðum vonbrigðum, en hann lenti í 14. sæti með 7!4 vinning. Þátttakendur voru alls 18. Við skulum nú líta á hand- bragð hinnar nýju stjörnu, I. Dorfmans. Hvftt: Dorfman Svart: A. Petrosjan Reti byrjun 1. g3 — d5 2. Bg2 — Rf6 3. Rf3 — Bf5 4. c4 — e6 5. 0 — 0 — c6 6. cxd5 — exd5 7. d3 — Be7 8. RC3 — 0 — 0 (Eftir 8. .. ,d4 9. Rbl kemur hvftur riddara á c4.) 9. Rd4 — Bc8 10. e4 — Ra6 11. h3 — Rc5 12. Hel (Hvftur hefur nú fengið öllu þægilegri stöðu) Re6 13. Rf5 — Bb4 14. exd5 — cxd5 15. a3 — Ba5 16. b4 — Bb6 17. Bb2! (Þessi biskupsskálina gerði sfðar út um skákina. 17. Rxd5 — Rxd5 18. Bxd5 gekk ekki vegna 18 .... Df6! en auð- vitað ekki 18 ... .Dxd5 19. Re7+) Kh8 (17 ... Rd4 væri slæmt vegna 18. Re7 + ) 18. Ra4 — Bc7 19. Hcl — Rf4 (Svartur sér að hann er orðinn undir og reynir því að flækja taflið.) 20. Rxg7! Kxg7 (Eftir 20 ... . Rxg2 21. Re8! — d4 22. Rxc7 — Rxel 23. Dxel eru hótanir hvíts of margar.) 21. gxf4 — Bxf4 (21 ... .d4 22. Hc4 hefði ekki breytt neinu fyrir svartan.) A. Petrosjan Dorfman 22. Bd4! (Stórsnjall leikur. Svartur á nu enga viðunandi vörn) Bf5 (Eftir 22 ... .Bxcl 23. Dxcl — Bf5 24. Rc3 á svartur enga vörn við 25. Rxd5) 23. Rc3 — Bxcl 24. Dxcl Gefið Star klæðaskápar Ný sending af hinum vinsælu Star klæðaskápum væntanleg. Star klæðaskápana er auðvelt að skipuleggja eftir þörfum hvers og eins. Star skápa er einstaklega gott að halda hreinum og þeir taka lítið rúm um leið og þeir skapa mikið geymslurými, Myndið fallegt útlit fyrir lágt verð. Opið í dag kl. 10—5. Verð frá ca. kr. 28.000 per lengdar meter. Star skápa í allt húsi. KOMIÐ OG LEITIÐ UPPLÝSINGA. BUSTOFNM. Funahöfði 1 9, Reykiavik simar81663 — 81077 Jólakaffi HRINGSINS Komist í jólaskap og drekkið eftirmiðdagskaffið hjá Hringskonum að Hótel Borg, sunnudaginn 5. des. kl. 3. Þar verður einnig á boðstólum: Skemmtilegur jólavarningur. Handavinna. Jólakort Hringsins. Jóla- plattar Hringsins. Skyndihappdrætti með fjölda góðra vinninga m.a. ferð til Kaupmannahafnar. Hvíti depillinn merkir adþetta sé dýrSheaffer, en verdmidinn vekur undrun. Ef madur sér og hondleikur Sheoffer panno fer manni ad langa í hann, en hann virdist þó í dýrara lagi. Sú stadreynd, ad hann er mikid til handunninn gerir þad óhjókvœmilegt. Nú hefur tekist ad framleida sérstakt sett þar sem erTriumph kúlupenninn, lindarpenninn og blýanturinn. Frógangur allur er hinn fegursti. þótt verdid sé ótrúlega lógt er Triumph nógu gódur til ad hljóta merkingu medhinum vidfrœga hvíta depli Sheaffer. Hann er tókn bestu skriftcekja í heimi. Eitt viljum vid bidja ykkur um og þad er ad geta gódfúslega ekki um verdid þegar þid veljidTriumph til gjafa. Hvers vegna œtti ad Ijósta upp leyndarmóli? Triumph by Sheaffer. SHEAFFER EATON Sh.oO.r Eoton dlvlslon of Ttxtron Inc. TEXTRON Sheaffer information: 25.155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.